Læknablaðið - 15.08.1995, Blaðsíða 13
MÓNÍT-L
(ísósorbíð mónónítrat)
-forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag.
Mónít-L (ísósorbíö mónónitrat)
Framleiöandi: OMEGA FARMA hf.. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur.
Foröahylki; C 01 D A 14. Hvert foröahylki innihcldur: Isosorbidi mononitras
INN 30 mg eða 60 mg. Eiginlcikar: Ísósorbíö mónónítrat er virkt umbrotsefni
ísósorbíð dínítrats. Það slakar á sléttum vöðvum æöa, aðallega í bláæðum. minnkar
þannig flæði til hjartans og þar meö hjartastærö og auöveldar samdrátt hjartans. Lyfið
hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæöarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%.
Blóöþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil að þol
myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niöurbrotsefni útskiljast í
þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir
verk. Frábcndingar: Lágur blóöþrýstingur, sórstaklega eftir hjartadrep. Mikið
blóöleysi. Aukinn þrýstingur í miðtaugakerfi. Slagæöasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir
nítrötum. Meöganga og brjóstagjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf
hefur ekki verið staðfest. Aukavcrkanir: Höfuðverkur. Æðasláttur og roði. Lágur
blóöþrýstingur. Svimi. Yfirliö. Hraöur hjartsláttur. Uppköst. Millivcrkanir: Áfengi
getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúö: Viö brátt hjartadrep á aðeins
aö nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastæröir handa fullorönum:
í upphafi meðferðar er ráölagður skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60
mg á dag, gefiö að morgni. Ef þörf krefur má auka skammt í 120 mg á dag sem taka
skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols viö
langvarandi notkun nítrata er óráölegt aö nota nítröt samfleytt mcira
en 12 klst. í hvcrjum sólarhring. Lyfiö er ekki ætlaö börnum.
Pakknlngan
Foröahylki 30 mg: 30 stk.; 100 stk.
Foröahylki 60 mg: 30 stk.; 100 stk.
0MEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990