Læknablaðið - 15.11.1989, Blaðsíða 14
338
LÆKNABLAÐIÐ
Það hefur vakið athygli okkar, að þrátt fyrir
að klóral sé lítið notað svefnlyf hér á landi
(3), hafa orðið allmörg dauðsföll af völdum
þess s.l. 10 ár. Fannst okkur rétt að gera
læknum grein fyrir þessu.
EFNIVIÐUR
Um er að ræða 11 einstaklinga, sjö karla og
fjórar konur á aldrinum 23-72 ára (meðalaldur
46 ár, sjá töflu). Tíu þessara einstaklinga
fundust látnir. Einn var fluttur rænulaus á
spítala, en lést þar skömmu síðar.
AÐFERÐIR
A. Ak\>arðanir á þríklóretanóli. Þríklóretanól
var ákvarðað í líffærum hinna látnu með
gasgreiningu á súlu eins og lýst verður hér
á eftir. Var aðferðin þróuð með hliðsjón af
aðferð, sem lýst var af Berry 1975 (4). Hún
var kynnt á þingi norrænna réttarefnafræðinga
í Reykjavík 1981 (5), en hefur ekki birst áður
á prenti.
Notaður var gasgreinir af tegundinni Perkin-
Elmer F33 með EC-skynjara (electron capture
detector). Súlan í greininum var 1 m að lengd
og 2 mm að innanmáli, fyllt með 10% OV-
17 á Gas Chrom Q 80/100. Hitastig í súlu
var haft 80° en 200° í önd greinisins og EC-
skynjara. Rennsli köfnunarefnis var haft 20
ml/mín. Deyfing á magnara var stillt þannig
að tríklóretanól í sterkasta samanburðarsýninu
(90 /rg/ml) gæfi a.m.k. 50% mælingarútslag á
pappír ritans.
Samanburðarlausnir voru gerðar með
þynningu á tríklóretanóli í vatni, þannig að
þéttni þess yrði 15, 30, 60 og 90 /tg/ml.
Samanburðarlausnimar voru úrhlutaðar
á sama hátt og sýni með óþekktu magni
þríklóretanóls.
Heili og lifrarvefur vom hakkaðir með
jöfnum hlutum af vatni fyrir úrhlutun, en
blóð og þvagsýni notuð óþynnt. Urhlutað
var þannig að í 100 ml mælikolbu var bætt
10 mg (eða 10 /d) af sýni og 10 ml af etanóli
(Merck 983). Kolban var hrist kröftuglega
í 5-10 sekúndur og síðan bætt við tólueni
(Merck 8325) að merkinu. Kolban var hrist
öðru hverju í 10 mínútur og að lokum var
nákvæmlega 2 /xl af vökvanum sprautað í
gasgreininn.
Þéttni þríklóretanóls í sýnunum var
reiknuð út frá topphæð þríklóretanóls á
Organ levels of trichloroethanol in eleven cases of fatal
poisoning involving chloral. Other drugs found in each
case are shown in the last column (numbers refer to
footnote).
Case no. Blood Sex Age /ig/ml Brain MQ/g Liver /xg/g Urine /ig/ml Other drugs
1 M 32 42 192 78 21 1,2
2 M 47 79 105 173 140 2
3 F 43 37 53 46 45 2,3,4,5
4 M 23 14 - - - 6,7
5 M 68 26 - - - 1,8
6 M 29 37 - - - 2
7 F 37 90 172 80 49 1
8 M 51 96 105 108 190
9 F 72 110 200 248 105
10 M 41 21 27 25 8 1
11 F 59 22 28 20 7 1,6,9,10
Mean 52 110 97 71
(range) (14-110) (27-200) (20-248) (7-190)
1. Ethanol (range in blood 0.22-2.37%).
2. Diazepam (range in blood 0.1-2,44 /ig/ml).
3. Desalkylflurazepam, in blood 0.13 /ig/ml
4. Salicylate, in blood 47 /xg/ml.
5. Phenazone, in blood 16 «g/ml.
6. Phenobarbital, in blood 17-77 ug/ml.
7. Morphine, in blood 40 ng/ml.
8. Nortriptyline, in blood 1.2 /xg/ml.
9. Promethazine in blood 0,33 /ig/ml.
10. Dextropropoxyphene in blood 0,62 /xg/ml.
The highest levels of ethanol were found in case no. 10 and this person
was in fact strangled.
gasgreiningarferlinum. Svömn EC-greinisins
var ekki línuleg. Var því teiknaður ferill yfir
samband topphæðar og þéttni þríklóretanóls í
samanburðarlausnunum og þéttni þess í sýnum
með óþekktu magni síðan lesin af ferlinum.
Greiningarmörk þessarar aðferðar em um 1 -2
/xg/g. Heimtur á þríklóretanóli við úrhlutun
voru um 100%.
B. Áki’arðanir á öðrum lyfjum. Etanól var
ákvarðað í blóði og þvagi með gasgreiningu
á súlu eins og áður hefur verið lýst (6).
Benzódíazepínsambönd vom ákvörðuð ýmist
með gasgreiningu á súlu eða vökvagreiningu
á súlu (7) og nortriptýlín með gasgreiningu
á súlu (8). Onnur lyf voru ákvörðuð eins og
tíðkast við réttarefnafræðilegar rannsóknir
(óbirtar aðferðalýsingar Rannsóknastofu í
lyfjafræði).
NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöðutölur ákvarðana á þríklóretanóli í
líffærum hinna látnu em sýndar í töflu. Blóð,
heili, lifur og þvag vom tekin til rannsóknar