Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 26

Læknablaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 26
318 LÆKNABLAÐIÐ í töflu IV sést að af 240 manns sem létust af völdum krabbameina, samkvæmt krufningaskýrslum fengu aðeins 198 sömu undirflokkun á dánarvottorði. Næmi dánarvottorðanna fyrir rétt flokkuðum krabbameinum var því 82%. Einnig má sjá í töflu IV að af þeim 229 manns sem dánarvottorðin töldu hafa látist af völdum krabbameina reyndust 196 vera með rétta undirflokkun. Jákvætt spágildi dánarvottorðanna var því 86%. Þegar litið var á einstök krabbamein (tafla IV) voru bæði næmi og jákvætt spágildi mismunandi. Fyrir brjóstakrabbamein voru næmi og jákvætt spágildi 100% (12/12), fyrir lungnakrabbamein var næmið 87% (40/46) en jákvætt spágildi 93% (40/43), fyrir blöðruhálskirtilskrabbamein var næmi 100% (11/11) en jákvætt spágildi 85% (11/13), fyrir briskirtilskrabbamein var næmi 70% (11/16) en jákvætt spágildi 100% (11/11) og fyrir inagakrabbamein var næmi 82% (23/28) en jákvætt spágildi 92% (23/25). í hópi B voru þær 752 konur sem greindust með bjóstakrabbamein árin 1974-1983 að báðum meðtöldum. Ur hópnum höfðu 406 látist fyrir 1. desember 1990. Þar af höfðu 118 konur (29%) verið krufnar. Dánarorsökin reyndist vera brjóstakrabbamein hjá 85 þeirra, eða hjá 72%. Þegar gert var upp ofmat og vanmat var brjóstakrabbamein vanmetið um samtals 5% (tafla V). Næmi dánarvottorðanna fyrir brjóstakrabbamein var 93% og jákvætt spágildi var 97%. Þegar litið var á allar dánarorsakir í hópnum var algjört misræmi milli krufningarskýrslu og dánarvottorðs í 4% tilfella og hálfgert í 4%, samtals 8% (tafla VI). Fyrir brjóstakrabbamein var samtals misræmi 7%. UMRÆÐA I rannsóknarhópi A var heildarmisræmi í undiiTÓt dánarmeins milli krufningarskýrslu og dánarvottorðs 25%, sem er lítið miðað við aðrar rannsóknir (2-5). Misræmið var aðeins um 18% fyrir þá sem létust úr krabbameinum samkvæmt krufningarskýrslu, en það var talsvert meira þegar litið var á blóðrásar-, Table V. Diagnostic categoríes of underíying cause, accorging to autopsy, compared with death certificate - group B. Diagnostic category No. Autopsy record Death- certificate ii. Neoplasm, malignant breast 85 81 others 9 12 VII. Circulatory 14 16 VIII. Respiratory 4 3 IX. Digestive 3 3 XVII. Accidents 3 3 All categories 118 118 Table VI. Comparison of underlying cause of dealh as found at autopsy, with death certificate - Group B. Type of disagreement. Autopsy record Type of disagreement Disease category Disagreement Total Subcategoric II. Neoplasm, malignant breast No. (%) 85 6 3 3 (100) (7) (4) (4) others 9 1 0 1 (100) (11) (0) (11) VII. Circulatory 14 2 1 1 (100) (42) (14) (29) VIII. Respiratory 4 1 1 0 (100) (25) (25) (0) IX. Digestive 3 0 0 0 (100) (0) (0) (0) XVII. Accidents 3 0 0 0 (100) (0) (0) (0) All categories 118 10 5 5 (100) (8) (4) (4)

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.