Læknablaðið - 15.03.1993, Page 5
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 93
93
Stutt æviágrip
Þorsteins Loftssonar
Þorsteinn fæddist í Kaupmannahöfn 1.
mars 1950 en ólst upp frá fyrsta aldursári
í Reykjavík. Hann er sonur hjónanna Ernu
Matthíasdóttur (f. 26. nóvember 1925) og
Lofts Þorsteinssonar verkfræðings (f. 23. apríl
1925). Erna er dóttir Matthíasar Ólafssonar
trésmiðs (f. 13. janúar 1896, d. 17. maí 1936)
og Ingunnar Guðmundsdóttur (f. 21. nóvember
1903, d. 14. apríl 1977). Loftur er sonur
Þorsteins Loftssonar vélfræðiráðunauts (f.
14. nóvember 1890, d. 26. september 1961)
og Pálínu Margrétar Vigfúsdóttur (f. 3. apríl
1895, d. 25 janúar 1973). Þorsteinn lauk
Dagana 6.-8. desember 1992 var haldin VI. ráðstefna um
rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands.
Tekin var upp sú nýbreytni að heiðra vísindamann sem
skarað hefur fram úr. Fyrir valinu varð Þorsteinn Loftsson,
prófessor í lyfjafræði.
stúdentsprófi frá náttúrufræðideild
Menntaskólans við Hamrahlíð vorið 1970
og hóf sama ár nám í lyfjafræði við Háskóla
Islands og lauk þaðan fyrrihlutaprófi í
lyfjafræði 1972. Hann fór þá til Danmerkur
og lauk kandídatsprófi í lyfjafræði frá
Danmarks Farmaceutiske Hpjskole sumarið
1975. Veturinn 1975-76 stundaði Þorsteinn
ýmis lyfjafræðistörf hér á landi en hélt
síðan utan til Bandaríkjanna og hóf nám
í lyfjaefnafræði við University of Kansas
Department of Pharmaceutical Chemistry. Þar
lauk hann meistaraprófi (M.S.) í lyfjaefnafræði
1978 og doktorsprófi (Ph.D.) haustið 1979.
Doktorsritgerð Þorsteins fjallar um forlyf
acetýlsalicýlsýru.
Strax að loknu námi fluttist Þorsteinn heim
til Islands og hóf kennslu- og rannsóknastörf
við Háskóla Islands. Hann var skipaður lektor
við lyfjafræði lyfsala haustið 1979, dósent í
febrúar 1983 og prófessor í eðlislyfjafræði í
janúar 1986. Samhliða starfi sínu við Háskóla
Islands hefur Þorsteinn verið fastráðinn
gistikennari (Adjunct Professor) við University
of Florida og stundað þar ýmsar rannsóknir,
svo sem á flutningi lyfja í húð og á mjúkum
lyfjum. Hann var vísindalegur ráðgjafi
lyfjaþróunarfyrirtækisins Pharmatec Inc.,
sem staðsett var í iðngörðum University
of Florida, frá stofnun þess árið 1983 þar
til það var selt á síðasta ári. Pharmatec
sérhæfði sig í þróun forlyfja sem hafa
staðbundna verkun í miðtaugakerfinu. Hér
heima hefur mest borið á rannsóknum
Þorsteins á hringlaga sykrungum sem nefnast
cýklódextrín og rannsóknum hans á efnafræði
krabbameinslyfja. Þorsteinn hefur ritað
fjölmargar greinar um rannsóknir sínar í
erlend vísindarit en auk þess hefur hann
kynnt þær á ráðstefnum sem og í erlendum
háskólum og lyfjafyrirtækjum.
Þorsteinn kvæntist 19. ágúst 1972 Hönnu Lilju
Guðleifsdóttur (f. 5. febrúar 1951). Hún er
dóttir Guðleifs Kristins Bjamasonar símvirkja
og Sigurborgar Eyjólfsdóttur. Synir Þorsteins
og Hönnu Lilju em Loftur (f. 31. maí 1975)
og Gunnar Þór (f. 8. júlí 1977).