Fréttatíminn - 01.10.2010, Side 12
Ekki hefur tekist að fá lífeyrissjóðina til
að fjármagna Vaðlaheiðargöng og því
frestast útboð þeirra. Kristján Möller,
fyrrverandi samgönguráðherra, gerði
ráð fyrir því að hægt væri að bjóða verkið
út í ágúst og hefja framkvæmdir í sama
mánuði eða í september.
Ögmundur Jónasson, nýr sam-
göngu- og sveitarstjórnarmálaráðherra,
hefur nú fengið Kristján til að semja
við lífeyrissjóðina um fjármögnun
Vaðlaheiðarganga og síðasta áfanga
Suðurstrandarvegar. Ögmundur hyggst
einnig fylgja áætlunum sem gerðar voru
í tíð forverans, segir aðstoðarmaður
hans, Einar Árnason. Hann segir sam-
gönguráðuneytið búast við að verktakinn
sem verði hlutskarpastur í útboði um
Vaðlaheiðargöng þurfi hálft til eitt ár
til að undirbúa verkið áður en fram-
kvæmdir hefjist. Það byggir ráðuneytið
á mati Gísla Eiríkssonar, umdæmisstjóra
Vegagerðarinnar á Ísafirði.
Samkvæmt heimildum Fréttatímans
líst lífeyrissjóðunum illa á að sérstakt
hlutafélag hafi verið stofnað um göngin
nyrðra, rétt eins og um síðasta áfanga
Suðurstrandarvegar. Það minnki ábyrgð
ríkisins ef illa fer. Lífeyrissjóðirnir vilji
því hærri vexti á fjárfestingar sínar.
Verktakafyrirtæki hafa kvartað yfir
framkvæmdaleysi ríkisstjórnarinnar og
að fá verk séu boðin út. Kristján svaraði
þeim í fréttum RÚV í byrjun júlí og
sagði að þau þyrftu vart að bíða mikið
lengur. Útboð Vaðlaheiðarganga og
framkvæmdir væru handan við hornið.
Þá sagði hann einnig að nokkur verk á
samgönguáætlun yrðu tilbúin til útboðs
í haust.
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
nefnir fjögur verk á samþykktri sam-
gönguáætlun ársins 2011 sem hann vilji
bjóða út nú í haust svo að þau komist til
framkvæmda á nýju ári og jafnvel eitt-
hvað fyrir áramót. Þarna er um að ræða
fyrrnefndan síðasta áfanga Suðurstrand-
arvegar, brú á Ysta-Rjúkanda á Jökuldal,
undirgöng við Grænás á Reykjanesbraut
og Vestfjarðaveg um Skálanes, þó aðeins
um þrjá kílómetra. Stefnt er að því að
fá lífeyrissjóðina einnig til að fjármagna
undirgöngin.
Kristján Möller sendur að sækja fé í Vaðlaheiðargöng
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag
@frettatiminn.is
Samgöngur ÖGmundur færir fyrirrennArAnum verkefni
Laugardagur
tiL Lukku!
aðeins á morgun, Laugardag. opnum kL. 10:00.
dúndurtilboð – taktu daginn frá!
HúsgagnaHöLLin • bíldshöfða 20 • reykjavík • sími 585 7200 • laugardagur til lukku - OPið 10-18
Kemur Suðurnesja-kreppan til þín?
Í næstu viku munu jafnmargir missa heimili sín á Suðurnesjum og gerðu allt árið í fyrra. Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og félagssviðs Reykjanesbæjar segir litið
fram hjá vanda fjölskyldna á Suðurnesjum. Sóknarpresturinn vill að landsmenn spyrji sig hvort þeir eigi eftir að standa í sporum Suðurnesjabúa.
Landsmenn þurfa að spyrja sig hvort kreppuástandið á Suð-urnesjum sé forsmekkurinn
að því sem koma skal í öðrum lands-
hlutum,“ segir Skúli Sigurður Ólafs-
son sóknarprestur á svæðinu.
Nærri hundrað eignir fara á loka-
uppboð hjá sýslumanninum í Kefla-
vík í næstu viku. Aldrei hafa fleiri
misst heimili sín á Suðurnesjum
á einni viku. Þórólfur Halldórs-
son, sýslumaður í Keflavík, segir
ljóst að hlutfallslega séu tífalt fleiri
nauðungarsölur á Suðurnesjum en
í Reykjavík, Mosfellsbæ og Seltjarn-
arnesi samanlagt, sem heyra undir
embætti sýslumannsins í Reykjavík.
„Þetta verður mjög erfið vika hér,“
segir Þórólfur. „Ég hef ekki orðið
var við að margir hafi náð að afstýra
lokauppboðum þótt þeir hafi nýtt sér
fresti, og reikna ekki með því núna.“
Um næstu mánaðamót geta þeir
landsmenn sem eru við það að
missa húsin sín ekki lengur frestað
uppboðunum.
Jafnmörg uppboð og í
Reykjavík
Uppboð á Suðurnesjum hafa marg-
faldast á milli ára, en í fyrra voru 96
eignir boðnar upp. Aðeins fjögurra
eigna munur er á nauðungarsölum
hjá sýslumanninum í Reykjavík,
sem bauð upp 228 eignir, og sýslu-
manninum í Keflavík, sem setti 224
undir hamarinn, fram til 15. septem-
ber á þessu ári. Það sést á yfirliti yfir
nauðungarsölur sem birtust á síðu
umboðsmanns skuldara í vikunni.
Þórólfur hefur reiknað út að fjöl-
skyldur hafi átt 79% þessara 224
eigna. Aðeins sautján uppboð hafi
farið fram á atvinnuhúsnæði á
árinu. Aðrar íbúðir hafi verið í eigu
verktaka. Sambærilegar tölur hjá
sýslumanninum í Reykjavík liggja
ekki fyrir en þar verða einnig hátt í
hundrað eignir settar á lokauppboð
í næstu viku.
Hjördís Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri fjölskyldu- og félagssviðs
Reykjanesbæjar, segir ástandið á
Suðurnesjum bagalegt. „Hér situr
fólk ekki við sama borð og annars
staðar og það virðist ekki viður-
kennt,“ segir hún. „Allir eru mjög
beygðir vegna ástandsins.“ Það
snertir að hennar sögn millistéttina
æ meir enda atvinnuleysið í bæjar-
félaginu meira en í öðrum sveitar-
félögum. Nú þarf líka hópur karl-
manna yfir fertugu að reiða sig á
fé frá sveitarfélaginu vegna þess að
þeir hafa verið atvinnulausir í þrjú ár
eða meira.
„Þeir fá frá rúmum 115 þúsund
krónum á mánuði til 190 þúsunda
séu þeir með fjölskyldu. Þetta er
neyðarúrræði og lægsta framfærslu-
þrepið og allir sjá að þetta getur ekki
gengið,“ segir hún og bendir á að
skellurinn hafi komið þegar Varnar-
liðið fór fyrir fjórum árum.
Kreppan hófst þegar herinn fór
„Við misstum hérna á annað
þúsund störf og þau hafa ekki verið
bætt þótt okkur hafi tekist að klóra
í bakkann í stuttan tíma,“ segir
Hjördís, og undir það tekur sýslu-
maðurinn Þórólfur: „Kreppan hefur
hirt alla uppbyggingu hér eftir fyrra
áfallið sem varð þegar herinn fór.“
Atvinnuleysið mælist nú 7,3% á
landinu en 11% á Suðunesjum. Hæst
fór það í 15% þar í febrúar síðast-
liðnum.
Verkefni sem stóðust ekki
væntingar
Skúli Sigurður sóknarprestur
segir að kreppan á Suðurnesjum frá
því herinn fór hafi verið falin undir
bygginga- og vegaframkvæmdum.
„Við fengum óskaplegan skell og
þegar bólan sprakk stóð fólk illa.“
Hann segir að nýju atvinnutækifærin
sem stefnt hafi verið að á svæðinu
hafi alls ekki staðið undir vænting-
um.
„Verkefnin hafa verið umdeild;
álver, herþotur og einkarekinn
spítali. Allt eru þetta mál sem eru
á jaðri þess að vera viðurkennd og
samþykkt og nú þegar ríkisstjórnin
er skipuð þessum [vinstri]flokkum
hefur þetta ekki gengið upp og á
meðan svo er blæðir þessu samfé-
lagi út,“ segir Skúli.
-gag
12 fréttir Helgin 1.-3. október 2010