Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.1987, Side 57

Læknablaðið - 15.11.1987, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ 401 Fréttabréfs lækna þessa árs ásamt greinargerð stjórnar L.í. um ástæður fyrir skipuninni og væntanleg verkefni nefndarinnar, svohljóðandi: »Vel þekktar eru margvíslegar breytingar, sem orðið hafa síðustu áratugi á eðli, gerð og framkvæmd vísindarannsókna í líf- og læknisfræði, sem ná til lifandi manna. Siðfræðilegar spurningar í tengslum við slíkar rannsóknir urðu kveikjan að því, að á heimsþingi lækna i Helsinki árið 1964 var samþykkt svonefnd Helsinkiyfirlýsing, sem síðan var endurskoðuð á heimsþingi lækna í Tokyo árið 1975. Helsinkiyfirlýsingin mælir með atriðum til að hafa að leiðarljósi við undirbúning og framkvæmd vísindarannsókna, sem tengjast fólki. Yfirlýsingin er þannig nokkurs konar siðfræðilegur leiðarvísir fyrir þá, sem sinna vísindalegum rannsóknum á sviði líf- og læknisfræði. Um nokkurt skeið hefur verið til umræðu innan stjórnar Læknafélags íslands að koma á fót siðanefnd vísindarannsókna til umsjónar og eftirlits með vísindarannsóknum, sem fram fara hér á landi og ná til lifandi manna. Á stærri sjúkrahúsunum í Reykjavík hefur þegar myndast vísir að eftirliti með vísindarannsóknum, nokkurs konar innra eftirlit á vegum læknaráða sjúkrahúsanna. Föst skipan hefur þegar komist á þessi mál víða í nágrannalöndunum. í Danmörku eru t.d. bæði starfandi miðnefnd (Den centrale videnskabsetiske komité) og svæða-nefndir (regionale videnskabsetiske komitéer). Stjórn Læknafélags íslands telur ekki þörf á slíkri svæðaskiptingu hér á landi. Hins vegar má vera, að æskilegt sé, að ákveðið innra eftirlit um þessi efni fari áfram fram innan veggja stærri sjúkrahúsa hér á landi. Stjórnin telur því eðlilegt, að öll vísindaleg rannsóknaverkefni, sem tengjast fólki, verði samþykkt fyrirfram af vísindasiðanefnd. Enda þótt stjórn Læknafélags íslands álíti tímabært að koma á fót vísindasiðanefnd, ber að hafa í huga, að um alllangt skeið hafa lög um Vísindasjóð og lög um Rannsóknaráð verið í endurskoðun af þar til skipuðum nefndum og að drög að frumvarpi til nýrra laga eru nú í höndum menntamálaráðherra. Mál kunna e.t.v. að skipast á þann veg, að siðamál vísindarannsókna verði með nýjum lögum falin opinberri nefnd á vegum Vísindaráðs/Rannsóknaráðs. Stjórn Læknafélags íslands telur þó ekki ástæðu til að bíða síðari tíma ákvörðunar í þessum efnum og skipar því eftirfarandi menn í Vísindasiðanefnd Læknafélags íslands: Ólaf Bjarnason, prófessor emeritus, formann, Ármann Snœvarr fyrrverandi hæstaréttardómara, Ólaf Örn Arnarson, yfirlækni, Pál Skúlason, prófessor, og Snorra Pál Snorrason, prófessor. Stjórn Læknafélags íslands felur formanni að kveðja nefndina til starfa. Úr hlaði fylgir nefndinni ósk stjórnar Læknafélags fslands um, að hún setji sér samþykktir og starfsreglur í samræmi vð Helsinkiyfirlýsinguna og leggi þær fyrir stjórn Læknafélags fslands til staðfestingar.« Þess skal getið, að á síðasta Alþingi voru samþykkt lög um Vísindaráð og Vísindasjóð, Rannsóknaráð ríkisins og Rannsóknasjóð. Ekki reynast í þeim lögum ákvæði, er varða beint siðfræði vísindarannsókna. Þá skal þess og getið, að á þessu hausti kemur út sem fylgirit Læknablaðsins Handbók um siðamál lækna. í Handbókinni verður m.a.: »Helsinkiyfirlýsingin: Ráðleggingar og leiðbeiningar fyrir lækna varðandi læknisfræðirannsóknir, sem gerðar eru á mönnum« og »Drög að alþjóðlegum viðmiðunarreglum fyrir læknisfræðilegar rannsóknir, sem gerðar eru á mönnum.« Birtur er enskur og íslenskur texti þessa efnis í þýðingu Arnar Bjarnasonar, ábyrgðarmanns Læknablaðsins. ERINDI TIL UMSAGNAR 1. Félagsmálanefnd sameinaðs Alþingis óskaði umsagnar L.í. um þingsályktunartillögu um mótun opinberrar neyslu og manneldisstefnu. Með tillögunni fylgdi greinargerð, og nánari upplýsingar komu fram í fylgiskjölum. Stjórnin tjáði sig hlynnta því, að þingsályktunartillagan væri samþykkt. 2. fslandsdeild Norðurlandaráðs óskaði umsagnar L.í. um þingmannatillögu í Norðurlandaráði um samræmdar aðgerðir gegn tóbaksauglýsingum. Stjórnin studdi tillöguna, enda gerir tillagan ráð fyrir svipuðum aðgerðum og nú er verið að framkvæma á íslandi. 3. íslandsdeild Norðurlandaráðs óskaði ennfremur eftir umsögn L.f. um

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.