Fréttatíminn - 01.10.2010, Síða 4
Með tárin í augunum af álagi og reynsluleysi
Jón Gnarr útskýrir af hverju Besta flokknum finnst sjálfsagt að greiða laun vegna þeirra miklu vinnu sem varaborgarfulltrúar sinna.
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag
@frettatiminn.is
Reykjavík Besti flokkurinn
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
DR Gunni er umBoðsmAður neytendA ABendinGAr oG kvArtAnir: drGunni@centrum.is
Svona kapall var meira
en helmingi ódýrari hjá
Símabæ en Símanum, en
hækkaði svo um helming
við að vera sendur í
póstkröfu.
Fúl út í Póst og Síma
Sólveig er hvorki ánægð með Íslandspóst
né Síma. Hún skrifar: „Sem pirraður
neytandi veigra ég mér ekki við því að skipta
um þjónustuaðila ef mér þykir á mér brotið
og spara iðulega með því að leita lægsta
verðsins. Ég keypti mér nýlega gagnakapal
fyrir Sony Ericsson-síma sem kostar hjá
Símanum 3.990 krónur. Mér fannst það heldur
mikið og gerði því litla óformlega verðkönnun
á netinu. Það borgaði sig klárlega og ég fann
sama kapal hjá Símabæ á litlar 1.490 krónur.
Verandi ekki í höfuðborginni pantaði ég gripinn
í vefverslun Símabæjar og fékk hann sendan
í póstkröfu. Sendingarkostnaður kom mér þó
heldur betur á óvart þar sem ég fékk að borga
heilar 1.205 krónur í sendingarkostnað af
einu venjulegu umslagi af stærðinni A5 sem
náði ekki 50 g þyngd! Það mætti halda að
Pósturinn væru þarna að reyna að sporna við
viðleitni minni til að spara með því að kaupa
af samkeppnisaðila Símans, og ég sem hélt að
þetta væri ekki lengur eitt og sama fyrirtækið.“
Símabær (www.simabaer.is) hefur löngum
verið góður kostur og má mæla með þeirri
verslun. Það er dýrt að fá sent í póstkröfu.
Það kostar 500 krónur ofan á sendingargjald
sem alltaf er reiknað af einu kílói lágmark, alveg sama hvað
pakkinn er þungur. Þess ber þó að geta að hlutir sendir í
póstkröfu eru í ábyrgð. Sólveig hefði getað sparað meira
en þúsund kall hefði hún greitt kapalinn með korti og látið
senda sér hann í
venjulegum bréfapósti.
Slík sending kostar 75
krónur, en þá hefði
kapallinn reyndar ekki
verið sendur í ábyrgð.
Gunnar
Hjálmarsson
drgunni@centrum.is
4 fréttir Helgin 1.-3. október 2010
„Þegar við fulltrúar Besta flokksins
hófum störf fyrir borgina vissum við ekki
muninn á ráði og nefndum,“ segir Jón
Gnarr borgarstjóri. „Fólk réð sig í einhver
störf en hafði ekki hugmynd um hvort
greitt væri fyrir þau eða hvað þeim fylgdi
mikil vinna.“ Hann segir að fólk hafi orðið
kríthvítt í framan og fengið tár í augun af
álaginu.
„Því öll erum við venjulegt fólk og höf-
um aldrei komið neitt nálægt borgarmál-
um, ekkert af okkur. Þetta er svo nýtt fyrir
okkur öllum.“ Arkitektinn Páll Hjaltason,
fyrsti varaborgarfulltrúi flokksins, hafi til
að mynda tekið að sér ýmis störf án þess
að spyrja um laun. Besta flokknum finnist
sanngjarnt að borga fyrir unnin störf og
styðji því að laun fyrstu varaborgarfulltrúa
hafi verið færð í fyrra horf, eftir að hafa
verið lækkuð frá 1. júní.
Borgarfulltrúar Besta flokksins vissu
þó ekki að hækka ætti launin þegar það
var gert 17. september síðastliðinn. Það
kom þeim einnig á óvart að Hanna Birna
Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar,
gagnrýndi launahækkunina. Þeir töldu að
allir flokkar væru sáttir við að færa launin
í fyrra horf.
Jón skrifar samskiptaleysið milli Besta
flokksins og Samfylkingarinnar þennan
dag á eigin reikning og reynsluleysi full-
trúa Besta flokksins. „Dagur Bergþóruson
og Eggertsson er mikill indælismaður og
hefur verið okkur haukur í horni,“ segir
hann. „En ég ítreka að við erum engin
hliðardeild í Samfylkingunni – við erum
eiginlega svolítið annað.“
Viðtal við borgarstjóra á bls. 22-23
Jón Gnarr þvertekur fyrir að Besti flokkurinn sé
angi af Samfylkingunni. Ljósmynd/Hari
Umvafin þjónustu
Rekstrarþjónusta Skyggnis
Borgartúni 37 | 105 Reykjavík | Sími 516 1000 | skyggnir.is
Hafðu samband við söluráðgjafa Skyggnis til að fá frekari upplýsingar um rekstrar
þjónustu Skyggnis. Síminn er 516 1000 og netfangið: sala@skyggnir.is
Treystu okkur fyrir heildarrekstri tölvukerfa þinna og þú getur áhyggjulaus
tryggt viðskiptavinum þínum gæði og framúrskarandi þjónustu.
Við umvefjum þig þjónustu og pössum að tölvukerfi þín séu til reiðu þegar þú
vinnur og vökum yfir þeim þegar þú sefur.
Skyggnir - Rekstrarþjónusta án aukareikninga.
H
2
H
Ö
N
N
U
N
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og formaður nefndarinnar sem fjallaði
um hvort sækja ætti ráðherra við
hrunið til saka, liggur nú undir feldi
og íhugar. „Ummælin gagnvart mér
og nefndinni pirra mig,“ segir hann
hreinskilnislega.
„Kannski er rétt að þjóðin fái nú
tækifæri til að láta til sín taka og að
boðað verði til kosninga,“ segir Atli.
Trúnaður milli þingmanna Vinstri
grænna og leiðtoga Samfylkingar-
innar skaðaðist að hans sögn við
gagnrýni Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra á sig og nefndina
sem og af atkvæðagreiðslunni um
ákærurnar. Hefði ekki verið póli-
tískur vilji til að ákæra þingmenn,
hefði ekki átt að setja nefndina af
stað.
Spurður hvort hann gæti eftir
kosningar hugsað sér að setjast
aftur að stjórnarborðinu með Sam-
fylkingunni, vill hann ekkert um það
segja en nefnir þó að það séu ekki
miklir möguleikar í stöðunni nú.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
segir alþingiskosningar ekki tíma-
bærar þótt Atli og nefndin hans hafi
verið gagnrýnd: „Þetta var, eins
og alþjóð veit, okkur öllum erfið
ákvörðun og erfitt mál að fjalla um
og afgreiða. Nú er það að baki. Þá er
ekki annað að gera en að taka okkur
saman í andlitinu og taka til við að
sinna verkefnunum sem bíða.“ Hún
segir að Samfylkingin hafi allan
tímann búið við hótanir þingmanna
Vinstri grænna um að komið sé nóg.
„En við erum í þessu stjórnarsam-
starfi með ákveðinn stjórnarsátt-
mála og enginn er af baki dottinn í
hópi Samfylkingarinnar.“
Alþingi í sárum
Rafmagnað andrúmsloft er á þingi
og það er í sárum eftir að ljóst varð
að Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, yrði einn af fjórum
ákærður fyrir landsdómi vegna
hrunsins.
„Reiði sjálfstæðismanna beinist
að Samfylkingarþingmönnum,“
segir Atli, og þótt Einar Kristinn
Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki, hafi
neitað því að samkomulag hafi verið
milli flokkanna um að greiða ekki at-
kvæði með því að ákæra ráðherrana
fyrrverandi, telur Atli enn að svo
hafi verið: „Allavega voru sjálfstæð-
ismenn pollrólegir og vissir um að
allt yrði fellt, en þegar það var ekki
gert spratt þessi mikla reiði upp.“ Þá
segir hann að sjálfstæðismenn séu
reiðir framsóknarmönnunum Siv
Friðleifsdóttur og Birki Jóni Jóns-
syni. Hún vildi ekki tjá sig og ekki
náðist í hann.
Ósæmilegar dylgjur
Þórunn er óhress með mat Atla:
„Mér finnst þetta ósæmilegar dylgj-
ur. Það lá fyrir í upphafi að hver og
einn einasti myndi vega og meta
einn og sjálfur hvernig hann eða
hún greiddi atkvæði og þannig var
það. Við vissum í raun ekki hvernig
málið lá fyrr en daginn sem það var
afgreitt.“
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, aftekur einnig að samkomulag
hafi verið milli flokkanna. Allir hafi
reynt að kortleggja stöðuna, ekki
síst Vinstri grænir. Hins vegar segir
hún að sjálfstæðismenn séu sárir og
reiðir og að trúnaðarbrestur sé milli
Sjálfstæðisflokks og margra.
Þingið rúið trausti, vilja kosningar
„Ég ber ekki mikið traust til Atla
Gíslasonar. Það hefur komið fram í
máli okkar þingmanna að við erum
afar hugsi og reið yfir þessum
málalokum. Mér finnst þessi niður-
staða vera þinginu og Atla til minnk-
unar. Málið er allt hið ömurlegasta,“
segir Ragnheiður Elín. Ótækt sé
að höfða málið gegn einum manni.
Hún sé mest hissa á því að ekki hafi
verið gerð krafa um að málið yrði
endurflutt. „Ég er algjörlega á því
að við ættum að ganga til kosninga,“
segir hún.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, vill
einnig kosningar og segir Alþingi
rúið trausti: „Ég er ekki viss um
að Alþingi fái traustið að nýju með
kosningum. Það verður ekki nema
með betri stöðu heimila.“ Vinna
verði að því.
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksfor-
maður Hreyfingarinnar, vill einnig
kosningar þar sem Alþingi ráði ekki
við landsdómsmálið. Alþingi þurfi
að vera leitt af fólki sem almenn-
ingur vilji að leiði það.
„Ég kalla eftir því að fólk hætti að
vera mýs og sýni manndóm. “
Ákall á kosningar
alþinGi Atli GíslAson huGleiðir
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, hugleiðir hvort komið sé að því að boða til kosninga.
Ekki spurning, segja Birgitta Jónsdóttir úr Hreyfingunni.