Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1995, Síða 53

Læknablaðið - 15.08.1995, Síða 53
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 627 íðorðasafn Endaþarmsop Heitið anus er komið úr lat- ínu en hugmyndir um uppruna virðast ekki einhlítar og sumar lítt skiljanlegar. Vísað er í sans- krít þar sem sögnin as merkir að sitja og sögnin an merkir að anda eða blása. Læknis- og líf- fræðiorðabók Wiley’s rekur skyldleika til latneska orðsins animus, sem merkir andi, sál eða hugur. f>á er vísað til þess að latneska nafnorðið anus geti merkt hringur. Skilgreining læknisfræðiorðabókar Sted- man’s á anus er þessi: Neðra op meltingarvegarins, liggur í gluf- unni milli þjóhnappanna, en um það eru hœgðir losaðar. Lýsing- ar í líffærafræðibókum benda til þess að opið á endaþarminum sé hringlaga. Máltilfinning und- irritaðs er hins vegar á þann veg að rauf sé aflangt op á sama hátt og rifa eða glufa. Það er önnur mótbáran við heitinu bakrauf, en þriðja mótbáran er sú að endaþarmsop sé ekki á baki manns, heldur neðan baks. Bakrauf gæti verið ágætt heiti á glufu sem fram kemur á baki barns með klofinn hrygg, en undirrituðum finnst bakrauf ekki heppilegt orð til að tákna anus. Svipað má segja um rauf, en það notar íðorðasafnið einn- ig um fyrirbærin stoma og per- lækna 68 foration, og vísar það því ekki einhlítt í endaþarmsop. Uppruni I ritmálsskrá Orðabókar Há- skólans er ekki að finna önnur dæmi um heitið bakrauf, en það sem tekið var í síðasta pistli úr læknisfræðiheitum Guðmundar Hannessonar. Undirritaður fletti upp í þremur lækninga- bókum frá 19. öld og fann það ekki þar. í orðabók Eriks Jons- sonar frá 1863, Oldnordisk ord- bog, og bók Johans Fritzner frá 1886, Ordbog over det gamle norske sprog; er bakrauf ýmist þýtt sem rumpehul eða rygghul. Þess er getið að í Sturlungu megi finna viðurnefnið bakrauf og nefndur er þar Erlendur nokkur bakrauf. Þá er bakrauf uppflettiorð í Íslensk-Danskri orðabók Sigfúsar Blöndals frá 1920-1924 og er þar þýtt á dönsku með heitunum röv og endetarmsaabning. Augljóst er því að heitið er gamalt, en und- irrituðum virðist jafnaugljóst, að það hefur hvorki náð fótfestu í daglegu máli lækna né almenn- ings. Tillögur Hvað er þá til ráða? Best væri að fá stutt, helst ósamsett og merkingarlega hlutlaust heiti, sem læknar og sjúklingar gætu skilið og sætt sig við í daglegri notkun. Af samsettum heitum má nefna endaþarmsop, sem er auðskiljanlegt en fremur langt, að minnsta kosti ef miðað er við anus. Rassop er þá sýnu þægi- legra, en rassbora kemur einnig til greina. Rassbora hefur þó í hugum sumra leiðinlegan merk- ingarblæ, grófan eða barnaleg- an. Rassgat er lipurt og vel skilj- anlegt heiti, en oftast talið of ruddalegt. í Samheitaorðabók Svavars Sigmundssonar má finna ýmis heiti, sem nota mætti í samsettum orðum í staðinn fyrir rass; bossi, botn, daus, endi, gumpur, hlaun, rumpur, sitjandi og þjó. Ur þeim má búa til heiti eins og botnop, botngat, dausop, dausgat, endaop, enda- gat, þjóop, þjógat o.s.frv. Öll þau koma til greina, en smekk- ur og tilfinning geta ráðið því hver viðbrögð verða. Endagat er hliðstætt við endagörn, sem sumir nota sem heiti á rectum og dausgat er sömuleiðis lipurt ef menn geta sætt sig við að daus merki rass. Enginn Salómons- dómur verður kveðinn upp hér, en læknar eru vinsamlega beðn- ir um að gera tilraunir með notkun þessara orða til að finna hvað best hæfir. Jóhann Heiðar Jóhannsson

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.