Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
749
Table I. Weighl of male and female thyroid glands (in grams) in 197 consecutive legal aulopsies 1984-85.
Age Males Female
No. Min. Max. Mean No. Min. Max. Mean
01-04 2 2.8 3.5 3.15 0 0 0 0
05-09 0 0 0 0 1 3.5 3.5 3.5
10-14 2 10.8 11.1 10.95 0 0 0 0
15-19 8 11.5 27.8 15.90 1 7.5 7.5 7.5
20-29 18 12.4 24.8 17.55 1 20.3 20.3 20.3
30-39 22 11.7 28.9 19.39 2 13.9 15.8 14.85
40-49 17 13 37.2 19.91 6 10.1 28 17.40
50-59 28 12 52 19.50 8 7.4 19 13.33
60-69 29 8.9 62.5 19.57 12 7.6 71.8 15.05
70-79 21 10 36 19.48 8 5.4 20 12.83
80-89 11 9 27.8 16.44 0 0 0 0
10-19 10 10.8 27.8 14.91 1 7.5 7.5 7.5
20-79 135 8.9 62.5 19.56 37 5.4 71.8 16.25
skyndidauðum en slík tilfelli í mínum efnivið
eru aðeins tiltölulega fá.... “ (2)
Efniviður og aðferðir
Skjaldkirtlar frá öllum réttarkrufningum
sem gerðar voru á Rannsóknastofu Háskóla
íslands í réttarlæknisfræði á 18 mánaða tíma-
bili, frá mars 1984 til september 1985, voru
vegnir ferskir. Tveir meinatæknar sáu um vikt-
un kirtlanna.
Engum kirtli var sleppt úr rannsókninni
vegna þyngdar eingöngu, en í fyrri tveimur
rannsóknum á þyngd skjaldkirtils í íslending-
um höfðu kirtlar yfir tiltekin efri þyngdarmörk
verið útilokaðir (2,3). Tveir kirtlar voru útilok-
aðir úr rannsókninni vegna fyrri skurðaðgerð-
ar og geislunar, það láðist að skrá þyngd
tveggja kirtla þannig að úr 201 krufningu feng-
ust 197 kirtlar til rannsóknarinnar. íbúafjöldi á
landinu var 240.443 þann 1. desember 1984.
Niðurstöður
Rannsóknin sem hér er gerð grein fyrir
byggir á 197 réttarkrufningum sem fram-
kvæmdar voru á tímabilinu frá mars 1984 til
september 1985. Allir skjaldkirtlarnir voru
vegnir ferskir. Meðalþyngd skjaldkirtils hjá
fullorðnum (20-79 ára) reyndist 19,56 grömm í
körlum og 16,25 grömm í konum. Um var að
ræða 135 karla og 37 konur á aldrinum 20-79
ára. Þyngd skjaldkirtils hjá einstökum aldurs-
hópum svo og heildarniðurstöður sjást á töflu
I.
Umræða
Rannsóknin sem hér er gerð grein fyrir sýnir
nokkra þyngdaraukningu skjaldkirtils í íslend-
ingum frá því sem Júlíus Sigurjónsson fann í
sinni rannsókn 1939. Niðurstöður úr rannsókn
Júlíusar sýndu meðalþyngd skjaldkirtils í körl-
um 13,98 grömm og í konum 11,58 grömm.
Júlíus segist hins vegar útiloka alla kirtla sem
voru þyngri en 25 grömm „... þar sem þeir
voru greinilega óeðlilega stórir samkvœmt
dreifilínuriti“ (2). Sé sömu aðferð beitt eru
samsvarandi tölur í rannsókninni sem hér er
greint frá 17,57 grömm í körlum og 13,75
grömm í konum.
Baldur Johnsen byggir sínar tölur á krufn-
ingum á tímabilinu 1967-1976 og taldi meðal-
þyngd skjaldkirtils í körlum 16,5 grömm og
14,25 í konum en hann útilokaði alla kirtla yfir
40 grömm á þeim forsendum að það væri
samræmi við þá skoðun vísindamanna að við
þau þyngdarmörk lœgju skilin milli eðlilegra og
sjúklegra kirtla" (3). Sé beitt sömu aðferð og
Baldur notaði eru samsvarandi tölur í rann-
sókn okkar 18,95 grömm í körlum og 14,71
grömm í konum.
Niðurstöður rannsókna Júlíusar og Baldurs
eru sýndar í töflu II með samanburði við niður-
stöður sem fengjust úr þeim efniviði sem hér er
Table II. Studies on the weight of the thyroid gland in Icelanders. Present study within parenthesis.
Sigurjónsson 1939, <25 grams Johnsen 1967-1975, <40 grams
Males 13.98 g (17.57 g) Males 16.50 g (18.95 g)
Females 11.58 g (13.75 g) Females 14.25 g (14.71 g)