Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1991, Síða 12

Læknablaðið - 15.08.1991, Síða 12
218 LÆKNABLAÐIÐ áhrif á. En það er vel þekkt að frumufjölgun snemma í krabbameinsmyndun er nauðsynleg til þess að umbreyting, t.d. af völdum efnasambanda, geti átt sér stað (15). Þá hefur einnig verið sýnt fram á að í sjúklingum án gallblöðru verður ekki frásog á vatni og bíkarbonati úr gallinu sem venjulega á sér stað í gallblöðrunni. Basískt gall lekur niður í meltingarveginn og veldur skemmd á slímhúð (16). Þessi frumuskemmd eykur á frumufjölgun sem getur verið undanfari æxlisvaxtar (17). Gallblöðrutakan getur því annaðhvort haft æxlishvetjandi áhrif á einhverjar forstigsbreytingar í ristlinum eða aukið á æxlishvetjandi áhrif annarra efnasambanda vegna þeirrar frumufjölgunar sem gallblöðrutakan virðist geta haft á eðlilega ristilslímhúð. í kjölfar þessara niðurstaðna hafa verið gerðar fjölmargar rannsóknir til að kanna samband gallblöðrutöku og kráþbameina í ristli og endaþarmi í mönnum’(18). Niðurstöður þessara rannsókna hafa aðallega verið á tvo vegu. Annarsvegar hefur ekkert samband fundist en hinsvegar hefur fundist aukin tíðni ristilkrabbameins í konum og þá fyrst og fremst í hægri hluta ristils. í þessu blaði eru birtar niðurstöður rannsóknar þar sem athuguð voru tengsl gallblöðrutöku og krabbameina í ristli og endaþarmi hjá Islendingum. Gallblöðrutaka er algeng aðgerð og á tímabilinu sem rannsóknin nær yfir, 1955-1980, varð veruleg aukning á aðgerðinni (sjá mynd). Það kann að endurspegla bætta tækni til að greina gallsteina og aukna notkun ómskoðunar hjá sjúklingum með óljósa kviðverki. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru um margt ólíkar niðurstöðum fyrri rannsókna. Marktæk aukning verður á ristilkrabbameini í körlum 11 árum eða síðar eftir gallblöðrutöku og eru flest þeirra, eða 62.5%, staðsett í vinstri hluta ristils. Rannsóknin er jafnframt hlutfallslega sú langstærsta sem gerð hefur verið, þar sem rannsakaðir eru yfir 95% einstaklinga heillar þjóðar sem gengist hafa undir gallblöðrutöku á 26 ára tímabili og þeim fylgt eftir í 8-33 ár. Möguleikar til að afla slíkrar upplýsinga, sem hér er getið, eru ekki víða fyrir hendi, en gera kleift að rannsaka ýmsa mikilvæga faraldsfræðilega þætti sjúkdóma í Islendingum. Þrátt fyrir þessa marktæku aukningu á Number of cholecystectomies ■ males □ females □ total Numher of clmlecysleclomies in lceland I955-I9N0. ristilkrabbameini er vafasamt að ráðleggja reglubundið eftirlit eftir gallblöðrutöku, þar sem flestir karlmannanna eru 70 ára og eldri við greiningu. Hvort fylgjast á reglulega með þeim karlmönnum sem gangast undir gallblöðruaðgerð t.d. yngri en 50 ára er hinsvegar ekki svarað í þessari rannsókn. Ásgeir Theodórs1,2), Gunnlaugur Pétur Nielsen1,3' Frá 1 lyflækningadeild St. Jósefsspitala, Hafnarfiröi, “lyflækningadeild Borgarspítalans, 3rannsóknastofu Háskólans í meinafræöi. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ásgeir Theodórs. HEIMILDIR 1. Hakulinen T, Andersen AA, Malker B, Pukkula E, Schou G, Tulinius H. Trends in Cancer incidence in the Nordic Countries. A collaborative study of the five Nordic Cancer Registries. APMIS. Section A 1986; 94: Suppl. 288. 2. Reddy BS. Role of bile metabolites in colon carcinogenesis. Cancer 1975; 36: 2401-6. 3. Reddy BS, Wynder EL. Metabolic epidemiology of colon cancer. Fecal bile acids and neutral sterols in colon cancer patients and patients with adenomatous polyps. Cancer 1977; 39: 2533-9. 4. Hill MJ, Drasar BS, Williams REO. Faecal bile-acids and clostridia in patients with cancer of the large bowel. Lancet 1975; 8: 535-9. 5. Castleden WM, Detchon P, Misso NLA. Biliary bile acids in cholelithiasis and colon cancer. Gut 1989' 30: 860-5.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.