Læknablaðið - 15.11.1989, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 1989; 75: 343-6
343
Ólafur Þór Ævarsson, Lárus Helgason
VIÐBRÖGÐ SJÚKLINGA OG AÐSTANDENDA
ÞEIRRA VIÐ ÁLAGI VEGNA VEIKINDA
II. Meöferö á geödeildum og öðrum deildum
ÚTDRÁTTUR
Áriö 1988 voru könnuö ýmis viöbrögð sjúklinga
og aöstandenda þeirra viö veikindum.Áöur
hefur veriö gerö grein fyrir viöbrögöum viö
innlögnum (1) en hér er gerö grein fyrir
viöbrögöum viö meðferð. Niöurstööur sýna
m.a. að almenn viöhorf til meðferöarinnar voru
jákvæð.
Fram kemur beiöni, bæöi frá sjúklingum
og aöstandendum, um aukna fræöslu og
leiöbeiningar. Auka má þátttöku þeirra í meðferö
og þannig ná betri samstarfsgrunni, ekki síst
varðandi fyrirbyggjandi aögeröir.
INNGANGUR
Á síðustu árum hafa komið fram ný viðhorf
varðandi mat á árangri læknismeðferðar.
Meiri áhersla er nú lögð á að fá upplýsingar
um hvort sjúklingamir sjálfir em sáttir við
árangurinn (2, 3). Jafnframt hefur verið sýnt
fram á að oft hafa sjúklingar aðra skoðun á
meðferð en læknar. Munurinn kemur ekki
síst fram þegar um er að ræða þátt sjúklinga
í meðferð og framkomu meðferðaraðila (4).
Sjúklingar gera nú auknar kröfur um að
óskir þeirra og viðhorf séu virt (5). Oljóst
er hverjar skoðanir og hversu mikil áhrif
aðstandendur hafa á meðferð, reyndar hefur
það lítið verið kannað.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Könnuð voru viðhorf 80 sjúklinga á
sjúkrahúsum og aðstandenda þeirra.
Helmingur sjúklinga var lagður inn á
geðdeildir en hinir á skurð- og lyfjadeildir
(5).
Rætt var við alla sjúklinga sem lágu á fjórum
legudeildum á ákveðnum degi. Sjúklingar
höfðu verið mismunandi lengi í meðferð
þegar viðtölin voru tekin. Þess var þó gætt
Frá geðdeild Landspítalans. Barst 03/03/1989. Samþykkt
17/05/1989.
að ekki var rætt við sjúklinga fyrr en a.m.k.
þrír dagar voru liðnir frá innlögn. Þrír
sjúklingar á geðdeildum og fjórir sjúklingar
á öðrum deildum gátu ekki gefið fullnægjandi
upplýsingar. Þeirra er því ekki frekar getið í
þessum niðurstöðum, en upplýsingar fengust
hins vegar frá aðstandendum þeirra. Ekki
fengust upplýsingar frá aðstandendum fjögurra
sjúklinga á geðdeildum.
í viðtölum voru eftirfarandi 18 spumingar
lagðar fyrir sjúklinga og aðstandendur um
meðferð.
Spurningar fyrir sjúklinga:
Hvaða meðferð finnst þér gefa bestan
árangur?
Hvaða skoðun hefur þú á þeirri meðferð
sem þú færð núna?
Finnst þér að eitthvað annað en gert er
myndi hjálpa?
Hvemig finnst þér lyfin verka á þig?
Líður þér betur?
Telur þú þig hafa haft gagn af innlögninni?
Hvað finnst þér um þinn þátt í meðferðinni?
Hvað finnst þér um samskipti við lækna?
Ertu upplýstur um sjúkdóm þinn?
Spurningar fyrir aðstandendur:
Hvaða meðferð finnst þér gefa bestan
árangur?
Hvaða skoðun hefur þú á þeirri meðferð
sem sjúklingur fær nú?
Finnst þér að eitthvað annað en gert er
myndi hjálpa?
Telur þú sjúkling hafa fengið bót á
spítalanum?
Finnst þér þú geta hjálpað?
Finnst þér þú skyldugur til að hjálpa?
Finnst þér sjúklingur taka virkan þátt í
meðferðinni?
Hvað finnst þér um samskipti þín við
lækna?
Telur þú að aðstandendur hafi verið
upplýstir nægilega um sjúkdóminn