Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.1993, Qupperneq 48

Læknablaðið - 15.03.1993, Qupperneq 48
 NÚ HAFA ÞÚSUNDIR ÍSLENDINGA FENGH) LOSEC VID SÁRSJÚKDÓMUM I MELTINGARFÆRUM og verkurl 'nn hverfur á stuttum tima hjá flestuhi sjúklingum. meðferðartími og góð svörun gerir ódýrara en í fljótu bragði virðist. Stuttur Losec en í fljótu bragði virðist í.’ dgk|gl r:. '. t/ STUNGULYFSSTOFN iv; Hvert hettuglas inniheldur: Omeprazolum natríumsalt. samsvarandi Omeprazolum INN 40 mg. SÝRUHJÚPHYLKI; Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+, H+-ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru. bæði hvildarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst i 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóði er um 95%. Helmingunartimi lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 minútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega aðallega í lifur og skiljast umbrotsefni að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur i skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu stað- festar með speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Ogleði. niðurgangur, hægðatregða. vindgaogur. Höfuðverkur. Fáeinir sjúklingar hafa fengið útbrot. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrotshraða díazepams, warfarins og fenýtóins í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarin eða fenýtóin og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Einstakir skammtar, sem nema 160 mg I inntöku eða 80 mg í æð, þolast vel. Athugið: Vegna takmarkaðrar reynslu af notkun lyfsins er einungis mælt með skammtimanotkun, ekki langtimanotkun. Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutima og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylki: SkeHuqamarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Maqasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag i 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram i 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga i vólinda veqna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag i 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafá ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinqer-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum i tvær lyfjagjafir. Stungulyfsstofn: I upphafi meðferðar má nota stungulyfið handa sjúklingum, sem eiga erfitt með að taka lyfið inn. Venjulegur skammtur er 40 mg í æð einu sinni á dag. Ekki skal blanda lyfinu saman við innrennslislausnir. Lyfið skal gefa rólega í æð °g á 9iöf lyísins að taka a.m.k. 2V4 minútu. Leysir fylgir stungulyfsstofninum og má ekki nota annan leysi. Tilbúna lausn skal nota innan 4 klst. frá blöndun. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar: Stungulyfsstofn iv: (hgl. 40 mg + leysir) x 1. Sýruhjúphylki: 14 stk; 28 stk. Framlelðandi: Hássle. Umboösaöili: Pharmaco. •Meðalnotkun ágúst-nóvember 1990: 14.070 DDD (20 mg) á mánuði. ilSTKA ■■■ ASTRA ÍSLAND wmm

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.