Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 42
332 LÆKNABLAÐIÐ Heilbrigðisstéttir, ekki síst læknar, þurfa að gefa sér meiri tíma til að sinna hinum mannlega þætti meðferðar sjúklinga og ræða við þá. En við skulum líka, sem sjúklingar eða aðstandendur sjúklinga, vera ófeimin við að spyrja lækna og aðra allra þeirra spurninga sem á okkur brenna. Við skulum ekki láta þessa aðila komast upp með að svara okkur í austur þegar spuil er í vestur. Við skulum ekki hætta að leita svara fyrr en við fáum viðunandi og hreinskilin svör. En þó við fellum lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn af þeim stalli sem þeir hafa alltof lengi staðið á, skulum við muna að þegar allt kemur til alls þá fara hagsmunir sjúklings og heilbrigðisstétta saman eða ættu að minnsta kosti að gera það. Heilbrigðisstéttir eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lækna og líkna. Sjúklingar eiga í flestum tilvikum þá eina ósk heitasta að ná bata, ef batahorfur eru einhverjar. Það, að á heilbrigðisstéttir eru lagðar kvaðir um að gefa sjúklingum upplýsingar og um leið afla sainþykkis fyrir meðferð, á ekki að verða ásteytingarsteinn í samskiptum þessara aðila heldur eðlilegur hlutur því það hlýtur að vera öllum til hagsbóta, sjúklingum, aðstandendum þeirra og heilbrigðisstéttum, að sjúklingar séu vel upplýstir um réttindi sín. HEIMILDIR 1. Pálsson V. Um refsiábyrgð lækna. Ulfljótur 1980; XXXIII: 83-132. 2. Draft European Declaration of the Rights of Patients. WHO, 1989: ICP/HLE 121. 3. Dómabók bæjarþings Reykjavíkur í málinu nr. 2808/1990. Dómur uppkveðinn 31. desember 1991.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.