Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Síða 31
Svíar voru að vonum ánægðir með upp-
skeruna eftir leikinn gegn Íslandi á miðviku-
daginn. Zlatan Ibrahimovic átti vart orð til
að lýsa undrun sinni á fimmta marki Svía.
ÉG HEF
ALDREI
SÉÐ ANNAÐ
EINS
DV Sport föstudagur 8. júní 2007 31
Zlatan Ibrahimovic sagði í sam-
tali við DV að fyrsta markið hefði ver-
ið mikilvægt.
„Við skoruðum snemma og við
það opnaðist leikurinn. Við skoruð-
um síðan tvö fyrir hlé en leikurinn var
samt ekki búinn í hálfleik. Ísland er
með gott lið, sem varðist vel og reyndi
líka að sækja á skyndisóknum.“
Zlatan hefur verið meiddur að
undanförnu en kom inn á þegar 20
mínútur voru eftir. „Fætur mínir eru
í lagi, ég reyndi bara að spila minn
leik og tilfinningin var góð að koma
inn á.“
Aðspurður hvernig hann upplifði
fimmta markið svaraði Zlatan: „Ég
hef aldrei séð annað eins, ég meina
þú verður að spila áfram þangað til
að dómarinn flautar. Ef þú heyrir
ekki flaut þá áttu að halda áfram. Það
er ekki flóknara en það.“
Mikilvægt að ná fyrsta markinu
Christian Wilhelmson var mjög
góður í leiknum og hann sagði í sam-
tali við DV að íslenska liðið hefði
spilað agaðan fótbolta en skildi ekki
af hverju liðið spilaði sömu taktík all-
an leikinn.
„Þetta var erfitt í byrjun fyrir okk-
ur og mikilvægt að ná fyrsta mark-
inu svona snemma. Það gerði gæfu-
muninn, eftir að við skoruðum fyrsta
markið þá var þetta lítil hætta fannst
mér. Markið losaði okkur við ákveðna
pressu og við þurftum ekki að sækja
jafn stíft og gátum haldið boltanum
innan liðsins. Ég gat eiginlega ekki
skilið þegar staðan var orðin 4-0 og
síðan 5-0 af hverju íslenska liðið kom
ekki framar á völlinn. Íslendingar
léku sömu taktík allan leikinn, lágu
langt aftur en ég hélt að þeir myndu
koma framar á völlinn, en þeir lágu
allan leikinn til baka og ég held að við
höfum verið líklegri til að skora sjötta
markið en þeir að minnka muninn,“
sagði Wilhelmson.
Gerðu okkur erfitt fyrir
„Íslenska liðið var agað í sín-
um leik og gerði okkur erfitt fyrir í
fyrri hálfleik,“ sagði Lars Lagerbäck,
landsliðsþjálfari Svía, eftir leikinn á
miðvikudaginn. „Við vorum heppnir
að ná að skora þrjú mörk og eftir það
var auðvitað erfitt fyrir íslenska liðið
en að sama skapi auðvelt fyrir okkur.
En mér fannst Ísland spila skipuleg-
an og agaðan fótbolta í fyrri hálfleik,“
bætti hann við.
Lagerbäck bjóst við meiri krafti frá
íslenska liðinu. „Ísland spilaði ekki al-
veg jafn fast og ég hélt, því það lék svo
aftarlega á velllinum að þá er erfitt að
leika þannig. Einnig fannst mér leik-
urinn spilaður á það miklum hraða
en það er alveg hægt að segja að fyrri
hálfleikurinn hafi verið hægur.
Það þarf að hafa þolinmæði þegar
spilað er við lið sem liggur svona aft-
arlega. Kannski vorum við aðeins of
þolinmóðir í fyrri hálfleik, við reynd-
um að komast fyrir aftan öftustu fjóra
varnarmennina,“ sagði Lagerbäck að
lokum.
benni@dv.is
Fannst fimmta
markið skondið
Zlatan Ibrahimovic
segist aldrei hafa séð
annað eins mark og
fimmta mark svía.
Bjóst við meiri
krafti Lars
Lagerbäck,
landsliðsþjálfari svía
bjóst við meiri krafti
frá íslensku
landsliðsmönnunum
en raunin varð.
Átti góðan leik Christian Wilhelmson
átti góðan leik fyrir svía og lék íslensku
varnarmennina grátt.