Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 40
752 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 bundna vanmatið 0,5-0,9 dagar sem vitað var um í formúlu Persson og Weldner (1,3) og bún er að öðru leyti eins rétt og sú fyrri. Lagt er til að breytt verði urn stuðul hér á landi og að vinnuformúlan verði; Meðgöngulengd (í dögum) = BPD x 1,2 + FL x 1,00 + 50,5. Ef deilt er í með 7 fást vikur og dagar taldir í broti af 10, sem breyta þarf í brot af 7. Lagt er til að það megi gera þannig að til dæmis 18,1 teljist 18 vikur og einn dagur (skrifað 18+1 vika), 18,2 eða ,3verðil8 vikurog2dagar, 18,4 verði 18 vikur og 3 dagar, 18,5 verði 18 vikur og 4 dagar, 18,6 eða ,7 verði 18 vikur og 5 dagar og 18,8 eða ,9 verði 18 vikur og 6 dagar. Þessi nýja reikniaðferð hefur nú þegar verið tekin í notkun á kvennadeild Landspítalans. Mælt er með að aðrir ómskoðunarstaðir á landinu breyti einnig sinni aðferð. Nánar er fjallað um mat á meðgöngulengd í ýtarlegri yfirlitsgrein eftir undirritaðan (6). Nýleg rannsókn sem gerð var í Svíþjóð og Danmörku og birtist í lok síðasta árs (7) hefur einnig leitt til lítilsháttar breytinga á mati á vaxtarfráviki síðar í meðgöngunni. Miðað hef- ur verið við að eitt staðalfrávik í vexti jafngildi ±11% af meðalþyngd barna in utero á hverjum tíma meðgöngunnar og tvö staðalfrávik væru því ±22%. í þessari nýju rannsókn fannst að staðalfrávikið er ±12% og tvö staðalfrávik jafngilda því ±24%. Þetta er einnig aðeins nær niðurstöðum eldri rannsókna á fæðingarþyngd sem hafa sýnt staðalfrávik fyrir fæðingarþyngd sem er hið sama fyrir allan síðasta þriðjung meðgöngunnar eða um 18% (8). Staðalfrávikið verður hinsvegar alltaf þrengra (12% í stað 18%) þegar reiknað er út frá mælingum á fóstr- um sem enn eru í legholi og teljast heilbrigð, heldur en þegar öll fædd börn eru talin (18%). í síðara tilvikinu breikkar staðalfrávikið óhjá- kvæmilega vegna fæddra barna með vaxtar- seinkun og fyrirbura. Lagt er til að 12% frávik í ómmælingum á vexti in utero (og margfeldi af því, til dæmis 24%, 36% og 48 %) verði notað í stað 11% til þessa, enda hefur verið breytt um í þessa veru í Svíþjóð. Áður var sýnt í íslenskri rannsókn að tölur um fósturvöxt hér eru mjög svipaðar og í Svíþjóð og öðrum Norðurlöndum og sömu reikniaðferðir á fósturvexti og þar eru notaðar má viðhafa hér (9). Þó munurinn í báðurn tilvikunum sem hér eru rædd sé lítill, þá er betra að hafa það sem sannara reynist. HEIMILDIR 1. Persson PH, Weldner BM. Reliability of ultrasound fe- tometry in estimating gestational age in the second tri- mester. Acta Obstet Gynecol Scand 1986; 65: 481-3. 2. Geirsson RT. Leiðbeiningar um ómskoðun á meðgöngu. Læknablaðið/Fréttabréf lækna 1987; 5 (3): 12-3,15. (Ljós- mæðrablaðið 1986; 64: 170-4). 3. Geirsson RT, Have G. Comparison of actual and ultra- sound estimated second trimester gestational length in in-vitro fertilized pregnancies. Acta Obstet Gynecol Scand 1993; 72: 344-6. 4. Mul T, Mongelli M, Gardosi J. A comparative analysis of second trimester ultrasound dating formulae in pregnan- cies conceived by artificial reproductive techniques. Ul- trasound Obstet Gynecol 1996; 8: 397-402. 5. Ágústsson T, Geirsson RT. Mires G. Obstetric outcome of natural and assisted conception twin pregnancies is similar. Acta Obstet Gynecoi Scand 1997; 76: 45-9. 6. Geirsson RT. Ultrasound: the rational way to determine gestational age. Fetal Maternal Med Review 1997. In press, 1997. 7. Marsál K, Persson PH, Larsen T, Lilja H, Selbing A, Sultan B. Intrauterine growth curves based on ultrason- ically estimated foetal weights. Acta Paediatr 1996; 85: 843-8. 8. Dunn PM. A perinatal growth chart for international reference. Acta Paediatr Scand 1985; Suppl. 319: 180-7. 9. Geirsson RT, Hreinsdóttir M, Sigurbjörnsdóttir GB, Persson PH. Fósturvöxtur íslenskra einbura. Læknablað- ið 1990; 76: 405-10.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.