Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 64
64 dægurmál dægurmál 65 Helgin 1.-3. október 2010 Helgin 1.-3. október 2010
útivera
Komdu við hjá oKKur og Kynntu þér úrvalið.
traust og örugg þjónusta.
SportSman® xp
850 EFI/550 EFI
AFL og krAFtur
Kletthálsi 15
110 Reykjavík
Sími 577 1717
Í dag, föstudaginn 1. október, verður
haldin í Smáralind sýning sem markar
upphafið að afrískri menningarhátíð.
Cheíck Bangura frá Gíneu stendur á
bak við þessa hátíð. „Við byrjuðum að
hittast nokkrir félagar frá Gíneu heima
hjá vini okkar, Alseny Sýlla, og út frá því
fengum við þessa frábæru hugmynd, að
það væri nú gaman að sýna Íslend-
ingum okkar menningu,“ sagði Cheíck
Bangura þegar Fréttatíminn náði tali af
honum. „Í fyrra héldum við í fyrsta sinn
hátíð með mat og tónlist og áhuginn var
svo mikill að við ákváðum að gera þetta
aftur að ári liðnu og auk þess að vera
með sýningu á afrískum fatnaði, skóm
og hárgreiðslu.“ Sýningin stendur yfir
milli klukkan 16 og 17 á föstudeginum
og munu afrískar konur á svæðinu sjá
um að greiða íslenskum kynsystrum
sínum. Að sýningu lokinni tekur svo
við afrísk veisla á Players í Kópavogi.
Húsið verður opnað klukkan 20 og hefst
veislan á því að borinn verður fram
matur frá sjö mismunandi löndum í
Afríku. Klukkan 22.00 brestur svo á tón-
listarveisla eins og þær gerast bestar.
Fram koma Tropicalia-sveit Kristínar
Bergsdóttur, Samúel Jón Samúelsson
BIG BAND, Afró-Kúba, Hjálmar, Brynja
Pétursdóttir og Afrika-Lole. Skífu-
þeytari mun svo sjá um að spila afríska
tónlist fram eftir nóttu.
Miðaverð er 3.000 krónur með afrískri
matarveislu en 2.000 krónur á tónleika
og ball. Þegar Cheíck er spurður að
því, í ljósi umræðna um kynþáttahatur
á Íslandi, hvernig honum líki að búa
hér, kveðst hann mjög ánægður. „Ég
er ánægður á Íslandi og líður ágætlega
vel, er bara alltaf að vinna, dansa og
tromma, nóg að gera. Öllum vinum
mínum frá líður einnig vel hérna,“ segir
hann hress í bragði.
Afríka í Kópavogi
Þ ess er gjarnan beðið með mikilli eftirvæntingu hvaða listamenn fylla flytjendahóp Frostrósa
hvers árs og í vikunni var úrvalið til-
kynnt. Söngkonur Frostrósa á jólatón-
leikunum í Reykjavík og á Akureyri
í desember verða Eiv ør, Hera Björk,
Margrét Eir, Ragnheiður Gröndal
og Regína Ósk. Í karlaliði Frostrósa
eru þeir Friðrik Ómar, Garðar Thór
Cortes, Jóhann Friðgeir og Stefán
Hilmarsson.
“Það er alltaf mikill heiður fyrir mig
að taka þátt í þessu vekefni og gaman
að vera þátttakandi í þessum metnaðar-
fullu tónleikum,” segir Margrét Eir sem
hefur verið með íslensku Frostrósunum
frá upphafi.
Hátíðartónleikar Frostrósa fæddust
sem lítil hugdetta við eldhúsborðið
í Furugrundinni, á heimili Samúels
Kristjánsonar, en eru níu árum seinna
orðnir fastur liður í aðventu jóla hjá
tugþúsundum Íslendinga.
Það hefur alltaf hefur verið mikið
lagt í hátíðlega umgjörð tónleikanna og
á þeim stærstu í Laugardalshöll standa
um 200 manns, einsöngvarar, kórar og
tónlistarfólk í einu á sviðinu.
Á síðasta ári komu 22.000 manns á
hátíðartónleika Frostrósa í Reykjavík,
Akureyri og á landsbyggðinni.
Á tónleikum Frostrósa í Laugar-
dalshöll þann 11. desember syngja
karlakór Fóstbræðra og Íslenski
gospelkórinn með einsöngvurunum
og einnig Vox feminae og Stúlknakór
Reykjavíkur undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur. Tónleikarnir í Laugar-
dalshöll verða þeir stærstu en á þeim
verða yfir 200 manns á risasviði í
hátíðlegri umgjörð sem á vart sinn líka
í íslensku tónleikahaldi.
Tónleikaröð Frostrósa lýkur síðan
þann 17. desember í Hofi, nýja menn-
ingarhúsinu á Akureyri.
“Ég hlakka mikið til að syngja í Hofi
á Akureyri”, segir Margrét Eir. “Þetta
er glæsilegt hús og hljómburðurinn
mun gefa tónleikunum aukinn kraft og
áhorfendum enn betri upplifun.”
Tónleikastöðum hefur verið fjölgað
um þrjá frá því í fyrra. Auk tónleika
í Reykjavík og á Akureyri verða
Frostrósartónleikar haldnir á Ísafirði,
Húsavík, Egilsstöðum, Eskifirði, Sel-
fossi og Akranesi, í Vestmannaeyjum,
Framlínusveit
Frostrósa þetta
árið. Tónleikarnir
í Laugardalshöll í
fyrra voru teknir upp
í háskerpu og verða
gefnir út í hljóði og
mynd nú fyrir jólin.
Eivør og Stebbi Hilmars með í Frostrósum
Jólatónleikar Frostrósa eru fyrir
löngu orðnir fastur liður í des-
ember. Sem fyrr eru glæsilegar
söngkonur í forgrunni en karlpen-
ingurinn sem gengur til liðs við
Frostrósirnar þetta árið er ekki
heldur af verri endanum þar sem
hinir ómþýðu Garðar Thór Cortes,
Friðrik Ómar, Stefán Hilmarsson
og Jóhann Friðgeir munu stíga á
stokk með söngdívunum.
Frostrósir: LítiL hugmynd sem varð tiL Fyrir níu árum er orðin Fastur Liður á aðventunni.
Reykjanesbæ, Ólafsvík og Skagafirði.
“Eitt af því sem hefur verið svo sér-
stakt við Frostrósirnir eru einmitt allir
þessir tónleikar sem haldnir eru vítt og
breitt á landsbyggðinni”, segir Karl O.
Olgeirsson sem hefur verið tónlistar-
stjóri Frostrósa frá upphafi.
Tónleikaröðin stendur frá 1. til l7.
desember og sala aðgöngumiða hefst
20. október.
Cheíck Bangura Unir hag sínum vel á Íslandi
þar sem hann syngur, trommar og dansar og
hefur alltaf nóg að gera.