Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1995, Qupperneq 18

Læknablaðið - 15.08.1995, Qupperneq 18
596 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 sama sýkli eftir meira en þrjár vikur frá lokum sýklalyfjameðferðar. Upplýsingar um fólksfjölda á íslandi 16 ára og eldri á rannsóknartímabilinu til nýgengis- útreikninga voru fengnar úr Hagtíðindum og frá Hagstofu íslands. Einhverjar upplýsingar fundust um 136 sjúklinga alls og eru tölur um nýgengi, orsakir og dánartíðni byggðar á þeim. Sjúkraskrár 123 sjúklinga fundust og byggjast niðurstöður um önnur atriði, svo sem sjúk- dómsferil, einkenni, fylgikvilla og svo fram- vegis á þeim. Auk þess fundust upplýsingar um tvo sjúklinga í krufningarskýrslum og reiknast þeir eingöngu í tölum um nýgengi, orsakavalda og dánartíðni. Sjúkraskrár 13 sjúklinga, greindra samkvæmt skrám sýkladeildar, fund- ust ekki. Um tvo þeirra fundust upplýsingar í krufningarskýrslum (báðir með heilahimnu- bólgu af völdum Streptococcus pneumoniae) en upplýsingar um afdrif hinna fengust frá Hagstofu íslands. Athugunin var gerð með samþykki yfirlækna allra þeirra sjúkradeilda þar sem sjúklingar með heilahimnubólgu af völdum baktería höfðu hlotið meðferð. Upp- lýsingar voru færðar á gagnagrunn í tölvu eftir að persónuauðkennum hafði verið eytt. Beitt var Kí-kvaðrat og nákvæmnisprófi Fisher við tölfræðilega útreikninga. Niðurstöður Sjúklingar: Alls greindust 136 sjúklingar á tímabilinu, 61 (45%) karl og 75 (55%) konur. Sjúklingum var skipt niður á þrjú tímabil: 1975-1980, 1981-1986 og 1987-1994 og greind- ust 33 einstaklingar á fyrstu sex árunum, 38 á næstu sex og 65 á síðustu átta árunum. Aldurs- dreifing var á þann veg að 42 sjúklingar (31%) voru á aldrinum 16-20 ára, 35 (26%) á aldrin- um 21-45 ára og 59 (43%) voru 46 ára og eldri. Nánari upplýsingar úr sjúkraskrám fengust um 123 sjúklinga. Tveir sjúklingar reyndust vera með spítala- sýkingu; annar þeirra var nýrnabilaður og hinn sýktist fjórum dögum eftir heilaaðgerð þar sem blóðgúll (epidural hematoma) var tæmdur. Fjórir sjúklingar fundust með endurtekna sýk- ingu, og hafði einn þeirra sýkst 24 árum áður, en hinir sýkst aftur innan árs frá fyrri sýkingu. Nýgengi: Á tímabilinu reyndist nýgengi sjúk- dómsins meðal fullorðinna vera 1,7-7,2/ 100.000 íbúa á ári og var að meðaltali 3,8/ 100.000 (mynd 1). Meðalnýgengi tímabilanna þriggja var einna mest á því síðasta (3,6; 3,6 og Mynd 1. Nýgengi heilahimnubólgu afvöldum baktería meðal unglinga (>16 ára) og fullorðinna á íslandi 1975-1994. 4,2/100.000). Verulegar sveiflur voru á nýgengi frá ári til árs og var árlegt nýgengi >4/100.000 íbúa á árunum 1976-1977, 1985-1986, 1990- 1991 og 1993-1994 (mynd 1). Tengdir sjúkdómar: Um 61% sjúklinga höfðu enga fyrri eða tengda sjúkdóma sem hefðu get- að stuðlað að tilurð heilahimnubólgu (tafla I). Hjá hinum var oftast um að ræða lungnabólgu, áfengissýki eða vímuefnaneyslu, höfuðáverka og bælt ónæmiskerfi. Af þeim 12 sem höfðu hið síðastnefnda voru 10 yfir 45 ára aldri. Þetta var einkum fólk með mergæxli (myeloma multi- plex), Hodgkins sjúkdóm, eitilfrumukrabba- mein, blöðruhálskirtils- og brjóstakrabba- mein. Fjórir af átta sem fengu heilahimnu- bólgu af völdum Listeria monocytogenes voru með bælt ónæmiskerfi. Orsakir: Neisseria meningitidis var algeng- asta orsök sjúkdómsins á öllum þremur tíma- bilunum og olli 54% (n=74) sýkinganna í heild (tafla II). Flestir stofnanna voru af hjúpgerð B, 41 (55%), 24 (32%) voru af gerð C og þrír Tafla I. Tengdir sjúkdómar sjúklinga með heilahimnubólgu. Sjúkdómar Fjöldi (%) Engir 76 ( 61) Bælt ónæmiskerfi 12 ( 9) Lungnabólga 7 ( 6) Höfuðskaði 5 ( 4) Vímuefnavandi 8 ( 7) Sykursýki 5 ( 4) Miðeyrnabólga 3 ( 2) Leki á heila/mænuvökva 2 ( 2) Nýleg heilaaðgerð 1 ( 1) Skútabólga 2 ( 2) Mænuvökvahjáveita (V-P shunt) 1 ( 1) Alls 123 (100)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.