Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 38
Rafbílar og önnur um-hverfisvæn farartæki eru í brennidepli
bílasýningarinnar í París en
sportbílar og önnur tryllitæki
eru samt á sínum stað, nýr
CLC frá Mercedes Benz,
Porsche 911 Carrera GTS
Coupe og Ferrari 599 SA
Aperta. Þá frumsýnir Range
Rover nýjan jeppa, Evoque,
minni og eyðslugrennri en
áður hefur sést, litlu lengri en
VW Golf.
Rafbílabylting
Þróun rafbílanna vekur ekki
síst eftirvæntingu. Peugeot
iOn er frumsýndur en hann
er fyrsta afkvæmi samstarfs-
verkefnis Peugeot, Citroën og
Mitsubishi. Kóreski bíla-
framleiðandinn Kia lætur sitt
ekki eftir liggja og trúir á
rafmagnaða bílaframtíð. Kia
sýnir í fyrsta sinn rafbílinn Pop
á Parísarsýningunni.
Þessi nýi rafbíll Kia er enn á
vinnslustigi. Útlitið er frumlegt
en reikna má með því að dregið
verði úr stælunum þegar
kemur að fjöldaframleiðslu.
Pop er borgarbíll, aðeins þrír
metrar að lengd eða svipaður
að stærð og Toyota IQ.
Ekki liggur fyrir hvernig
rafbúnaður verður í Pop en
Kia sýndi Venga í rafmagns-
útfærslu á Genfarsýningunni
síðastliðið vor. Mótorinn í þeim
bíl er 80 kW og drægið er 180
kílómetrar.
Blendingar
Á Parísarsýningunni nú frum-
sýnir Honda nýjan Jazz tvinnbíl
sem byggir bæði á rafmótor og
hefðbundnum eldsneytisgjafa.
Á vef Honda hérlendis segir
m.a.: „Honda Jazz er fyrsti
smábíllinn sem er bæði til með
hefðbundinn eldsneytisgjafa og
Hybrid tækni. Hann er útbúinn
sömu IMA hybrid tækni og er
í Insight og umhverfisvæna
sportbílnum CR-Z
og er þessi há-
þróaða tækni byggð
á reynslu og áreiðanleika.“ Þar
segir enn fremur: „Nýi Jazz
Hybrid verður útbúinn 1,3
lítra i-VTEC bensínvél eins og
Insight Hybrid, með CVT sjálf-
skiptingu og IMA-rafmótorinn
staðsettan mitt á milli. Líkt og
með Insight Hybrid og Civic
Hybrid verður hægt að keyra
Jazz hybrid á rafmagnsmótor
eingöngu við miðlungs og
hægan akstur.“
Lexus lætur sitt ekki eftir
liggja og horfir til framtíðar. Í
tilkynningu Lexus segir m.a.:
„Bifreiðasýningin í París 2010
markar kynningu á útgáfum
tilbúnum til framleiðslu á CT
200h, fyrsta alblendings
lúxussmábíl sögunnar. Til
viðbótar sýnir Lexus alla sína
línu af alblendingum í París: RX
450h, GS 450h og LS 600h L.“
Dísiliknúnir Lexus-bílar
verða enn fremur kynntir á
Parísarsýningunni. Nýr IS200
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Rafmögnuð bílaframtíð
Gísli Gíslason er bjartsýnn á framtíð rafbílsins hérlendis:
Ætlum að flytja inn mökk af rafbílum
bílar bílasýningin í PaRís að hefjast
Á bílasýningunni í París sem opnuð var blaðamönnum í gær og stendur opin almenningi 2.-17. október er áhersla ekki síst lögð á rafbíla og umhverfisvæn ökutæki. Á
sýningunni kynna allir helstu bílaframleiðendur sitt nýjasta. Horft er til rafbílsins sem framtíðarökutækis auk vistvænni og eyðslugrennri bensín- og dísilbíla.
2011 Ferrari
599 SA
Tryllitækin eru
á sínum stað
á Parísarsýn-
ingunni þrátt
fyrir áhersluna
á raf- og um-
hverfisvæna
bíla. Ferrari,
Mercedes Benz,
Range Rover og
Porsche láta sitt
ekki eftir liggja.
þreytir þar frumraun sína og
keppir væntanlega við fyrr-
greindan alblending, CT 200h.
Hefðbundnir en sparneytnir
Rafbílarnir og blendingarnir
eru vissulega spennandi en
enn um sinn munu menn aka á
bílum knúnum hefðbundnum
bensín- og dísilvélum. Nýjar
gerðir slíkra véla eru til muna
sparneytnari en áður var og
menga minna. Áherslan á minni
og léttari bíla er áberandi. Meðal
spennandi nýjunga á Parísar-
sýningunni, fyrir hinn almenna
bílnotanda að minnsta kosti,
er Hyundai, ix20, systurbíll
áðurnefnds Kia Venga.
Ford kynnir nýjan Focus í
París en bíllinn er væntan-
legur á Evrópumarkað
eftir áramót. Á bílasýn-
ingunni í París verða þrjár
útgáfur til sýnis, fernra og
fimm dyra auk skutbíls.
Þá sýnir Ford sérútgáfu af
Focus ST, bíl með sportlega
aksturseiginleika sem kemur
á markað árið 2012. Sá bíll
flokkast því með tryllitækjunum
fremur en umhverfisvænu og
sparneytnu raf- og blendings-
bílunum.
nýjungar á Parísarsýningunni
Gísli Gíslason lögfræðingur efast
ekki um framtíð rafbílsins hér á landi
og á sér það markmið, með öðrum
í Northern Lights Energy (NLE), að
rafbílavæða Ísland. Hann sér fyrir sér
að Íslendingar verði fyrstir þjóða til
þess að skipta bílum knúnum jarðelds-
neyti út fyrir rafbíla.
„Við ætlum að flytja inn mökk af
rafbílum,“ sagði Gísli við Fréttatímann
en NLE hefur pantað fjölda slíkra bíla
sem koma á markað árið 2012.
Gísli fékk raunar fyrsta Tesla Roadster
rafsportbílinn sem afhentur var í
Evrópu, hvítan glæsivagn sem jafnvel
skýtur bensínknúnum vöðvabílum aftur
fyrir sig. Tesla Roadster skipar sér í
raðir snörpustu sportbíla með upptaks-
hraða 0-100 km á klukkustund undir 4
sekúndum. Hámarkshraðinn er 201 km
á klukkustund. Með sparakstri hefur
tekist að koma bílnum yfir 500 km á
rafhleðslunni.
Útlit Tesla Roadster byggir á Lotus
Elise og hann er vissulega dýr, kostar
109 þúsund dollara eða 12,5 milljónir
íslenskra króna, utan flutningskostn-
aðar. Skrokkurinn er smíðaður í verk-
smiðju Lotus í Bretlandi en mótorinn,
rafhlaðan og allt annað er sett í hann í
verksmiðju Tesla í Kaliforníu.
Gísli lætur sér ekki duga rafsportbílinn
því hann hjólar á Segway hjóli, auk
þess sem finna má rafknúið torfæru-
mótorhjól í safninu. -jh
Peugeot iOn Rafbíllinn nýi frá Peugeot er fyrsta afkvæmi samstarfs-
verkefnis Peugeot, Citroën og Mitsubishi.
Gísli Gíslason (t. h.), og Tesla Roadster rafsportbíllinn, sá fyrsti sem afhentur var í Evrópu.
Með Gísla er Sturla Sighvatsson, sem er meðal stofnenda NLE. LjóSMyNd/HaRi
2011 Porsche 911 Carrera GTS Coupe2012 Range Rover Evoque 2012 Mercedes Benz CLS
2011 Saab 9-3 ePower
2012 Ford C-Max
Kia Pop Electric
tilraunaeintak
2011 Chevrolet Cruze Hatchback
2011 Hyundai ix20
38 bílar Helgin 1.-3. október 2010
Jónas
Haraldsson
jonas@frettatiminn.is