Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 45

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 45
SCHERING GYNERA INNIHELDUR GESTODEN OG STJÓRNAR ÞVÍ TÍÐAHRINGNUH BETUR EN FLESTAR AÐRAR EINFASA P-PILLUR Gynera (Schering, 870100) Töflur: G 03 A A 10. Hver tafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 30 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Eiginleikar: Hormónablanda til getnaðarvarna með lágum östrógenskammti. Bæðí efnin frásogast vel frá meltingarvegi. Þau umbrotna í lifur að hluta til við fyrstu umferð. Aðgengi etinýlöstradíóls er um 45%, en gestodens um 80%. Utskiljast með þvagi og saur. Lyfið kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos, hindrar festingu eggs við legslímhúð og breytir eiginleikum slíms í leghálsopi. Abendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfir eykur storknunartil- hneigingu blóðs, á ekki að gefa lyfið konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tiðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, migrene, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa i pilluhvild. Varúð: Konum sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarna- taflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga i blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtils- hormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á I. degi tíðabæðinga og þá er tekin ein tafla á dag i 21 dag samfleytt á sama tima sólarhringsins. Síðan er 7 daga hlé áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Pakkningar: 21stk. x l(þynnupakkað); 2 Istk. x 3(þynnupakkað). Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð. Heimildir: I. M.J. Rosenberg, MD and S.C. Long, Oral contraceptives and cyde control: A critical review of the literature. Advances in Contraception: 1992:8 (Suppl. I) [:35—45]. 2. Brill, K. et al. The influence of different modern lowdose oral contraceptive in intermenstual bleeding. Adv. Contracept. (1991): 7: Supp. 251-261. Verð: Febrúar 1995; 2lstk.x I kr. 643, 2 Istk. x 3 kr. 1733. I Stcfán riioramiscn

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.