Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 28
740 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 skýra ekki öll tilfelli og því hefur leitinni að nýjum skýringum verið haldið áfram. Fjöldi rannsókna bendir til að hækkuð tHcy sé ein slíkra skýringa. Sífellt fjölgar greinum sem birtast um efnið og niðurstöðurnar eru áber- andi samhljóða. Ekki skiptir máli hvaða erfðagalli liggur að baki hómósystínmigu; heilkenninu fylgir bæði feykihá tHcy og mjög aukin hætta á æðasjúk- dómi. Ennfremur virðist meðferð sem lækkar tHcy draga úr hættunni á fylgikvillum æða- kölkunar hjá þessunt litla sjúklingahópi (76). Ekki leikur lengur nokkur vafi á tengslunr vægrar hækkunar á tHcy við nýgengi fylgikvilla æðakölkunar. Ahættuaukningin samfara hækkandi tHcy gildi er samfelld og ekki hefur fundist neitt öruggt neðra þröskuldargildi, en það sama á við um kólesteról. Að baki þessum fullyrðingum liggja niðurstöður úr fleiri tugum rannsókna sem ýmist voru hannaðar sem þver- skurðar-, tillfella-viðmiðunarhóps- eða fram- skyggnar rannsóknir og sent langflestar sýndu sjálfstæði hækkaðrar tHcy sem áhættuþáttar. Líkt og gildir fyrir kólesteról er þekkingin á skaðlegum áhrifum hómósysteins á æðavegg vel samræmanleg æðakölkunarferlinu; klínísk- ar athuganir og dýratilraunir benda til að hómósystein valdi æðaþelsskemmdum og stuðli að blóðstorknun. Næsta skref í þekking- arleitinni er að kanna hvort lækkun á tHcy dregur úr fylgikvillum æðakölkunar. Þar lýkur samlíkingunni við þekkingu okkar á kólester- óli því sýnt hefur verið fram á gagnsemi lyfja- meðferðar sem lækkar kólesteról á sannfær- andi hátt (126,127) en engar niðurstöður liggja fyrir um áhrif tHcy-lækkandi meðferðar. Mörgum spurningum varðandi hómósystein er ósvarað. Rannsóknir beinast að flestu því sem að hómósysteini lýtur en mestu varðar að komast að hvort fólínsýrumeðferð dregur úr framvindu æðakölkunar og blóðsegamyndun- ar. Til að sýna fram á slík áhrif þarf stórar framskyggnar meðferðarrannsóknir sem fylgja þróun æðabreytinga og nýgengi fylgikvilla í langan tíma. Mikið hefur verið fjallað um nauðsyn þannig rannsókna (128-130) enda er meðferðin sem um ræðir ódýr og áhrifarík. Ef fólínsýrumeðferð reynist draga úr sjúkleika og dánartíðni vegna æðasjúkdóma mun meðferð væntanlega fyrst og fremst koma einstakling- um með hækkaða tHcy til góða. Athyglin hef- ur líka beinst að þeim möguleika að auka fólín- sýruneyslu heilla þjóða til dæmis með því að fólínsýrubæta kornmeti enda þarf ekki stóran skammt til að ná verulegri lækkun á tHcy. Á þann hátt má líka fyrirbyggja fósturmænu- skaða af völdum fólínsýruskorts hjá mæðrum (131,132). í janúar 1998 verður farið að fólín- sýrubæta mjöl í Ameríku en þær framkvæmdir hafa verið kallaðar stærsta tilraun sögunnar (133). í þessu sambandi hafa mögulegar auka- verkanir fólfnsýru verið dregnar fram í dags- ljósið (134). Greinar sem birst hafa um auka- verkanir fólínsýru hafa í mörgum tilfellum fjallað um rannsóknir án samanburðarhópa eða lýst einstökum tilfellum (134). Þó virðist mega draga þá ályktun af fyrirliggjandi niður- stöðum að við lágskammtameðferð sé ekki ástæða til að hafa áhyggjur af öðru en seinkun á greiningu vítamín B12 skorts (134). Rétt er að minnast á rannsóknarniðurstöður sem vakið hafa spurningar. Ekki hefur tekist að skýra á viðunandi hátt sterkt samband tHcy og ýmissa viðurkenndra áhættuþátta æðakölk- unar, sem fram kom í stórri norskri athugun (96). Einfaldasta skýringin er að sjálfsögðu sú að æðakölkun valdi hækkun á tHcy en ekki öfugt. Sú skýring gengur hins vegar í berhögg við þunga sannanabyrði, einkum niðurstöður framskyggnra rannsókna. TT arfgerð meþýl- entetrahýdrófólat redúktasa fylgir minnkuð hvatavirkni og hækkuð tHcy einkum ef fólín- sýrustyrkur er í lægra lagi (87). Ef hómósystein stuðlar að æðakölkun hefði mátt búast við að arfgenga breytingu sem þessa væri oftar að finna meðal fórnarlamba æðakölkunar. Ekki hefur tekist að sýna fram á að svo sé. Hins vegar hafa upplýsingar um tHcy og/eða fólín- sýrustyrk ekki alltaf fylgt upplýsingum um arf- gerð og því mögulegt að nægjanlegar fólínsýru- birgðir hafi dregið úr áhrifum TT arfgerðar á tHcy. Þörf er á ítarlegri rannsóknum á þýðingu TT arfgerðar. Flestar rannsóknir á tengslum nýrnabilunar og hómósysteinbúskapar hafa beinst að sjúk- lingum með langt gengna nýrnabilun (36). Það er ástæða til að kanna þessi tengsl á breiðari grundvelli því tHcy hækkar snemma í nýrnabil- un. Skert nýrnastarfsemi er algeng meðal æða- kalkaðra (73) og gæti að einhverju leyti skýrt hækkaða tHcy hjá þessum markhópi hómó- systeinrannsókna. tHcy blóðskilunarsjúklinga sýnir viðnám gegn fólínsýrumeðferð (124). Hugsanlega gildir sama fyrir einstaklinga með vægari skerðingu á nýrnastarfsemi. Þessi hóp- ur gæti því verið erfiðari í meðferð en þeir sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.