Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 70
70 aftasta Helgin 1.-3. október 2010
Þ að hefur lengi vantað bók með ráðleggingum fyrir konur og því ákvað ég að
skrifa þessa,“ segir rithöfundurinn
Tobba Marinós um nýja bók sína,
Dömusiði, sem kemur út fyrir jólin.
Bókin er troðfull af nytsamlegum
ráðleggingum eins og titillinn
gefur til kynna. „Þetta er allt frá
því hvernig þú nærð fitublettum úr
kjól til þess hvernig þú átt að haga
þér á Facebook. Þetta er jungle out
there,“ segir Tobba.
Egill Einarsson, betur þekktur
sem Gillz, hefur skrifað hverja
mannasiðabókina af annarri fyrir
karlmenn og Tobba segir að hún
rói á sömu mið.
„Það er fyndið að þú skulir minn-
ast á Egil. Hann á auðvitað ekki
séns í mig. Ég er á hærri hælum
og með stærri brjóst.Ég hef líka
gefið út metsölubók (innskot blm.
Makalaus sem kom út í sumar) en
guð má vita hvað hann hefur selt
mikið af sínum. Bókin mín verður
komin út um miðjan nóvember,
pottþétt langt á undan hans, enda
situr hann bara heima í móki af
próteinprumpinu sínu. Ég myndi
halda fyrir nefið í þínum sporum
ef þú hringir í hann,“ segir Tobba
og hlær.
Og þótt Tobba beri ekki virð-
ingu fyrir Gillz segir hún að hann
beri ómælda virðingu fyrir henni.
„Hann gaf mér mesta hrós sem
hann hefur gefið konu þegar hann
gekk upp að mér um daginn og
sagði: Tobba! Þú ert Gillz með
brjóst. Ég og þú erum alveg eins,“
segir Tobba.
Á hærri hælum
og með stærri brjóst
GJAFIR: Hvort sem karlmenn eru farnir að íhuga
jólagjafir, afmæli er á döfinni eða þeir vilja hreinlega gleðja
elskuna sína bendi ég þeim á bestu vinkonuna – hún er
vannýtt auðlind. Það á alltaf að hafa samband við bestu vin-
konu ef maður er í vafa. Hún veit nákvæmlega hvað konuna
þína langar í eða vantar. Þannig fékk ég uppáhalds ilmvatnið
mitt um daginn en ekki eitthvert hland í fallegri flösku. Það er
ástæða fyrir því að besta vinkonan kallast besta vinkonan!
Tobba Marinós í mannasiðasamkeppni við Gillz fyrir jólin
Tobba gefur ráð
Lj
ó
sm
yn
d
/
H
a
r
i
ekki hefur mikið heyrst af listrænum
stjórnendum Chess en þó hefur kvisast að
samverkakonur Páls Baldvins Baldvins-
sonar í væntanlegri sviðsetningu hans
á söngleik þeirra Gunnars Þórðarsonar,
Dísu ljósálfi, þær Helena Jónsdóttir og
María Ólafsdóttir, hafi verið munstraðar á
skútuna, Helena í hreyfingar og dansa en
María í búninga.
ein af þeim ævisögum sem munu
væntanlega vekja mikla athygli í jólabóka-
flóðinu er ævisaga stórsöngvar-
ans Kristjáns Jóhannssonar sem Þórunn Sigurðardóttir
ritar. Í bókinni gerir Kristján upp árin í hinum harða
heimi óperunnar og dregur ekkert undan.
Útrásarvíkingum þakkað
Pistlahöfundurinn Lára Björg Björnsdóttir fagnaði
því á fimmtudaginn að bókin Takk útrásarvíkingar,
sem hún lagði nýlega lokahönd á, fór í prentun. Í
bókinni fjallar hún um daglegt líf sitt á líflegan og stundum
gráglettinn hátt en henni tekst einkar vel að rekja ýmsar hremmingar
sínar beint til útrásarvíkinganna og hrunsins. Lára er einnig nýbyrjuð
að skrifa pistla við góðar undirtektir á Pressan.is enda í slíku stuði
eftir ritstörf sumarsins að hún sá ekki ástæðu
til að hætta leik þá hæst hann stendur.
síðastur á facebook?
Hinn nýbrottrekni ritstjóri Séð og heyrt,
Eiríkur Jónsson, byrjaði fyrsta daginn sinn í
atvinnuleysinu á því að opna Facebook-síðu
og hlýtur að teljast með þeim allra síðustu
sem telja sig vera með á nótunum til
þess að hasla sér völl á þessum vinsæla sam-
skiptavef. Eiríkur fór fjallbrattur af stað og
miðað við spá hans mun hann draga að sér
fjölmarga vini: „Byrjaði á facebook fyrir fjórum
mínútum og á þegar fjóra vini – það þýðir
sextíu vini á klukkustund.“
í vikunni
„Ég á aðdáendur á öllum aldri og þá eru ömmur ekki undanskildar. Hingað til
hafa þær auðvitað kannski mest kynnst mér sem tónlistarmanni í gegnum
barnabörnin sín en nú geta þær séð mig og heyrt í gegnum tónlist sem þær
þekkja,“ segir Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, sem stígur á stokk eftir
slétta viku sem sjálfur Buddy Holly í Austurbæ.
„Auðvitað verður gaman ef gamlir aðdáendur, sem upplifðu Buddy Holly
sjálfan, koma á sýninguna. Þeir eiga ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum,“
segir Ingó og hlær.
Hann segist ekki trúa öðru en að kynslóðin sem hélt upp á Buddy Holly og
tjúttaði við slagarana hans, mæti á sýninguna. „Ef það verður sett upp Em-
inem-sýning hér þegar ég verð orðinn sjötugur þá mæti ég pottþétt. Þetta er
svona svipað fyrir fólkið sem ólst upp með Buddy Holly. -óhþ
Ingó æsir ömmurnar
Peugot iOn Busanist ut et iunt hillis
ari doloriaectam nonseni mendion
remque sam, sincia con rerrori. FT/
TeiTur jónasson
Viltu vita hvers virði eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga.
Hringdu núna
699 5008
Hannes Steindórsson
Sölufulltrúi
hannes@remax.is
Sími: 699 5008
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. Fasteignasali