Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 6
L itla syni Þórunnar Gísladóttur og Þórarins Arnars Sævars-sonar lá á að komast í heim-
inn um miðjan ágúst. „Ég kenndi
mér smá meins um sexleytið að
morgni og hugsaði með mér að nú
væri ég komin af stað. Ég hringdi
upp á fæðingardeild og var spurð
hver tíminn væri á milli hríða. Ég
lagði á og ætlaði að mæla tímann en
sofnaði,“ segir Þórunn.
„Ég vaknaði nálægt hálf sjö og þá
fórum við að huga að því að koma
dóttur okkar í pössun. Við hringdum
í vin okkar og báðum hann að koma.
Við ætluðum svo í rólegheitum upp
á spítala. Ég fann hins vegar fljótt
að ég gat lítið hreyft mig og bað um
sjúkrabíl. Þá áttaði ég mig á því að
hríðirnar yrðu ekki fleiri en þessi
eina klukkan sex. Nú var ég farin að
rembast.“
Biðu eftir andardrættinum
Dóttir þeirra, Alexandra Björk
tæplega fimm ára, vaknaði á þess-
ari stundu ogt skreið upp í fangið
á pabba sínum sem var í óðaönn
að taka á móti syninum. „Hún stóð
sig vel þótt hún hræddist hljóðin í
móður sinni.“ Bjallan hringdi og litla
stúlkan stökk upp til að hleypa vini
þeirra hjóna inn og hrópaði: „Ekki
fara á neðri hæðina. Þar er svo mik-
ill hávaði.“ Hlutirnir gerðust hratt og
litli drengurinn kom í heiminn rétt
fyrir klukkan sjö að morgni, sautján
merkur og 54 sentimetrar á lengd,
eftir um fimmtán mínútna átök.
„Ég leit út um gluggann. Sólin var
að koma upp og veðrið var yndis-
legt. Þetta var svo falleg stund,“ seg-
ir Þórunn. „Mér leið vel. Það greip
mig engin hræðsla við að eignast
hann svo óvænt heima þótt reynslan
hafi vissulega verið sérstök. En ég
viðurkenni að alveg fram á síðustu
mínútu var ég á leiðinni upp á spítala
að eignast hann.“
Þórarinn maður hennar segir
tvennt ólíkt að taka á móti barninu
sínu eða vera áhorfandi að fæðing-
unni. „Ég lagði meira af mörkum
í þetta sinn. Þessi reynsla er svo
dýrmæt og í hana nælir maður ekki
allajafna þótt maður svo gjarna vildi.
Eftir á að hyggja mæli ég nú heldur
með heimafæðingu en spítalafæð-
ingu fyrir heilbrigð börn. Við vorum
laus við allt rót. En ég verð nú samt
að segja að ef eitthvað hefði komið
upp á hefði ekki verið gott að vera
einn.“
Þau hjónin segja að eina stundin
sem þau hafi fundið til ótta hafi verið
þegar drengurinn var fæddur og
ekkert heyrðist í honum. „Þá varð
hver sekúnda löng,“ segja þau bæði
og Þórunn bætir við: „Ég var þó ekki
alveg meðvituð um þetta; var enn að
ná andanum eftir þessa reynslu og
heyrði þá manninn minn segja að
ekkert heyrðist í honum – en svo
kom það.“
Þórunn fékk litla drenginn í fang-
ið og hann tók strax brjóst. Þá höfðu
þau hjónin ekki klippt á naflastreng-
inn. „Við höfðum engan aðbúnað til
þess, en í því komu sjúkraflutninga-
menn heim og hjálpuðu okkur.“ Litli
drengurinn fær nafnið Arngrímur
Flóki eftir rúma viku.
Fæddist sjálf á ógnarhraða
Þórunn segir að enginn hafi búist
við því að sonurinn kæmi svo hratt í
heiminn þótt hún hafi nú ekki getað
útilokað það, þar sem hún sjálf kom
í heiminn með hraði snemma á átt-
unda áratugnum. „Mamma var að
ryksuga stofuna í Sólheimum 24 og
sjúkraflutningamennirnir voru rétt
komnir og náðu að taka á móti mér
þegar ég skaust í heiminn.“
Þórunn útilokar ekki skipulagða
heimafæðingu eftir þessa einstöku
upplifun en það gerði hún áður.
Spurð um viðbrögð vinkvennanna
segir hún brosandi að þær tali um
drenginn sem sápustykkið en bætir
svo við: „Ein vinkona mín sagði nú
við mig að þetta væri yndisleg saga
sem myndi fylgja fjölskyldunni alla
tíð.“
LÖGREGLAN fJÁRSVIKAMÁLSígildar
gerSemar
Hundrað ára einSemd
eftir Gabriel García Márquez
í þýðingu Guðbergs Bergssonar
lér konungur
eftir William Shakespeare
í nýrri þýðingu Þórarins Eldjárns
Verk sem allir ættu
að eiga, lesa og njóta!
www.forlagid.is Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
FóLksFjÖLGuN HeIMAfæðInG
6 fréttir Helgin 1.-3. október 2010
Fæddi barn á fimmtán
mínútum í heimahúsi
Þórunn Gísladóttir fæddist með hraði í Sólheimunum í Reykjavík á áttunda áratugnum. Nú í
haust fékk hún að upplifa hvernig móður hennar leið þegar hún fæddist, því eftir eina hríð og
þrjá rembinga var sonur hennar kominn í heiminn, heima og í hendur föður síns.
Fæðing Arngríms Flóka
verður greipt í minni
fjölskyldunnar. Hann
fæddist heima og tók
Þórarinn faðir hans á
móti honum. Hér er litli
snáðinn með móður
sinni Þórunni og systur
Alexöndru Björk.
Ljósmynd/Hari
Þessi reynsla er svo
dýrmæt og í hana
nælir maður ekki alla-
jafna þótt maður svo
gjarna vildi
Steingrímur Þór Ólafsson var
handtekinn í Venesúela á mánudag
grunaður um aðild að stórfelldu fjár-
svikamáli þar sem um 270 milljónir
króna voru sviknar út úr ríkissjóði
með tilhæfulausum endurgreiðslum
á virðisaukaskatti. Málið er talið
tengjast fíkniefnaviðskiptum á ein-
hvern hátt.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lög-
maður gætir hagsmuna Steingríms
og hann telur handtökuna ytra hafa
verið óþarfa og til þess fallna að tefja rannsókn málsins
þar sem skjólstæðingur hans hafi verið á leið til Íslands
þegar för hans hafi verið stöðvuð.
„Maðurinn er með hreina saka-
skrá og það er ekkert sem tengir
hann við fíkniefni eða fíkniefnainn-
flutning. Hann sagðist koma alveg
af fjöllum varðandi þessar ásakanir
um þátttöku í þessum fjársvikum
og ætlaði að koma heim og hreinsa
sig af þessum ásökunum,“ segir
Vilhjálmur.
Steingrímur var á leið frá
Venesúela til Íslands þegar hann var
tekinn fastur en fyrir sitja sex einstaklingar í varðhaldi
hérlendis í tengslum við rannsókn málsins. -ÞÞ
Ætlaði til Íslands að hreinsa nafn sitt
Steingrímur Þór Ólafsson handtekinn í Venesúela. Hafnar aðild að meintum fíkniefnaviðskiptum.
Steingrímur Þór Ólafsson var handtekinn í
Venesúela að beiðni lögregluyfirvalda á Íslandi.