Læknablaðið - 15.08.1995, Síða 20
598
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
sjúklinga (n=79) höfðu skerta meðvitund að
einhverju leyti. Fjörutíu og fimm prósent voru
ruglaðir eða sljóir við komu, 9% svöruðu ein-
göngu sársauka og 11% (n=13) voru í dái, eða
fóru í dá á næstu einum til tveimur dögum. Af
þeim síðastnefndu voru átta með N. meningi-
tidis sýkingu, fjórir með S. pneumoniae og einn
með L. monocytogenes.
Krampar: Þrettán sjúklingar (11%) fengu
krampa, þar af tveir alflog (grand mal) og voru
þeir með S. pneumoniae sýkingu. Þrír fengu
síðkomna krampa, það er meira en þremur
dögum eftir innlögn. Af sjúklingum með N.
meningitidis var 3% lýst með krampa, en 22%
sjúklinga með S. pneumoniae (p<0,05) (mynd
3).
Mœnuvökvarannsóknir: Upplýsingar fundust
um mænustungur hjá 113 einstaklingum (tafla
III). Mænustunga var endurtekin í 32% tilvika.
Opnunarþrýstings var getið í þriðjungi tilfella
(tafla III). I um helmingi þeirra var hann veru-
lega hækkaður (>300 mm H:0). Ekki var
munur á meðvitundarástandi sjúklinga með
hækkaðan þrýsting borið saman við eðlilegan.
Nær allir sjúklingar sem voru mældir reyndust
hafa lækkaðan glúkósa í mænuvökva (89%,
Mynd 3. Helstu einkenni heilahimnubólgu afvöldum N. men-
ingitidis og 5. pneumoniae meðal unglinga (> 16 ára) og
fullorðinna á íslandi 1975-1994.
n=83), hækkuð prótín (85%, n=86) eða fjölda
hvítra blóðkorna >100xl06/l (85%, n=90).
Þrjátíu og tveir þeirra sem mældir voru reynd-
ust vera með öll þessi þrjú gildi brengluð. Ein-
ungis einn sjúklingur hafði hvítkorn undir
„eðlilegu" gildi, <8xl06/l. Hlutfall N. meningi-
tidis sýkinga reyndist þar 53%, og S. pneu-
moniae 15%. Langflestir (86%) voru með yfir
Tafla III. Niðurstöður mœnuvökvarannsókna hjá unglingum og fullorðnum með heilahimnubólgu.
Opnunarþrýstingur (mm H20) n (%) Gramslitun n (%)
0-180 4 ( 12) Jákvæö 57 ( 56)
181-300 12 ( 36) Neikvæð 44 ( 44)
>300 17 ( 52)
Alls 33 (100) 101 (100)
Hvít blóðkorn
(x106/I) Ræktun mænuvökva
0-100 16 ( 15) Jákvæð 90 ( 80)
101-10000 69 ( 65) Neikvæð 23 ( 20)
>10000 21 ( 20)
Alls 106 (100) 113 (100)
Kleyfkyrnd hvítkorn (%) Blóðræktun
0-20 2 ( 2) Jákvæð 65 ( 58)
21-80 10 ( 12) Neikvæð 48 ( 42)
>80 71 ( 86)
Alls 83 (100) 113 (100)
Glúkósi (mmól/l) Prótín (g/l)
0.5-2.8 10 ( 11) <0.5 15 ( 15)
<0.5 83 ( 89) >0.5 86 ( 85)
Alls 93 (100) 101 (100)