Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1993, Blaðsíða 2

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1993, Blaðsíða 2
HÖNNUN SIGURBORG STEFÁNSDÓTTIR Áhrifaríkt geðdeyfðarlyf. Gefið einu sinni á dag. SEROL Seról (flúoxetín) Hylki; N 06 A B 03 Hvert hylki inniheldurr Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geðdeyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila. Lyfið hefur lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni í heila. Flúoxetín minnkar matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi, að mestu sem umbrotsefni. Ábendingar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ógleði. óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbro- tum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og ekki fyrr en 2 vikum eftir að töku slíkra lyfja var hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafsskamm- tur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar: Hylki 20 mg: 30 stk.; lOOstk. EFLUM ISLENSKT - TRYGGJUM SAMKEPPNI OMEGA FARMA HF KÁRSNESBRAUT 108 200 KÓPAVOGUR SÍMI 64 26 20

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.