Kjarninn - 13.02.2014, Page 11

Kjarninn - 13.02.2014, Page 11
04/06 EFnahagsmál óvenjulegum tækifærum auk þess sem bankar þar í landi hafa mikla þekkingu á kjarna atvinnuvegum Íslendinga (sjávarútvegi, orku og ferðamennsku). Þeir atvinnuvegir eru líka uppistaðan í viðskiptavinaneti Íslandsbanka. Samkvæmt heimildum Kjarnans var mjög vel tekið í hugmyndir um að tvískrá Íslandsbanka á markað og full- trúar bankanna sem fundað var með töldu að fjárfestar væru orðnir áhættusæknari en þeir hefðu verið lengi. Þar hefði hjálpað til að fjárfestingar í bönkum sem hafa gengið í gegnum miklar krísur, á borð við Spán og Írland, hefðu náð að skila góðri ávöxtun. Oft verið reynt áður Þetta er fjarri því í fyrsta skiptið sem reynt er að selja íslensk- an banka erlendis. Þegar ríkisbankarnir voru seldir í kring- um síðustu aldamót var það alltaf stefnan að koma þeim, að minnsta kosti að hluta, í eigu erlendra fjármálastofnana. Áhuginn á þeim tíma var hins vegar lítill og stefnan gekk ekki eftir. Þess í stað voru bankarnir seldir í hendurnar á íslenskum kaupsýslumönnum með enga reynslu af banka- starfsemi. Það fór síðan sem fór. Eftir hrun hefur þetta verið reynt nokkrum sinnum líka en án árangurs. Ástæðan hefur kannski fyrst og síðast verið óvissa um hvernig efnahagur bankanna myndi líta endanlega út. Það hefur verið erfitt að reikna það út, sérstaklega vegna gengislánamála sem hafa orsakað sí felldar breytingar á Páll harðarson: ákjósanlegt að fá erlenda eigendur Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir tvískráningu rökrétt skref í mörgum tilfellum. „Ég vil síður tjá mig um einstök fyrirtæki en við finnum það í samtölum við kollega okkar í kauphöllinni í Stokkhólmi að fjárfestar þar eru mun áhugasamari gagnvart því að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum en maður hafði gert sér grein fyrir.“ Spurður hvort honum hugnist að tíu til 20 prósenta hlutur í bönkunum verði skráður í kauphöllina hérlendis segir Páll það ágæta byrjun. „Erlendir fjárfestar horfa á skráningar á heimamarkaði til að sjá hvort hann hafi áhuga á fyrirtækinu. Varðandi bankana er það rökrétt aðferðarfræði að byrja á hlut af þeirri stærðargráðu. Það væri mjög ákjósan- legt að fá erlenda eigendur að svona fyrirtækjum. Og það skiptir miklu máli til skamms tíma vegna haftanna. Stjórnvöld ættu að gera allt sem þau geta til að koma eignarhlutum í erlenda eigu.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.