Læknablaðið - 15.11.1989, Síða 42
362
LÆKNABLAÐIÐ
Þeir sem beittu sér fyrir innlögn voru oftast
úr fjölskyldu sjúklings eins og að líkum
lætur. Flestum sjúklingunum fannst erfiðast
að sætta sig við frelsisskerðingu þá sem
varð við nauðungarvistunina en talsverðum
hluta fannst þó aðdragandi innlagnar það
sem erfiðast var að sætta sig við. Verulegur
hluti sjúklinganna taldi sig ekki hafa verið
upplýstan um réttarstöðu sína við innlögn, en
oftast var það starfslið sjúkrahússins sem veitti
sjúklingi upplýsingar um réttarstöðu hans.
UMRÆÐA
Hlutfallslegur fjöldi nauðungarvistana, 4,1%,
og nauðungarvistaðra, 5,2%, á geðdeild
Landspítalans er lágur. Þangað eru þó
sendir langflestir þeirra sjúklinga sem lagðir
eru inn á sjúkrahús gegn vilja sínum með
leyfi dómsmálaráðuneytisins eða 50 af 60
sjúklingum er þannig voru vistaðir nauðugir
á athugunartímabilinu. í fyrmefndri athugun á
nauðungarvistunum á Kleppsspítala 1977 og
1978 (1), voru 7,5% innlagðra einstaklinga
nauðungarvistaðir. A svipuðum tíma (1977)
voru nauðungarvistanir um 35% allra innlagna
á geðsjúkrahús í Finnlandi, 30% í Noregi,
10% í Svíþjóð og 4% í Danmörku (2).
Hafa verður í huga að einhverjir þeirra
sjúklinga sem sviptir voru sjálfræði með dómi
áður en athugunartímabilið hófst kunna að
hafa verið lagðir inn á sjúkrahús á tímabilinu
án þess að það sé talið hér. Tala þeirra er þó
vafalaust mjög lág og var t.d. 1977-78, 3,5%
þeirra er þá voru nauðungarvistaðir.
Flestir þeirra sem lagðir voru nauðugir inn á
geðdeild Landspítalans á athugunartímabilinu
höfðu áður legið á geðdeild. Meirihluti þeirra
taldi sig hafa þörf fyrir geðlæknismeðferð um
það leyti er innlögnin átti sér stað. Innlögn
kom sjúklingnum þó oft á óvart og margir
voru síðar ósáttir við aðdraganda hennar. Þótt
flestir þessara sjúklinga væru þeirrar skoðunar
að almennt væri réttlætanlegt að grípa til
nauðungarvistunar við vissar aðstæður var
aðeins rúmlega helmingur þeirra sáttur við
eigin innlögn. Meira en helmingur dvaldi þó
á sjúkrahúsinu eftir að nauðungarvistunin var
útrunnin.
Með nánara sambandi læknis við sjúkling
og fjölskyldu hans og auknum undirbúningi
fyrir innlögn þegar hún verður nauðsynleg,
væri trúlega mögulegt að fá verulegan
hluta þessara sjúklinga til að leggjast inn
á sjúkrahúsið sjálfviljuga og fækka þannig
nauðungarinnlögnum enn frekar en þegar
hefur verið gert.
Það er einnig umhugsunarvert að um
fjórðungur sjúklinganna telur sig ekki hafa
verið upplýstan um réttarstöðu sína við
innlögnina. Tryggja þarf enn betur en nú
er að hver einasti sjúklingur sem vistaður
er nauðugur á geðdeild sé vel upplýstur um
þann rétt sinn að leita úrlausnar dómstóla um
ákvörðun ráðuneytis um vistunina.
SUMMARY
This is a study of the feelings and attitudes
of patients admitted against their will to the
Department of Psychiatry of the National
University Hospital, Reykjavík, Iceland, towards
their involuntary hospital admission.
During the study period 4.1% of admissions
were involuntary. The majority (75%) of the
involuntary patients considered themselves in need
of psychiatric care at the time of admission, 45%
that hospitalization was necessary and 67% said
the admission came as a surprise. Of the patients
33% considered themselves not to have been
properly informed of their legal rights at the time
of admission. These attitudes changed little during
a follow-up period of 4 months.
It is concluded that involuntary admissions should
be prepared more thoroughly in cooperation with
the patient and more emphasis should be placed on
giving the patient clear information about his/her
legal rights.
HEIMILDIR
1. Guðmundsson GB. Lögræðissviptingar og vistun á
Kleppsspítala 1977 og 1978. Læknablaðið 1982; 68:
73-8.
2. Regler om tvángsintagning av sjuka och »avvikare«,
NM fakta. Nordisk Medicin 1978; 93; 212.
Lögræðislög nr. 68 30. maí 1984 gr. 1-10,
12-20, 25, 27.
I. kafli. Um lögræðisskilyrði
1. gr. Maður er sjálfráða 16 ára gamall, nema
sviptur sé sjálfræði, og fjárráða 18 ára gamall,
nema sviptur sé fjárræði. Sá sem er sjálfráða
og fjárráða er lögráða. - 2. gr. Nú gengur
maður, sem ólögráða er fyrir æsku sakir, í
hjónaband, og er hann þá lögráða upp frá því,
nema sviptur sé lögræði.