Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1993, Side 34

Læknablaðið - 15.03.1993, Side 34
122 LÆKNABLAÐIÐ hljótist af skal hann tilkynna það landlœkni. Sama skylda hvílir á öðrum heilbrigðisstéttum og öðrum þeim sem vinna með lœknum.« Læknalögin gengu í gildi 1. júlí 1988 og var ákvæði þetta nýmæli. Ef ákvæðið er skoðað nánar sést strax að á því eru annmarkar. Það býður læknum eða öðrum heilbrigðisstéttum að tilkynna þegar þeir verða varir við mistök eða vanrækslu af hálfu annarra. Jafnframt bindur það tilkynningaskylduna við það að ætla megi að skaði hljótist af. Snemma árs 1990 fór skurðaðgerð öðruvísi en fyrirhugað var. Sjúklingurinn dó á skurðarborðinu. Viðbrögð sjúkrahússins urðu þau að kalla til Rannsóknarlögreglu ríkisins, að því er virðist nteð stoð í fyrrnefndum lögum frá 1913. Atburðurinn og viðbrögð við honum sýndi að tilkynningarskylduákvæði læknalaganna var hvorki nægilega skýrt né nógu víðtækt. A þessum tíma var til meðferðar hjá Alþingi frumvarp til laga um breytingu á læknalögum. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið greip því það ráð að senda þingnefndinni sem fjallaði um málið tillögu að breytingu á 18. gr. læknalaganna. Sú breyting náði fram að ganga og hljóðar ákvæði 2., 3. og 5. mgr. nú svo: »Verði læknir í starfi sínu var við mistök eða vanrœkslu af luílfu lœkna eða annarra heilbrigðisstarfsmanna skal hann tilkynna það landlækni. Sama skylda hvílir á öðrum heilbrigðisstéttum og öðrum þeim sem vinna með lœknum. Hljótist skaði af læknisverki skal læknir sá sem verkið vann eða yfirlæknir tilkynna það til landlæknis. Ráðherra setur reglur um meðferð landlæknis á málum skv. 2. og 3. mgr.« Hér var sú breyting gerð á tilkynningarskyldunni að hún var ekki háð því að skaði yrði að hljótast af. Sömuleiðis var hún víkkuð út í þá veru að el' skaði hlytist af læknisverki, skyldi sá læknir sem verkið vann eða yfirlæknir tilkynna það. Loks skal setja nánari reglur um meðferð landlæknis á þeim málum sem hann fær tilkynningu um vegna þessa lagaákvæðis. Eftir að þessi breyting gekk í gildi gerðist það á sjúkrahúsi einu hér í borg að aðgerð var framkvæmd á röngum útlimi. Þrátt fyrir skýr lagaákvæði var Rannsóknarlögregla ríkisins kölluð til og annaðist rannsókn málsins. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér hjá embætti landlæknis er nánast hendingu háð hvort embættinu berist tilkynningar um óvænt atvik. Oft berst embættinu vitneskja um slíka atburði löngu síðar þegar lögmenn snúa sér til embættisins með kvörtun vegna hans. LOKAORÐ Niðurstaða mín er því sú, að lagalega sé nokkuð skýrt hvernig bregðast skuli við óvæntum atvikum í heilbrigðisþjónustunni. Þau skal tilkynna landlækni og skal embætti hans rannsaka hveil einstakt tilvik. Lögreglu á ekki að kalla á vettvang þótt óvænt atvik verði í heilbrigðisþjónustu nema málsatvik séu með þeim hætti að grunur leiki á að um hegningarlagabrot sé að ræða. Eg tel brýnt að setja reglur um meðferð landlæknis á málum sem tilkynnt eru til hans samkvæmt fyrirmælum 18. gr. læknalaga. I þeim reglum þyrfti að kveða skýrt á um það hvenær kveðja skal til lögreglu. í framhaldi þessa er mikilvægt að gera öllum heilbrigðisstofnunum skýra grein fyrir því, hverjar skyldur þeirra eru þegar óvænt atvik ber að höndum í heilbrigðisþjónustunni.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.