Fréttatíminn - 01.10.2010, Side 68
68 dægurmál dægurmál 69 Helgin 1.-3. október 2010 Helgin 1.-3. október 2010
É g er mjög spennt fyrir keppninni og ekkert stress komið í mig ennþá,” segir
Fanney Ingvarsdóttir, fegurðar-
drottning Íslands. Hún telur þó að
stressið komi líklega þegar nær
dregur keppni. “Ég kvíði mest fyrir
þeim langa tíma sem það tekur að
ferðast til Kína,” segir þessi fallega
stelpa og brosir, en ferðalagið hófst
í gær, 30. september.
Fanney var beðin um að taka
þátt í keppninni Ungfrú Reykjavík
í fyrravetur. Henni fannst það vera
áskorun og ákvað að slá til. Eftir
þá keppni var hún efins um hvort
hún ætti að halda áfram en lét slag
standa og varð Ungfrú Ísland.
Gerir þetta fyrir sjálfa sig
Fanney hefur stundað líkamsrækt
í World Class síðustu misseri til að
halda sér í formi, samhliða góðu
mataræði. “Ég geri þetta fyrir sjálfa
mig og læt engan þrýsta á mig eða
segja mér hvernig ég eigi að gera
hlutina,” segir Fanney ákveðin.
Fanney er með flottan,
töffaralegan fatastíl og segist hafa
nokkuð gott vit á tísku. “Ég þarf
eiginlega að leggja öll mín föt til
hliðar fyrir keppnina því mikil
áhersla er lögð á að þær sem þátt
taka í keppninni séu kvenlegar,
penar og mjög vel til hafðar og
stíllinn er því svolítið frábrugðinn
mínum stíl,” segir Fanney brosandi
og bætir við: „Verslanirnar Gyllti
kötturinn og Vero Moda hafa verið
duglegar að styrkja mig með litlum
sumarlegum kjóum, og svo hafa
Silja Allansdóttir, famkvæmdastýra
fegurðarsamkeppni Vesturlands,
og fegurðardrottningin Magdalena
Dubik meðal annars lánað mér
kjóla sem munu koma að mjög
góðum notum þarna úti,” segir
þessi brosmilda fegurðardrottning.
Síðast var það árið 2005 sem
Ísland hreppti titilinn Miss World,
þegar Unnur Birna Villhjálmsdóttir
hreppti titilinn. Er ekki aftur
kominn tími á Ísland?
Fanney fegurðardís á ferð og flugi
Fanney Ingvarsdóttir,
19 ára fegurðardís úr Garðabæ,
var krýnd Ungfrú Ísland í vor.
Leið hennar liggur nú í keppni
um fegurstu konu heims,
Miss World, sem haldin verður
í sextugasta sinn í borginni
Sanya á Hainan-eyju í
Suður-Kína. Undirbúningurinn
fyrir keppnina mun standa
yfir í heilan mánuð.
K ristín Eva Þórhallsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir, sem sjá um barnaútvarpsþáttinn Leynifélagið á rás eitt birtast árrisulum í Morgun-stund barnanna í Sjónvarpinu í fyrramálið. „Þetta eru leikin atriði
milli teiknimynda og við erum tvær konur sem taka til í geymslu,“ segja þær
hlæjandi. „Við kunnum ekkert að taka til en lendum í ýmsum ævintýrum.“ Þær
sjá fram á skemmtilegan vetur þar sem Morgunstund barnanna verður á laugar-
dagsmorgunum og Leynifélagið áí útvarpinu alla virka daga nema fimmtudaga.
„Það er gaman hjá okkur í vinnunni,“ segja þær stöllur og lofa skemmtilegum
laugardagsmorgnum fyrir fjölskyldufólk í vetur.
Sjónvarp BeSt að gera Barnaefni
DíSa ljóSálfur á Svið í auSturBæ
Gramsað í geymslu
Þ
etta er kannski ekki
í fyrsta sinn sem ég
tek sporið, en þetta er
nýtt fyrir mér og ég
er að komast í svaka-
legt form með þessum dönsum,”
segir Steinn Ármann Magnússon
leikari þegar hann er búinn að ná
andanum eftir síðasta snúninginn
í einni æfingalotunni með mótleik-
konu sinni, Álfrúnu Örnólfsdóttur.
Þau stallsystkin eru að æfa dansa
undir styrkri stjórn Helenu Jóns-
dóttur fyrir söngleikinn um Dísu
ljósálf sem verður frumsýndur í
Austurbæ 23. október.
Á leðurbuxum
í fjölskyldusöngleik