Kjarninn - 13.02.2014, Side 53

Kjarninn - 13.02.2014, Side 53
03/07 pistill kannski ættuð frá Greifswald eða Wiesbaden, en líka búin að standa í stórræðum af föndurborðinu að dæma, sem var hlaðið jarðarberjakökum og ávöxtum. Við mæðginin hrökkluðumst út en ég var hugsi yfir öllu þessu partístandi, enda var deildin ekki fyrir langveik börn. +LPLQQLQQ\õU%HUO­Q … virtist þungbúinn þegar við mæðginin hunskuðumst aftur í rúmið hjá háværri stórfjölskyldunni. Smám saman tók að skyggja og það var löngu orðið niðdimmt þegar ættingjarnir kvöddu loksins. Þá var sonur minn sofnaður, útkeyrður í öllum látunum, og ég búin að marglesa sömu setninguna í bókinni Dear Life eftir Alice Munro: Instead of arguing, he just laughed. Instead of arguing, he just laughed. Instead of arguing, he just laughed … inshallah! inshallah! … sönglaði afinn og kvaddi. Langþráð þögn skall á, þangað til móðirin valt út af og hraut eins og sögunarverksmiðja í Brasilíu. Það var engin leið fyrir mig að sofna. Svo ég fór að hugsa. Fyrst fór ég að hugsa um konuna, ættaða frá Tyrklandi og móður fimm barna. Við virtumst ólíkar, samt höfðum við spjallað í notalegheitum fyrir heimsóknina. Báðar hræddar um börnin okkar með sama sjúkdóminn, báðar ættaðar frá öðru landi, báðar feykilega áhugasamar um leikskóla- menningu í hverfinu okkar, báðar á sama aldri. Næst fór ég að hugsa að börn og foreldrar eru alls staðar sama fyrirbærið. Munurinn felst helst í því hvernig búið er að fjölskyldum á hverjum stað. Og loks fór ég að hugsa að ólíkt því sem margir halda er Berlín barnvæn. Himinninn yfir Berlín er stundum þungbúinn en í borginni úir allt og grúir af skríkjandi krökkum og það sem meira er: víðast hvar er gert ráð fyrir börnum. Berlín er ekki „Við eigin maðurinn sammæltumst um að svo innilega samstöðu vantaði tilfinnanlega í marga íslenska fjölskylduna.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.