Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Side 36
föstudagur 8. júní 200730 Sport DV
Evrópufótboltanum á þessu tímabil er ekki enn lok-
ið. Leikmenn í spænsku úrvalsdeildinni eru ekki komn-
ir í sumarfrí en þrjú lið bítast um meistaratitilinn þeg-
ar tvær umferðir eru eftir. Næstsíðasta umferðin verður
leikin um helgina. Flestir leikir verða á laugardagskvöld
en þá verða tveir leikir á sunnudag. Síðasta umferðin
verður síðan leikin á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga,
þann 17. júní.
Barcelona og Real Madrid eru á toppi deildarinnar en
bæði lið hafa 72 stig. Í þriðja sæti er Sevilla sem stefnir á
að vinna þrennu á tímabilinu.
Real Madrid er líklegt til að ná að vinna sinn fyrsta
stóra titil í fjögur ár en liðið vann Deportivo La Coruña
3-1 í síðustu umferð. Ekki eru margar vikur síðan liðið
var afskrifað frá titilbaráttunni en svo small allt saman.
David Beckham vann sér aftur sæti í liðinu og leikgleð-
in skín af þessu liði sem er samansafn af stórstjörnum.
Fá félög í Evrópu þyrstir jafnmikið í meistaratitil eins og
Real Madrid enda hefur uppskeran verið ansi rýr hjá því
undanfarin ár þrátt fyrir að öllu hafi verið til tjaldað.
Spilamennska Barcelona hefur verið langt frá því að vera
eins góð og á síðasta tímabili en liðið vann nauman sigur
á Getafe 1-0 í síðustu umferð. Real Madrid er í fyrsta sæt-
inu á betri árangri í innbyrðisviðureignum sínum gegn
Barcelona.
Sevilla varð Evrópumeistari félagsliða á dögunum og
þá er liðið komið í úrslitaleik spænsku bikarkeppninn-
ar. Liðið vann Real Zaragoza á sunnudag 3-1 og er áfram
tveimur stigum á eftir toppliðunum. Valencia tapaði 3-2
fyrir Villarreal um helgina og þar með fór liðið út úr bar-
áttunni um spænska meistaratitilinn. Fjögur efstu liðin
eru öll örugg með sæti í Meistaradeildinni.
Spenna fram undan
Það er því ljóst að spennandi andartök eru fram und-
an á Spáni en ekkert var leikið í deildinni um síðustu
helgi vegna landsleikja. Real Madrid leikur gegn Zara-
goza um helgina og svo við Real Mallorca í seinustu um-
ferðinni. „Mikilvægi leiksins gegn Zaragoza er rosalegt,“
segir Ruud van Nistelrooy, sóknarmaður Real Madrid en
hann er markahæsti leikmaður deildarinnar.
Barcelona á nágrannaslag gegn Espanyol á laugardag
og mætir síðan Gimnastic Tarragona sem þegar er fallið
úr deildinni efitr rúma viku. Börsungar geta þó ekki stól-
að á snilli brasilíska landsliðsmannsins Ronaldinhos þar
sem hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir tveimur vikum.
Talið var líklegt að Ronaldinho myndi fá tveggja leikja
bann en sú varð ekki raunin og ljóst er að hann nær loka-
umferðinni. Sevilla mun leika við Mallorca á útivelli og
svo Villarreal sem er í baráttu um Evrópusæti.
„Markmið okkar var að komast í Meistaradeildina en
við stefnum auðvitað á titilinn meðan sá möguleiki er
fyrir hendi,“ segir Juande Ramos, þjálfari Sevilla.
Vilja kveðja með titli
David Beckham heldur á vit ævintýranna í Hollywood
eftir tímabilið. Honum hefur enn ekki tekist að vinna titil
með Real Madrid síðan hann kom til spænska liðsins og
er því mikið í húfi fyrir hann. Það er ljóst að talsverðar
breytingar verða á liðinu í sumar. Ronaldo er þegar far-
inn til AC Milan og þá tilkynnti Fenerbache um helgina
að liðið hefði gengið frá kaupum á bakverðinum Roberto
Carlos. Þá er Jose Antonio Reyes á lánssamningi frá Ars-
enal og framtíð hans óljós.
Athyglisvert verður að fylgjast með leik Barcelona
og Espanyol en þetta er í annað sinn í þessari viku sem
þessi lið mætast. Barcelona vann Espanyol í leik um Kat-
alóníubikarinn á þriðjudagskvöld en þá voru lykilmenn
reyndar hvíldir. „Tímasetning á þessum leik um Katal-
óníubikarinn er ekki góð. Þetta er merkileg keppni en
vegna þess sem er í húfi um helgina gátum við ekki teflt
fram okkar sterkasta liði,“ sagði Rijkaard.
„Leikurinn á laugardag verður tvímælalaust góð
skemmtun. Við getum ekkert verið að hugsa út í önnur
lið sem eru að berjast um meistaratitilinn. Við bara hugs-
um um okkar leiki og reynum að vinna þá. Svo er bara að
sjá hvert það skilar okkur. Landsleikirnir að undanförnu
hafa ekki hjálpað okkur þar sem nánast allir leikmenn
liðsins hafa verið fjarverandi,“ sagði Rijkaard.
Spennandi verður að sjá hvort Eiður Smári Guðjohn-
sen fái tækifæri hjá Börsungum um helgina vegna leik-
banns Ronaldinhos.
Um helgina fer næstsíðasta umferðin í
spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta
fram. Þrjú lið eiga enn möguleika á
spænska meistaratitlinum en af þeim
er Real Madrid í vænlegustu stöðunni.
SPENNAN
ER ENN
Á SPÁNI
Í átt að titlinum real Madrid er í
efsta sæti spænsku deildarinnar en
liðið er með betri árangur í innbyrðis-
viðureignum við Barcelona.
Leikbann ronaldinho verður í leikbanni
um helgina eftir að hafa fengið rautt
spjald í síðustu umferð.
Skorari frederic
Kanoute hefur verið
á skotskónum í vetur.