Fréttatíminn - 01.10.2010, Síða 58
Eat Pray Love
Nýjasta mynd hinnar sívinsælu leik-
konu Juliu Roberts er gerð eftir
hinni geysivinsælu bók Elizabeth
Gilbert, Eat Pray Love, og hefur
myndarinnar verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu. Julia leikur hér
Liz Gilbert sem áttar sig á því um
þrítugt að hún er ekki hamingjusöm
þótt hana skorti ekkert og hún eigi
traustan mann, sé í góðri vinnu og
eigi fallegt heimili. Hún skilur því
við kallinn og heldur út í heim í leit
að sjálfri sér, hamingjunni og hinni
sönnu ást. Hinn magnaði leikari
Javier Bardem leikur á móti Juliu í
myndinni en frægðarsól hans hefur
verið á stöðugri uppleið eftir að
hann fékk Óskarsverðlaunin fyrir
bestan leik í aukahlutverki fyrir No
Country for Old Men.
Dómar í öðrum miðlum: Imdb: 4,7/10,
Rotten Tomatoes: 37%, Metacritic: 50
„Við bíðum spennt eftir því að
sjá hvernig viðtökurnar verða og
þá ekki síst hjá sjómannastétt-
inni þar sem þetta er líklega ein
fyrsta íslenska myndin sem gerist
nær eingöngu í þeirra starfsum-
hverfi,“ segir Árni Ólafur Ásgeirs-
son, leikstjóri kvikmyndarinnar
Brims sem Vesturports-hópurinn
frumsýnir á laugardaginn.
Myndin byggist á samnefndu
verðlaunaleikriti Jóns Atla Jónas-
sonar sem Vesturport setti á fjal-
irnar. „Þetta er mjög skemmtilegt
leikrit um lífið um borð í litlum
fiskibát. Vesturport sýndi Brim á
sínum tíma með pomp og prakt
og við ákváðum svo í sameiningu,
hópurinn og ég, að gera þetta að
kvikmynd,“ segir Árni og leggur
áherslu á að hér sé síður en svo
um beina yfirfærslu sviðsverksins
á filmu að ræða þótt sömu leikar-
arnir endurtaki rullurnar sem
þeir fóru með í leikhúsinu.
„Það er alltaf snúið að taka eitt-
hvað sem hefur verið á bók eða
sviði og laga það að kvikmynd-
inni vegna þess að þetta eru svo
ólíkir miðlar. Þannig að þetta er
ekkert copy/paste af leikritinu.
Hér er margt öðruvísi en ég
vona að okkur hafi tekist að vera
trú stemningunni og söguheimi
verksins. Við unnum handritið
saman og það varð til í mjög lif-
andi samræðu milli okkar allra.“
Brim segir frá áhöfn línubáts
sem hefur siglt vikulanga túra
lengur en nokkur í áhöfninni kær-
ir sig um að muna. Lífið um borð
er allt í föstum skorðum vanans en
það hriktir í stoðum sveitts karla-
samfélagsins þegar einn tryggasti
hásetinn sviptir sig lífi úti á miðju
hafi. Ung kona er ráðin til þess
að fylla í skarðið í næsta túr og í
kjölfarið magnast ágreiningur og
spenna innan hópsins.
„Hún brýtur upp ákveðið
munstur sem er löngu rótgróið.
Allir eiga sín föstu sæti og svona
en þegar nýliðinn bætist í hópinn
fer allt úr skorðum og kallarnir
eru ekkert of hrifnir af því að það
sé verið að rugla í þessu.“
Árni segir tökurnar hafa verið
skemmtilegt ævintýri enda hafi
hópurinn varla vitað hvert hann
stefndi þegar þau stigu um borð
og sigldu út í óvissuna. „Við
vorum þarna á einhverjum dalli
úti í ballarhafi, krossuðum okkur
bara og vonuðum það besta. Þetta
var óvenjumikið ævintýri á meðan
við vorum á þessum bát vikum
saman í baráttu við veður og vinda
og þessu fylgdi sjóveiki og eitt og
annað.“
Árni hefur áður gert kvikmynd-
ina Blóðbönd en hefur ekki unnið
með Vesturporti fyrr en nú. „Við
höfum þekkst lengi og mig hefur
alltaf langað til að vinna með þeim
þannig að þetta var kjörið tæki-
færi til þess að láta þann draum
rætast.“
Hafið virðist vera íslensku kvik-
myndagerðarfólki ofarlega í huga
um þessar mundir en eins og
flestir vita er Baltasar Kormákur
að gera myndina Djúpið sem
byggist á örlögum áhafnarinnar
á Hellisey sem sökk árið 1984.
Árni segist telja það mjög eðlilegt
að íslenskt kvikmyndagerðarfólk
beini sjónum að hafinu og í raun
sé löngu tímabært að það sæki
stífar á sjóinn. „Hafið er svo stórt
sögusvið og er svo ríkur þáttur í
sögu okkar og menningu.“
Með helstu hlutverk í Brimi fara
þau Ingvar E. Sigurðsson, Ólafur
Darri Ólafsson, Björn Hlynur
Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson
og Nína Dögg Filippusdóttir.
Sjórinn er stórt sögusvið
AðrAr frumsýningAr:
gamall draumur Árna Ólafs Ásgeirssonar leikstjóra rættist þegar hann fékk tækifæri til að
vinna með Vesturports-hópnum að kvikmynd byggðri á Brimi, verðlaunaleikriti Jóns Atla
Jónassonar.
Þórarinn
Þórarinnsson
thorarinn@frettatiminn.is
Bíó
Hafið bláa hafið Árni Ólafur með Brim í fanginu og fær í flestan sjó ásamt leikurunum Ingvari E., Ólafi Agli og Nönnu Ktistínu sem er komin á steypirinn og
er sett á sjálfan frumsýningardaginn. Ljósmynd Hari
Vesturport sigldu út í óvissunA og gerðu bíómynd byggðA á leikritinu brimi
Dinner For Schmucks
Brandarakallinn Steve Carell fær
að njóta sín í hlutverki algers bjána
í þessari gamanmynd um skrifstofu-
blók á hraðri uppleið sem ætlar að
tryggja sér frekari frama með því að
mæta með algert fífl í kvöldverð hjá
forstjóranum. Kvöldverður þessi er
mánaðarleg uppákoma hjá forstjór-
anum sem blæs þá til „kvöldverðar
með fábjánum“. Sá starfsmanna hans
sem mætir með mesta aulann kemst
svo sjálfkrafa í náðina hjá forstjór-
anum. Paul Rudd leikur framagosann
en ekki blæs byrlega fyrir honum
fyrr en hann rekst á persónu Carells,
sem er vonlaus starfsmaður hjá skatt-
inum, og dregur hann í gleðskapinn.
Dómar í öðrum miðlum: Imdb: 6,3/10,
Rotten Tomatoes: 45%, Metacritic: 56
matar okkur
á upplýsingum
Ópusallt er hannað fyrir íslenskt viðskiptaumhverfi og er allt í senn:
stjórntæki, upplýsingakerfi og bókhaldskerfi.
„Við höfum notað Ópusallt í næstum áratug
og það hefur stækkað með okkur.“
Auðjón Guðmundsson
markaðsstjóri
Kjarnafæðis
Viðskiptalausn frá HugAx
Guðríðarstíg 2–4
113 Reykjavík
Sími 545 1000
www.hugurax.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
02
42
0
HELGARBLAÐ
Sími 531 3300
58 bíó Helgin 1.-3. október 2010