Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 50
758
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Guðrún Guðmundsdóttir varaformaður Félags ungra lækna
Langlundargeð okkar er þrotið
Ljósm. Lbl.
Langvinnt vinnuálag ung-
lækna, Iág grunnlaun og við-
bragðsleysi heilbrigðisyfirvalda
valda því að meginþorri ung-
lækna hefur sagt störfum sínum
lausum. „Á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur hafa 95% unglækna sagt
upp“, segir Guðrún Guðmunds-
dóttir varaformaður Félags
ungra lækna.
Guðrún er deildarlæknir á
heila- og taugaskurðdeild
Sjúkrahúss Reykjavikur í Foss-
vogi, en ástandið þar er ekkert
einsdæmi. Alls eru um 150 ung-
læknar starfandi í landinu; á
stóru sjúkrahúsunum tveimur í
Reykjavík, Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri og Sjúkra-
húsi Akraness. Á Akranesi hafa
allir sagt upp og unglæknar á
Akureyri eru að segja upp.
„Hver og einn læknir segir
upp á eigin forsendum“, segir
Guðrún, „en almenna ástæðan
er sú að við sjáum ekki fram á að
fá laun í nokkru samræmi við
vinnuframlag okkar eða að
vinnuálag minnki. Við erum
úrvinda eftir sumarið. Lokanir
deilda leiddu til innlagna á
ganga og gífurlegs álags á starfs-
menn. Það álag og áhugaleysi
stjórnvalda á því að bæta kjör
lækna eru þeir dropar sem fylla
mælinn."
Kjarasamningar sjúkrahús-
lækna hafa verið lausir í 10 mán-
uði og lítið hefur þokast. Fyrir
skömmu fór deilan til ríkissátta-
semjara en viðræður til þess
tíma skildu lítið áþreifanlegt
eftir, að sögn Guðrúnar.
En unglæknar hafa ekki ein-
göngu sagt upp, frá og með 1.
Guðrún Guðmundsdóttir.
desember ætla þeir ekki að
vinna meiri yfirvinnu en þeim
ber samkvæmt tilskipun EES
um vinnutímalengd, en íslensk
stjórnvöld hafa skuldbundið sig
til að virða þá tilskipun.
„Kjarasamningar okkar eru
þannig að okkur ber að vinna 90
yfirvinnutíma, sé þess þörf. Við
megum neita að vinna fleiri en
það er ekkert hámark á yfir-
vinnu. Það er enginn lögbund-
inn hvíldartími á sólarhring þó
svo við fáum svefndag eftir sól-
arhringsvaktir. Á Akranesi er
vaktaskipulag til dæmis þannig
að þar eru 80 stunda vaktir, frá
klukkan átta á föstudagsmorgni
til klukkan fjögur síðdegis á
mánudegi. Þetta er virkur
vinnutími aðra hverja helgi.“
Eftir að hafa unnið svona í fimm