Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 727 næmi (p<0,001). Einstaklingar með bráðaof- næmi (með jákvætt húðpróf fyrir einum eða fleiri ofnæmisvökum) og ofnæmissjúkdóma á borð við ofnæmiskvef, exem, ofsakláða og of- næmi fyrir mat töldu sig oftar hafa lyfjaofnæmi en aðrir (p<0,05). Meðalgildi (geometric mean value) E-ónæmisglóbúlíns (IgE) mældist 17,5 kU/L hjá þeim sem töldu sig hafa lyfjaof- næmi en 12,6 kU/L hjá þeim sem ekki töldu sig hafa lyfjaofnæmi (p=0,08). Langalgengustu einkennin tengd lyfjaof- næmi voru frá húð (ofsakláði, ofsabjúgur), en þar næst komu einkenni frá öndunarfærum. Hita nefndu 8%. Með símaviðtali náðist til 64 einstaklinga og þá fækkaði þeim um 13 sem í fyrstu töldu sig hafa lyfjaofnæmi. Þannig stóð eftir 51 eða 80%. Sýklalyf var sá flokkur lyfja sem oftast var talinn valda ofnæmiseinkennum en þar næst kornu svæfingarlyf, gigtarlyf og ópíumefni (opiates). Umræða: í könnuninni kom fram fylgni milli bráðaofnæmis, ofnæmissjúkdóma og lyfjaof- næmis. Meira en helmingi algengara var að konur teldu sig hafa lyfjaofnæmi en karlar. I þeirri einu sambærilegu rannsókn sem við fundum var tíðni ofnæmiseinkenna af lyfjum svipuð og hér á landi. Inngangur Algengt er að fólk telji sig hafa ofnæmi fyrir lyfjum. Kvartanir um lyfjaofnæmi eru af ýms- um toga, allt frá því að vera smávægileg óþæg- indi til lífshættulegra einkenna. Markmið rannsóknarinnar var: 1) að kanna hversu al- gengt það er að íbúar í þéttbýli á aldrinum 20-44 ára telji sig hafa lyfjaofnæmi, 2) að kanna hvaða einkenni og lyf tengdust meintu lyfjaofnæmi, 3) að kanna tengsl lyfjaofnæmis við ofnæmi og ofnæmissjúkdóma og 4) meta áhættuþætti. Með lyfjaofnæmi er átt við að lyf virkji ónæmiskerfið líkt og hver annar mótefnavaki og valdi ofnæmissvörun samkvæmt flokkun Gells og Coombs (1). Með lyfjaofnæmi er því ekki átt við almennar aukaverkanir af lyfja- gjöf. Hins vegar er aðeins minnihluti þess sem kallað er ofnæmi fyrir lyfjum raunverulegt of- næmi. Oftar eru einkennin það sem kalla mætti lyfjaóþol (drug intolerance) (2). Það ferli sem liggur að baki óþols er oft óljóst eða óþekkt. Því er erfitt að greina á milli þess og raunveru- legs ofnæmis, þar sem þessi ferli geta birst klínískt með sama hætti. Þessu til skýringar mætti taka lyfjaofnæmi vegna bráðaofnæmis. Bráðaofnæmi hefur áhrif á allan líkamann og kemur í kjölfar E-ónæmisglóbúlín (IgE) miðl- aðs ónæmissvars sem veldur losun virkra efna úr mastfrumum (1). Við lyfjaóþol verður einn- ig losun virkra efna úr mastfrumum. Henni er þó ekki komið af stað með ofnæmissvari held- ur með öðrum hætti, til dæmis beinum áhrifum lyfja á frumurnar (3). Þegar talað er um bráðaofnæmi (atopy) í þessari grein er átt við þann arfgenga eigin- leika að mynda E-ónæmisglóbúlín mótefni sem leiðir til ofnæmiseinkenna við það að snerta ofnæmisvaldinn. Hægt er að komast að því hvort einstaklingur sé með ofnæmi með því að gera á honum húðpróf með mismunandi of- næmisvökum. Húðin svarar með bólgu og roða (weal and flare reaction) ef prófið er jákvætt. Upplýsingar um ofnæmissjúkdóma (atopic dis- eases) fást einfaldlega með spumingum um þá sjúkdóma: það er barnaexem, ofnæmiskvef og astma. Ekki er hægt að sjá fyrir hverjir muni fá lyfjaofnæmi eða lyfjaóþol. Talið er að einstak- lingum með bráðaofnæmi eða ofnæmissjúk- dóma sé hættara við lyfjaofnæmi en öðrum (4,5). í því sambandi hefur sérstaklega verið bent á aukna tíðni ofnæmis fyrir svæfingarlyfj- um (6,7). Efniviður og aðferðir Fyrir sjö árum hófst fjölþjóðleg faraldsfræði- leg rannsókn sem hlaut nafnið Lungu og heilsa (8). Hér á landi svöruðu 1800 konur og 1800 karlar á aldrinum 20-44 ára, sem valin voru af handahófi, spurningalista varðandi lungna- sjúkdóma og ofnæmi (9). Einnig var 800 þátt- takendum sem valdir voru af handahófi úr 3600 manna hópnum, boðið til sérstakrar rann- sóknar sem framkvæmd var á Vífilsstaðaspít- ala árið 1991. Til þátttöku í þeim hluta rannsóknarinnar komu 570 einstaklingar (77% eða eru þeir 71%) er svöruðu umfangsmiklum spurninga- lista og á þeim voru gerð húðpróf, RAST próf, mæling á heildar E-ónæmisglóbúlíni, fráblást- ursmælingar (spirometri) og mæling á auð- reitni í berkjum með metakólínprófi (tafla I) (10). Þeir sem höfðu eina jákvæða svörun eða fleiri á húðprófi töldust hafa ofnæmi (10) og þeir sem lækkuðu >20% í FEVl (forced expir-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.