Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83: 751-2 751 Fræðilegar ábendingar Breytingar á útreikningi meðgöngulengdar og mati á fósturvexti Reynir Tómas Geirsson Frá árinu 1986 hefur hér á landi verið mælt með notkun sænskrar aðferðar Persson og Weldner (1) ti! að reikna meðgöngulengd út frá ómskoðun við 18-19 vikna meðgöngu. Þvermál höfuðs á fóstri (biparietal diameter, BPD) og lengd lærleggs (femur length, FL) voru í rann- sókn þeirra mæld í nákvæmri athugun á 14 heilbrigðum konum með reglulega 28 daga tíðahringi og hjá öllum konunum var vitneskja um egglostíma út frá breytingum á lfkamshita. Formúla til að lýsa vexti fóstranna var reiknuð með aðhvarfsgreiningu og síðan sannreynd hjá 44 konum þar sem tæknisæðingu hafði verið beitt og hjá 2021 konu sem fór í ómskoðun við 16-17 vikna meðgöngu og fæddu án fæðingar- aðgerða af nokkru tagi. Formúlan til að reikna meðgöngulengd var: Meðgöngulengd (í dög- um) = BPD x 1,21 + FL x 1,02+ 49. Þessi formúla hefur verið notuð á Norðurlöndunum, þar með talið á íslandi (2), til að reikna með- göngulengd við 18-19 vikna skoðunina (frá um það bil 12 vikum upp í 22) með góðum árangri í nákvæmri forspár um hvenær barns væri að vænta. Hér sem annars staðar hefur hún reynst áreiðanleg og hefur gjörbreytt mati á með- göngulengd frá því sem áður var, þegar stuðst var við dagsetningu síðustu tíða, sem oft er ónákvæm. Formúlan er einföld í notkun og reikna má meðgöngulengdina með venjulegri vasatölvu með þessu móti. Að nota bæði þver- mál höfuðs og lengd lærleggs var best og bætti nákvæmni matsins lítillega umfram það að Frá fósturgreiningardeild (sónardeild) kvennadeildar Land- spítalans. nota aðeins þvermál höfuðs (1). Formúlan hafði kerfisbundna tilhneigingu til að vanmeta lengd meðgöngu um 0,57 daga, en í reynd skipti sá hálfi dagur engu meginmáli. Aðal- atriðið var að gott mat fékkst á meðgöngu- lengd og væntanlegum fæðingardegi og 95% öryggismörkin voru ±5-6 dagar. Formúlan var athuguð nokkru síðar á fóstrum sem höfðu orðið til við glasafrjóvgun og það var gert hér á landi (3). Sama nákvæmni fannst og hjá Pers- son og Weldner og kerfisbundið vanmat á lengd meðgöngu sást einnig. Það nam 0,86 dögum í rannsókn okkar. Nú hefur þessi sænska formúla og allar aðrar tiltækar formúlur verið endurmetnar í nýrri athugun frá Englandi (4) þar sem upplýsingar um 64 konur sem farið höfðu í glasafrjóvgun voru lagðar til grundvallar. Þessi athugun var vandlega gerð. Lagt var mat á áhrif hugsan- legra skekkjuvalda og þess að mælingar voru gerðar á tveimur stöðum. Enginn munur hefur fundist á börnum hvort sem getnaður var með náttúrulegum hætti eða tæknifrjóvgun (5). All- ar formúlurnar reyndust góðar til mats á með- göngulengd, en sama tilhneiging til vanmats fannst og áður. Vanmatið á sér orsakir í því hvernig heilar og hálfar vikur eru reiknaðar við úrvinnslu. Besta formúlan reyndist nauðalík formúlu Persson og Weldner, en stuðullinn (konstant) sem bætt er við í formúlunni er aðeins hærri og formúlan verður: Meðgöngu- lengd (í dögum) = BPD x 1,21 + FL x 1,00 + 50,5. Öryggismörkin voru svipuð því sem áður fannst (1,3). Með þessari nýju formúlu bætist rúmur einn dagur við útreikning meðgöngu- lengdar. Þessi formúla ætti því að laga kerfis-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.