Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1995, Síða 29

Læknablaðið - 15.08.1995, Síða 29
RIMARIX móklóbemíð Rimarix er áhrifaríkt íslenskt geðdeyfðarlyf af flokki RIMA-lyfja (reversible inhibitors of monoamine oxidase-A). Ánægjulegir kostir: • Islensk framleiðsla. • Þrír styrkleikar, m.a. 300 mg töflur. • Fylgiseðill á íslensku með hverri pakkningu. • Heimilt að ávísa allt að 100 daga skammti. Framleiðandi: Lyfjaverslun íslands hf.. Borgartúni. 105 Reykjavík Nafn sérlyfs: Rimarix TÖFLUR: N 06 A G 02 Hver tafla inniheldur: Moclobemidum INN 100 mg, 150 mg eða 300 mg. Eiginleikar: Móklóbemíð er geðdeyfðarlyf af flokki nýrra MAO-blokkara (RIMA, reversible inhibitor of monoamine oxidase-A) sem blokka mónóamínoxidasa A (MAO-A), sérhaeft og afturkræft. Lyfið veldur því að styrkur noradrenalíns, dópamíns og serótóníns eykst, þar sem umbrot þessara efna minnkar. Þar sem móklóbemíð blokkar MAO-A afturkræft eru ekki taldar líkur á blóðþrýstingshækkun vegna milliverkana við týramín. Aðgengi lyfsins við langtímanotkun er allt að 90%. Blóðþéttni naer hámarki um I klst. eftir inntöku, dreifingarrúmmál er nálaegt 1,2 l/kg og próteinbinding í plasma er um 50%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst. og lengist lítillega með vaxandi skömmtum. Umbrot er háð skömmtum og lyfið oxast naer algjörlega í óvirk umbrotsefni, sem skiljast út í nýrum. Ábendingar: Geðdeyfð, aðallega innlaeg geðdeyfð. Erfið eða langvarandi útlaeg geðdeyfð. * Frábendingar: Bráð ruglun (confusio mentis). s Meðganga og brjóstagjöf. Ofstarfsemi skjaldkirtils. Pheochromocytoma. Samtímis í notkun selegilíns. Ofnaemi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Aukaverkanir: Algengar (>l%): Svimi, höfuðverkur, ógleði, niðurgangur og svefntruflanir. Sjaldgæfar(< 1%): Slappleiki, blóðþrýstingslaekkun, bjúgur, breytingar á bragðskyni, lystarleysi, meltingartruflanir, munnþurrkur, rugl og óróleiki. Milliverkanir: Milliverkun við týramín hefur ekki klíníska þýðingu, en þó er maelt með því að lyfið sé tekið inn eftir mat. Címetidín haegir verulega á umbroti móklóbemíðs og því getur þurft að minnka móklóbemíð skammta við samtímis gjöf þessara lyfja. Móklóbemíð eykur áhrif íbúprófens og morfínlíkra lyfja og getur aukið áhrif adrenvirkra lyfja. Hefja má meðferð með öðrum geðdeyfðarlyfjum (m.a. þríhringlaga lyfjum) strax og notkun móklóbemíðs hefur verið haett og öfugt. Varúð: Minnka þarf skammta hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Sjálfsmorðshneigð getur aukist í upphafi meðferðar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er 300 mg á dag, venjulega gefið í 2-3 skömmtum. Ef þörf þykir má auka skammtinn í 600 mg á dag, en þó ekki fyrr en sjúklingurinn hefur tekið lyfið í I viku, þar sem aðgengi lyfsins eykst á fyrstu dögum meðferðar. Venjuleg lengd meðferðar er 3-6 mánuðir. Þegar árangur kemur í Ijós má minnka skammtinn. Taka skal lyfið inn eftir máltíð. Sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi skal gefa minni skammta. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Pakkningar og verð l.7.'95: 100 mg töflun 30 stk. 2.116 kr. / 100 stk. 5.9l6kr. 150 mg töflur 30 stk. 2.678 kr. / 100 stk. 7.997 kr. 300 mg töflur 30 stk. 4.523 kr. / 100 stk. 13.412 kr. Afgreiðslutilhögun: R Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: B

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.