Kjarninn - 13.02.2014, Page 47
05/07 Viðtal
gítarkennslubók með og byrjaði að prófa að glamra. Skömmu
síðar keypti ég mér trommusett og svo rafmagnsgítar þannig
að ég varð alltaf meira og meira forvitin. Síðan eignaðist ég
tónlistarforrit snemma árs 2012 og þá varð eiginlega ekki
aftur snúið. Fram að því hafði ég verið að baksa við að semja
lög og spila en eftir að ég fékk forritið gat ég skjalfest laga-
smíðarnar mínar og unnið betur í þeim.“
Andri Már fékk umrætt tónlistarforrit á sama tíma og þá
má segja að grunnur Vakar hafi orðið til. „Við vorum alltaf að
fikta og búa eitthvað til og senda á milli okkar. Svo ákváðum
við bara að sameinast í þessu,“ segir Margrét. Lagasmíði
Vakar fer yfirleitt þannig fram að Margrét
semur takta og melódíur og svo vinna
þremenningarnir í sameiningu að því að
fullmóta lögin. „Andri er texta gúrúinn
okkar og semur auðvitað saxófóninn.
Þegar við dettum í són erum við ógeðs-
lega gott teymi. En við erum líka ótrúlega
miklar frekjur öll og sitjum stundum hvert
í sínu horninu í fýlu þegar við fáum ekki
það sem við viljum. Við erum öll leiðtogar og viljum ráða en
oftast gengur samstarfið bara vel.“
spennt fyrir að spila á og sjá sónar
Það er töluvert á takteinunum hjá hljómsveitinni Vök næstu
vikur og mánuði, en sveitin hefur nú þegar vakið töluverða
athygli erlendis. Bandið treður upp á tónleikum í Lundúnum
í kvöld, á klúbbakvöldi sem tímaritið JA JA JA stendur fyrir
þar sem þrjár norrænar rafhljómsveitir sem þykja spennandi
og líklegar til vinsælda koma fram. Hljómsveitin flýgur svo
aftur heim til Íslands daginn eftir og kemur fram á Sónar-
tónlistarhátíðinni á laugardagskvöldið. „Við erum ógeðs-
lega spennt fyrir því að koma fram á Sónar og sjá alla þessa
listamenn. Ég hef alltaf haldið mikið upp á Bonobo og svo er
alltaf ótrúlega gaman að sjá FM Belfast koma fram. Ég held
að þau verði að spila á sama tíma og við, því miður, en ég er
líka mjög spennt fyrir því að sjá Major Lazer.“
„Þegar við dettum í són erum
við ógeðslega gott teymi. En við
erum líka ótrúlega miklar frekjur
öll og sitjum stundum hvert í
sínu horninu í fýlu þegar við
fáum ekki það sem við viljum.“