Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 36
748
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Stuttgrein
Þyngd skjaldkirtils í íslendingum
Niöurstöður úr 197 réttarkrufningum
Sigurður E. Þorvaldsson'1, Hrafn Tulinius21, Ólafur Bjamason2'3’
Þorvaldsson SE, Tulinius H, Bjarnason Ó
The wcight of the thyroid in Icelanders. A study
bascd on 197 accidentally dead individuals
Læknablaðið 1997; 83: 748-50
Objective: The objective of the present study was to
ascertain whether the weight of the thyroid gland
had increased in comparison with older studies. The
thyroid in Icelanders has been considered small, an
opinion based on two different studies, one from
1939 and the other from 1967-1976.
Material and methods: The thyroids of 197 individu-
als who died accidentally in the period from March
1984 to September 1985. The thyroids were weighed
fresh.
Conclusion: The weight of the thyroid in Icelanders
has increased. In this study no attempt was made to
speculate on what might be the most likely cause for
the increased weight of the thyroid in Icelanders.
Keywords: thyroid, weight.
Ágrip
Tilgangur: Markmið rannsóknar var að
kanna hvort breyting hefði orðið á þyngd
skjaldkirtils í íslendingum miðað við fyrri
rannsóknir. Skjaldkirtill í Islendingum hefur
Frá '’handlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Foss-
vogi, 2,Krabbameinsskrá, Krabbameinsfélagi íslands,
3)Rannsóknastofu Háskóla íslands í réttarlæknisfræði.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sigurður E. Þorvaldsson hand-
lækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Fossvogi, 108
Reykjavík.
Lykilorð: skjaldkirtill, þyngd.
verið talinn fremur lítill og er þá oftast vitnað
til tveggja rannsókna, annars vegar frá árinu
1939 og hins vegar frá árunum 1967-1976.
Efniviður og aðferðir: Skjaldkirtlar 197 ein-
staklinga sem dóu skyndidauða á tímabilinu
mars 1984 til september 1985 voru vegnir fersk-
ir.
Niðurstaða: í þessari rannsókn reyndist
meðalþyngd skjaldkirtils í körlum 19,56
grömm en 16,25 grömm í konum sem er þyngra
en niðurstöður fyrri rannsókna gáfu til kynna.
Alyktun: Skjaldkirtill í Islendingum hefur
stækkað. í þessari rannsókn var ekki gerð nein
tilraun til þess að kanna eða meta hverjar væru
líklegastar orsakir þess að skjaldkirtill í íslend-
ingum hefur stækkað.
Inngangur
Rannsóknir hafa sýnt að skjaldkirtill í ís-
lendingum er fremur lítill. I Grays Anatomy er
þyngd skjaldkirtils sögð 30 grömm (1) en í
doktorsritgerð sinni frá 1939 telur Júlíus Sigur-
jónsson meðalþyngd skjaldkirtils vera 13,98
grömm í körlum og 11,58 grömm í konum (2). í
grein um niðurstöður krufningsrannsókna
sinna 1967-1976 telur Baldur Johnsen meðal-
þyngd nokkru hærri eða 16,5 grömm í körlum
og 14,25 grömm í konum (3). Júlíus og Baldur
útilokuðu suma kirtla vegna þyngdar en not-
uðu ekki sömu viðmiðunarþyngd í útreikning-
um sínum. Júlíus segir einnig að langvinnir
sjúkdómar eða bráðir smitsjúkdómar skömmu
fyrir andlát kunni að hafa áhrif á þyngd kirtils
og að „... réttasta leiðitt að saftta tölfrœðilegum
upplýsingum um eðlilega (normal) þyngd
skjaldkirtils vœri að nota aðeins skjaldkirtla frá