Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 8
FR ÉT TATÍMIN N 1. október 20108 fréttir „Það er bara dagaspursmál hvenær áin rífur vegarslóðann inn að Bá- sum í sundur. Þá kemst enginn þangað nema á risajeppum,“ segir Reynir Þór Sigurðsson, skálavörður í Básum, í samtali við Fréttatímann. Hann hefur dvalið í Þórsmörk un- danfarnar vikur og fylgst með Kros- sá vaxa ásmegin og ryðjast fram í áttina inn að Álfakirkju. Reynir Þór segir ástandið grafal- varlegt. „Þetta er ótrúlega vinsælt svæði. Mér telst svo til að síðasta hálfa mánuðinn hafi tæplega þú- sund manns heimsótt Bása. Það er frábært miðað við árstíma,“ segir hann og bætir við að fjölmargir hafi lifibrauð sitt af því að ferja ferða- menn inn í Þórsmörk og þeir séu órólegir. Aðspurður hvað sé til ráða segir Reynir Þór að tvennt sé í stöðunni: Annars vegar þurfi að byggja var- nargarð til langframa, til viðbótar þeim sem nú liggur að Álfakirkju. Bráðabirgðalausn sé að fá jarðýtu og breyta farvegi Krossár. Það dugi þó ekki nema tímabundið. „Þetta liggur hjá Landgræðslunni og Vegagerðinni. Ábyrgðin á þessum vegi er þeirra,“ segir Reynir Þór. Sveinn Runólfsson landgræðs- lustjóri segir í samtali við Fréttatí- mann að hans fólk sé á varðbergi gagnvart vaxtavöxtum í Krossá. „Annars er þetta nú bara þannig með náttúruna að Drottinn gefur og Drottinn tekur. Hann er að taka núna,“ segir Sveinn. Hreinn Haraldsson vegamálstjóri segir vel fylgst með málum inni í Þórsmörk. „Það gerist ekki að þessi vegur lokist. Auðvitað getur það gerst tímabundið en við munum sjá til þess að þessi vegur inn í Bása haldist opinn til frambúðar,“ segir Hreinn. oskar@frettatiminn.is Óttast að Krossá loki Básum Skálavörður er uggandi yfir útivistarparadísinni Básum í Þórmörk. Vegarslóðinn er í hættu vegna vatnavaxta. Hann krefst aðgerða strax til að vernda aðgengi ferðamanna að þessum fallega stað. Vefverslun: handverkshusid.is GJAFABRÉF Akureyri Kaupangi Sími: 461 1112 Reykjavík Bolholt 4, Sími: 555 1212 Gerðu jólagjafirnar í höndunum! Á NÁMSKEIÐI Hnífasmíði Silfurleir Víravirki skart Tréútskurður Tálgað í tré Gler Tiffanys Silfurkeðjur Skráning í síma: 555-1212 Reykjavík 461-1112 Akureyri Á ELDHÚSBORÐINU Tólin á afslætti til 9. okt.: Handverksbækur – 20% Fjölnota slípivél – 20% Silfurleirsett – 10% Tálgusett – 20% Nýherji hf. Borgartún 37 Sími 569 7700 www.nyherji.is E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 8 0 7 Helstu IBM sérfræðingar á Norðurlöndum leiða þig inn í framtíðina • IBM System x Intel netþjónar • IBM gagnageymslulausnir • IBM Tivoli afritunar-, aðgangs- og öryggishugbúnaður • IBM Power, Unix og AS/400 netþjónar 19 erindi frá 10 sérfræðingum IBM, CCP, Arrow, NetApp og Nýherja Dagskrá og skráning á www.nyherji.is Ráðstefna Nýherja og IBM | Hótel Örk 7. október 2010 Comes to You 2010 HELGARBLAÐ Sími 531 3300 Hópur fólks kom saman í gærkvöld fyrir framan Alþingishúsið með friðsamleg mótmæli í huga. Hug- myndin var að leggjast til svefns til þess að vekja athygli á því að gatan bíður nú fjölda fólks sem er við það að missa húsnæði sitt. „Um fjörutíu manns hafa boðað komu sína með svefnpoka og svo ætla miklu fleiri að koma við og sýna þannig stuðning sinn,“ sagði Steinar Immanúel Sörensen, einn forsprakka svefnpokahópsins, á fim- mtudag. „Við ætlum bara að sofa úti; í svefnpokum, kraftgöllum, umvafin teppum, svona eins og hver annar sem þarf að gista á götunni.“ Steinar segir þolinmæði fólks á þrotum og að þetta verði síðustu friðsamlegu mótmælin. Hann gerir þó ekki ráð fyrir að valdhafar gefi svefnpokamótmælendunum mikinn gaum. „Það er svo dofið þetta fólk að það hálfa væri nóg, en þetta hefur vakið athygli út á við og fjölmiðlar hafa sýnt okkur áhuga. Þetta verða örugglega síðustu friðsamlegu mótmælin; mér heyrist á fólki að það sé alveg búið að fá nóg og finn- ist þau ekki virka. Núna ætlum við samt bara að koma saman, reyna að kveikja einhvern eld og fá okkur kaffi saman. Síðan reynum við bara að sofna þegar við verðum þreytt.“ Kristján Loftur Bjarnason, félagi Steinars, segist hafa hent hugmyn- dina að þessum mótmælum á lofti eftir að hann heyrði Alvar Óskars- son öryrkja viðra hana í símatíma á Útvarpi Sögu. Kristján tekur undir með Steinari og spáir því að friðsam- legum mótmælum sé hér með lokið. Öllum ráðum verði að beita til þess að koma ráðamönnum þjóðarinnar frá. MÓTMÆLI: Þolinmæði mótmælenda er á Þrotum Þeir ætla að sofa fyrir framan Þinghúsið Síðustu friðsamlegu mótmælin stund fyrir stríð Kristján Loftur Bjarnason kannaði svefnstæði sitt kvöldið fyrir gistimótmælanóttina. FT/TeiTur Jónasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.