Fréttatíminn - 01.10.2010, Qupperneq 28

Fréttatíminn - 01.10.2010, Qupperneq 28
Þarna átti að rífa allt í burtu og setja niður stórbyggingu sem hefði hugsanlega passað ein- hvers staðar í Hádegis- móum. mörður árnason á rölti um gömlu reykjavík „Kannski eru arkitektarnir alsaklausir af klessuhúsum og hrokabyggingum, burtruðningi fornra húsaverðmæta, fáránlegu Ameríkuskipulagi höfuð- borgarsvæðisins, smekkleysi, stílrugli, lýtum í daglegu umhverfi okkar.“ Svo sagði Mörður Árnason þingmaður m.a. í bloggi nýverið en hann móðgaði fulltrúa Arkitektafélags Íslands á fundi umhverfisnefndar Alþingis er félagið veitti nefndinni umsögn um frumvarp til mannvirkja- og skipulagslaga. Á fundinn mætti Sigríður Magnúsdóttir, formaður Arkitektafélagsins, og kunni lítt að meta orð þingmannsins sem að haennar sögn taldi að allt sem illa hefði farið í manngerðu umhverfi á Íslandi væri vegna aðkomu arkitekta. Sigríður kvartaði við Ólínu Þorvarðar- dóttur, formann umhverfisnefndar, vegna orða Marðar en varð lítt ágengt. Ólína gerði engar athugasemdir við framgöngu Marðar og er kannski ekki að undra ef litið er til álits hennar á höfuðborginni. Í bloggi fyrir tveimur árum skóf Ólína ekki utan af hlutunum, sagði Reykjavík hreinlega ljóta borg. Húsin í Skugga 101 – klunnaleg og kuldaleg „Skúlagötuskipulagið frá níunda ára- tugnum var auðvitað stórslys en mörg af nýju húsunum þar sóma sér ágætlega sem slík,“ segir Mörður. „Skugga-húsin eru undantekning. Alltof stór, klunnaleg og kuldaleg. Svo meiðir stærsti turninn götumyndir langt í burtu, til dæmis af Lækjartorgi. Gæti verið í Dúbæ, nema furstarnir hafa aðeins skárri smekk en lýsir sér hér. Þetta voru víst danskir arkitektar, kannski af því þeir hafa ekk- ert fengið að gera heima – Danmörk er heimsfræg fyrir góða hönnun.“ Kjánalegur glerturn við Austurvöll Umhverfi löggjafarsamkundunnar er þingmanninum að vonum hugleikið og því horfir hann til húsnæðis nefndasviðs Alþingis, Vallarstrætis 8. Byggingin var endursmíðuð og endurteiknuð fyrir nokkrum árum. „Það hefur tekist illa til á viðkvæmum stað,“ segir Mörður, „þessi kjánalegi glerturn upp eftir húsinu er grófur og ljótur í sjálfu sér og í algeru ósamræmi við önnur hús við þetta gamla hjarta í Reykjavík.“ Eins og krot í gagnfræðaskóla Laugavegur 53b – Hereford-húsið – er skammt frá heimili þingmannsins. Hann fer ófögrum orðum um það sem þar ber fyrir augu, kallar það þjösnaskap í boði verktaka og arkitekts. „Húsið er að framan eins og krot í gagnfræðaskóla og síðan fyllir það þannig í alla lóðina að gömlu húsin fyrir neðan hrökkva frá. Ljótt hús, fullkomið tillitsleysi við hefðir Laugavegarins og þarfir gömlu byggðar- innar í bænum,“ segir Mörður. Nauðgun á Laugaveginum miðjum Þegar æði hins meinta góðæris stóð sem hæst var ákveðið að reisa nýbyggingu Listaháskólans við Laugaveg og á lóðinni á bak við húsin númer 41 og 43. Kreppan kæfði það slys, sem Mörður kallar svo. „Í raun og veru áttu arkitektarnir að neita að vera með í þessari samkeppni,“ segir hann. „Byggingarmagnið var þvílíkt að verkefni arkitektsins verður aldrei annað en nauðgun á Laugaveginum miðjum innan um gamla og víða glæsi- lega byggð. Þarna átti að rífa allt í burtu og setja niður stórbyggingu sem hefði hugsanlega passað einhvers staðar í Há- degismóum. Kreppan hefur stöðvað allar framkvæmdir – það liggur við að maður Merði Árnasyni tókst að móðga arkitekta með ummælum sínum. Á rölti með Fréttatím- anum um gömlu Reykjavík bendir hann á umhverfisslysin – en um leið á snilli arkitekta þar sem vel hefur tekist til. Hér er frátekin lóð fyrir Listaháskólann, nauðgun á Laugaveginum miðjum, segir Mörður. LjÓSMyndiR/TeiTuR Skugga-húsin eru að mati Marðar alltof stór, klunnaleg og kuldaleg. Svo meiðir stærsti turninn götumyndir langt í burtu. LjÓSMyndiR/FRéTTATÍMinn HARi Vallarstæti 8. Kjánalegur glerturn, grófur og ljótur í sjálfu sér og í ósmræmi við önnur hús við Austurvöll. Laugavegur 53b, þjösnaskapur í boði verktaka og arkitekts. Skáli Alþingis, glæsileg smíð. Siemsens-húsið við Grófina, prýði í götumyndinni. Jafnvel furstarnir í Dúbæ hafa betri smekk þakki fyrir hrunið,“ bætir þingmaðurinn við. „Allavega hefur Hjálmar núna tæki- færi til að hugsa sinn gang,“ segir hann í ákalli til rektors hins óbyggða skóla- musteris. Karlmannlegur klassisismi mót kvenlegum léttleika Glerturninn á Vallarstræti 8 er Merði ekki að skapi en annað er uppi á ten- ingnum þegar hann lítur sér enn nær á vinnustaðnum. Skáli Alþingis er teikn- aður á arkitektastofunni Batteríinu og varð að veruleika eftir margar mis- heppnaðar hugmyndir um viðbyggingu við húsið. „Skálinn er glæsileg smíð í sjálfu sér, ávalar línur, opið inn og út, fallega klæddur utan og mjög þægilegur sem vinnustaður,“ segir þingmaðurinn. „Snilli arkitektanna kemur þó best fram í því hvernig það fellur að Alþingishúsinu – er bæði líkt því og ólíkt og dregur fram sterkan formfastan svip gamla hússins: Kastali annars vegar, inngangur hins vegar, karlmannlegur klassisismi frá 19. öldinni en hins vegar kvenlegur léttleiki á 21. öld.“ Prýði í götumyndinni Fleira er vel lukkað, að mati Marðar, og þar horfir hann til Siemsens-hússins við Grófina. „Arkitektar teikna ekki bara ný hús heldur eiga þeir líka að sinna bygg- ingararfleifðinni. Það gerði Hjörleifur Stefánsson með glæsibrag þegar þetta gamla hús var flutt af Lækjartorgi. Það hefur verið veglega endurbyggt og er nú reisulegra en áður á steingrunn- inum, en mest munar þó um smekklega hönnun í nágrenni hússins, torgið með veitingaborðunum, brúna í framhaldi af rafmagnshofi Guðjóns Samúelssonar frá 1920 og litlu tjörnina sem nú er að hyljast í botninn með smámynt frá túristunum. Prýði í götumyndinni,“ segir Mörður og vill bæta um betur með því að losna við bílastæðin Tryggvagötumegin. Þjösnaskapur og tillitsleysi annars vegar en prýði í götumynd hins vegar. Mörður Árnason alþingismaður móðgaði forráðamenn arkitekta með ummælum sínum á nefndarfundi en segir, á rölti með Fréttatímanum um gömlu Reykjavík, að sem betur fer geri flestir arkitektar vel fái þeir tækifæri til. „Ég kýs að líta á umhverfið í kringum mig, nærri heimili og vinnustað, eins og flestir. Íslenskir arkitektar hafa yfirleitt góða og fjöl- breytta menntun og eru margir snjallir og frjóir,“ segir hann og bendir á dæmi um það sem vel hefur tekist til – en um leið á hið gagnstæða. Klessuhús og hrokabyggingar 28 arkitektur Helgin 1.-3. október 2010 Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.