Fréttatíminn - 01.10.2010, Síða 18
Níu aðilar á eftir Jóni Ásgeiri
Fjórir opinberir aðilar, þrjú þrotabú, einn banki og ein slitastjórn elta nú athafnamanninn Jón Ásgeir Jóhannesson. Fjögur þessara mála eru nú fyrir dómstólum,
þrjú eru til rannsóknar, eitt í innheimtu og eitt á leið í innheimtu. Jón Ásgeir var einn umsvifamesti fjárfestir á Íslandi á árunum fyrir hrunið haustið 2008. Eftir það
hefur fjarað svo undan veldi hans að hann greinir frá því að eiginkona hans haldi honum uppi í Bandaríkjunum og á Íslandi. Jón Ásgeir var prímus mótor og stærsti
eigandi Baugs. Í gegnum það félag stýrði hann FL Group sem var aftur stærsti hlutahafi Glitnis.
18 fréttaskýring H elg in 1 . -3 . o k tó b e r 2 010
Lorem ipsum dolor sit amet: consectetur adipisicing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et
Lorem ipsum dolor sit amet: consectetur adipisicing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et
Tillaga A2
Stjórnarformaður Baugs
Stjórnarformaður FL Group
Átti snekkju, einkaþotu, lúxus íbúðir um allan
heim og skíða skála í frönsku Ölpunum.
2007
fallið frá toppnum
2010
Viðurkennir í greinargerð fyrir breskum
dómstóli að eiginkonan haldi honum
uppi í Bandaríkjunum og á Íslandi. Allar
eignir kyrrsettar.
Efnahagsbrotad.
Ríkislögreglustjóra
vs. Jón Ásgeir
Meint tugmilljóna skattalagabrot
Jóns Ásgeirs á árunum 1998 til
2002 hefur verið til umfjöllunar
í Héraðsdómi Reykjavíkur og
Hæstarétti frá haustinu 2008.
Staða Fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur
Ríkisskattstjóri
vs. Jón Ásgeir
Þú blásól ehf., sem er al-
farið í eigu Jóns Ásgeirs,
er í skoðun sem hluti
af almennri rannsókn á
ólöglegum arðgreiðslum
hlutafélaga.
Staða Í rannsókn
Sérstakur saksóknari
vs. Jón Ásgeir
Rannsakar mögulegt lögbrot
Jóns Ásgeirs í tengslum við
skuldabréfaútboðið í New York
árið 2007.
Staða Í rannsókn
Slitastjórn Glitnis vs. Jón Ásgeir
Stefnt í New York vegna 240 milljarða króna skuldabréfaútboðs
Glitnis í New York árið 2007. Slitastjórnin telur að klíka undir
forystu Jón Ásgeirs hafi tekið til sín stóran hluta þess fjármagns
sem safnaðist þar í krafti stjórnar sinnar á bankanum.
Staða Fyrir dómstóli í New York
Skattrannsóknarstjóri vs. Jón
Ásgeir
Skoðar meint milljarða virðisaukaskattsvik FL
Group á árunum 2006 og 2007 og mögulega
ábyrgð Jóns Ásgeirs sem stjórnarformanns
félagsins á árinu 2007.
Staða Í rannsókn
Þrotabú Baugs vs. Jón Ásgeir
Þrotabúið krefst þess að Gaumur, hvar Jón
Ásgeir var stærsti hluthafi, endurgreiði sex
milljarða í tengslum við fullnaðaruppgjör Baugs
og Gaums, aðaleiganda Baugs, haustið 2008.
Staða Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
Þrotabú BGE eignarhaldsfélags
vs. Jón Ásgeir
Þrotabúið krefst endurgreiðslu á hundraða milljóna
króna láni sem BGE eignarhaldsfélag veitti Jóni Ásgeiri
og fleirum til kaupa á hlutabréfum í Baugi. Jón Ásgeir
var einn af stærstu hluthöfum BGE sem var hluta-
félag starfsmanna Baugs og stofnað í kringum kaup á
hlutum í félaginu.
Staða Á leið í innheimtu
Banque Havilland vs. Jón Ásgeir
Bankinn, sem hét áður Kaupþing Lúxemborg, krefur Jón Ásgeir um greiðslu á mismun láns og
söluverðs snekkjunnar One O One sem bankinn lánaði fyrir. Jón Ásgeir og eiginkona hans voru
í persónulegum ábyrgðum fyrir láninu.
Staða Í innheimtu
Þrotabú Fons vs. Jón Ásgeir
Þrotabúið krefst þess að Jón Ásgeir endur-
greiði einn milljarð sem hann fékk frá Fons
sumarið 2008 þar sem engin gögn liggi fyrir
um annað en að þetta hafi verið gjafagjörn-
ingur af hálfu Fons, sem var að stærstum
hluta í eigu Pálma Haraldssonar, viðskipta-
félaga Jóns Ásgeirs.
Staða Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
Te
ik
ni
ng
: H
ar
i
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is