Kjarninn - 31.10.2013, Side 42

Kjarninn - 31.10.2013, Side 42
02/05 kjarninn tækni íslenskra króna sé miðað við gengi þess tíma þegar kaup beggja gengu í gegn. Í dag eru snjallsímar til af öllum stærðum og gerðum og framleiðendur þeirra keppast við að toppa hver annan með misjafnlega merkilegum nýjungum sem þeir svo auglýsa sem næsta tækniundur og lausn allra okkar vandamála sem við eigum ekki að getað lifað án. Ef litið er á flaggskip allra framleiðenda og þau stýrikerfi sem keyra þessa síma kemur í ljós að þeir eru flestir nauða- líkir. Innvols símanna er hætt að skipta jafn miklu máli og það gerði í upphafi, allir hafa þeir tveggja, fjögurra eða átta kjarna örgjörva keyrandi á mismunandi klukkuhröðum, háskerpuskjái, góðar myndavélar og viðunandi rafhlöðu- endingu. Í öllum þessum látum að koma snjallsímanum á þann stað sem einkatölvan var á tæknilega fyrir fáeinum árum hefur ekkert gerst í rafhlöðum, sem er efni í aðra grein. Munurinn fólginn í stýrikerfum Munurinn á þessum flaggskipum er fólginn í því hvaða stýrikerfi þeir hafa að bera og hvaða þjónustu þessi stýrikerfi færa okkur. Öll hafa þau sína kosti og galla, mismunandi nálganir og henta misjafnlega vel eftir því hvað á að fá út úr tækinu. Samt sem áður eru þau nauðalík í flestum stærri atriðum, þó að menn geti endalaust rökrætt um hin og þessi atriði án þess að komast að niðurstöðu. Rétt eins og rifist var um hvort Wham! eða Duran Duran væri betri. En hvert er næsta tækniundrið og lausn allra vandamála okkar? Varla er það að fletta í gegnum tölvupóstinn með því að renna fingrum yfir skjáinn eða að snjallsíminn stöðvi sjálfkrafa myndbandsspilun þegar hann skynjar að þú ert ekki að horfa. Er beygt gler þannig að síminn falli betur að hendi það sem allir eru að bíða eftir ? Næsta skref segja margir að sé fólgið í klæðanlegri tækni (e. wearable computing). En hvað er klæðanleg tækni? Snjallúr, gleraugun frá Google og lífsstílsmælar margs konar myndu allir falla undir slíka skilgreiningu. Það að tæki geti verið hluti af notanda þess innan eða

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.