Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1987, Page 61

Læknablaðið - 15.11.1987, Page 61
LÆKNABLAÐIÐ 405 Samningurinn gildir frá 1. mars 1987 til 31. des. 1988, en er uppsegjanlegur eftir 1. mars 1988, verði um meira en 6,5 % kaupmáttarrýrnun vegna verðbólgu að ræða miðað við meðallaun mars-okt. 1987. Launahækkanir þær, sem felast í samningnum, eru svipaðar þeim, sem þau félög BHMR fengu, sem ekki efndu til verkfalla. Hin fengu ívið meiri hækkanir. Auk venjulegra hækkana eru helstu nýjungar samningsins þær, að frá 1. janúar 1988 verður farið að greiða heilsugæslulæknum sérstaklega fyrir heilsuverndarstörf og kemur sú greiðsla í stað eins launaflokks hækkunar, sem aðrir fá þá. Gert verður námsmat fyrir nám lækna eftir kandidatspróf, en slíkt mat er ekki til. Þá er bókun um, að jafna skuli út kjaralegum áhrifum breytinga, sem kunna að verða á lífeyrismálum fastráðinna lækna. H1 læknar og héraðslæknar fengu meiri hækkanir en aðrir heilsugæslulæknar (1-6 launaflokka munur). Einnig varð meiri hækkun í launaflokkaröðun annarra en heilsugæslulækna, sem þó breytir ekki mikið launum þeirra, þar sem föst yfirvinna minnkar að sama skapi. Lífeyrisréttur batnar þó við þetta, svo og yfirvinnuþóknun. GJALDSKRÁ HEIMILIS- OG HEILSUGÆSLULÆKNA Samningur rann út 1. maí sl. Samninganefnd L.í. lagði fram kröfugerð um nýjan gjaldskrársamning í janúar, en samningaviðræður fóru ekki í gang fyrr en í maímánuði. Samningar tókust 16. júní og gildir samningurinn frá 1. júní 1987 til 30. apríl 1989. Allmiklar breytingar voru gerðar á gjaldskránni. Helstar eru þær, að tekinn var inn í gjaldskrána mikill fjöldi nýrra aðgerða og rannsókna samkvæmt fyrirmynd úr sérfræðigjaldskrá, en notkun sérfræðigjaldskrár er ekki leyfð lengur. Verðlag viðkomandi verka er þannig, að sami einingafjöldi kemur fyrir sambærileg verk í báðum samningum. Einingafjöldi fyrir viðtöl og vitjanir er aukinn (20%), og nú er gerður greinarmunur á vitjunum sérfræðinga og annarra. Fleiri breytingar eru í gjaldskránni, sem mun taka sömu hækkunum og meðaltalslaun heilsugæslulækna gera á samningstímanum. Samningurinn er talinn gefa flestum eitthvað meiri hækkun gjaldskrártekna en ef gamli samningurinn hefði verið endurnýjaður. Sett verður á stofn samstarfsnefnd Tryggingastofunar ríkisins og L.Í., sem hefur það hlutverk að fylgjast með beitingu gjaldskrárinnr og framkvæmd samningsins. Samstarfsnefndin mun jafnframt verðleggja læknisverk, sem ekki fyrirfinnast í gjaldskrá. Er vonast til, að með tilkomu nefndar þessarar geti samskipti T.R. og heimilis- og heilsugæslulækna batnað frá því, sem verið hefur. SAMNINGAR LAUSRÁÐINNA SJÚKRAHÚSLÆKNA I. Nýr kjarasamningur lausráðinna sjúkrahúslækna við ríki og Reykjavíkurborg var undirritaður 18. febrúar sl. Hinn nýi samningur var rækilega kynntur á fundi með sjúkrahúslæknum 24. febrúar sl. og þar samþykktur með miklum mun atkvæða. Til frekari glöggvunar á samningnum skal læknum bent á, að samningsgerðin öll er ítarlega rakin í síðustu ársskýrslu Læknafélags Reykjavíkur. Þótt hinn nýi samningur væri samþykktur með miklum meiri hluta atkvæða var honum ekki ákaft fagnað og ekki lagt til, að samninganefndirnar fengju orður fyrir frammistöðu sína. Aðstoðarlæknar voru illa sáttir við niðurstöðurnar og allir þeir, sem atkvæði greiddu gegn samningnum, voru úr þeirra hópi. Samningurinn felur þó í sér eftirfarandi meginatriði: a. Hann er gerður til 2ja ára eða til ársloka 1988 og á því tímabili hækka Iaun allra um tæplega 17%. Auk þessa hækka laun vegna verðlagsþróunar umfram rauð strik eftir úrskurði launanefnda og í samræmi við almennar launabreytingar milli áranna 1987-1988 og þá m.a. m.t.t. væntanlegra kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í lok þessa árs. í bakhönd er einnig, að ekki verði lakari launaþróun hjá læknum en meðal aðildarfélaga BHMR á samningstímabilinu. Laun hækka enn frekar hjá sérfræðingum við það, að tekinn er upp föst yfirvinnugreiðsla frá og með árinu 1988 í námsferðum. Þá hækka laun forstöðulækna og sviðsstjóra um 3% hjá hinum fyrrnefndu og um 6% hjá hinum síðarnefndu umfram yfirlæknisálag skv. samkomulagi fastráðinna lækna. b. Samkvæmt þessum samningi reiknast starfsaldur frá embættisprófi í stað þess að teljast frá byrjun sérnáms áður. Þetta hefur í för með sér, að fyrsta virka launastig

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.