Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 48
ár gróa og verkurinn hverfur á stuttum tíma hjá flestum sjúklingum. Stuttur meðferðartími og góð svörun gerir bragði virðist. Losec ódýrara en í fljótu NÚ HAFA ÞÚSUNDIR ÍSLENDINGA FENGH) LOSEC VIÐ SÁRSJÚKDÓMUM í MELTINGARFÆRUM STUNGULYFSSTOFN iv; Hvert hettuglas inniheldur: Omeprazolum natriumsalt, samsvarandi Omeprazolum INN 40 mg. SÝRUHJÚPHYLKI; Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar: Lyfiö blokkar prótónupumpuna (K+, H+-ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvildarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst i 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding i blóði er um 95%. Helmingunartimi lyfsins I blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en þvi samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega aðallega i lifur og skiljast umbrotsefni að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga i vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu stað- festar með speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Ógleði, niðurgangur, hægðatregða, vindgangur. Höfuðverkur. Fáeinir sjúklingar hafa fengið útbrot. Milliverkanir: Ömeprazól getur minnkað umbrotshraða diazepams, warfaríns og fenýtóins i lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarin eða fenýtóin og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Einstakir skammtar, sem nema 160 mg i inntöku eða 80 mg i æð, þolast vel. Athugið: Vegna takmarkaðrar reynslu af notkun lyfsins er einungis mælt með skammtimanotkun, ekki langtimanotkun. Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylki: Skeifuqamarsár Venjulegur skammtur er 20 mg á dag i 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram i 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Maqasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag i 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferö, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólqa i vólinda veqna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag i 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram i 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinqer-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum i tvær lyfjagjafir. Stungulyfsstofn: I upphafi meðferðar má nota stungulyfið handa sjúklingum, sem eiga erfitt með að taka lyfið inn. Venjulegur skammtur er 40 mg i æð einu sinni á dag. Ekki skal blanda lyfinu saman við innrennslislausnir. Lyfið skal gefa rólega i æð og á gjöf lyfsins að taka a.m.k. 2V$ minútu. Leysir fylgir stungulyfsstofninum og má ekki nota annan leysi. Tilbúna lausn skal nota innan 4 klst. frá blöndun. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar: Stungulyfsstofn iv: (hgl. 40 mg + leysir) x 1. Sýruhjúphylki: 14 stk; 28 stk. Framleiöandi: Hássle. Umboðsaðili: Pharmaco. *Meðalnotkun ágúst-nóvember 1990: 14.070 DDD (20 mg) á mánuði. ASTItA ■■■ ASTRA ÍSLAND * a

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.