Kjarninn - 13.02.2014, Page 72
03/05 kVikmyndir
menningarlegt borgarastríð
„Við stöndum í menningarlegu borgarastríði og baráttu um
gildi. Það er kannski nokkuð sem kvikmyndagerðarmenn
munu alltaf þurfa að gera,“ sagði Benedikt Erlingsson í um-
ræðum um íslenska kvikmyndagerð sem fóru fram í Gauta-
borg og bætti við: „Það er líka Catch-22 í gangi fyrir leikstjóra
sem gera sína fyrstu kvikmynd. Enginn vill gefa þér neitt af
því að þú hefur ekki gert neitt.“
En það er ekki bara niðurskurður ríkisstjórnarinnar sem
hefur haft áhrif á kvikmyndagerðina. Friðrik Þór Friðriksson
benti á í sömu umræðum að miðaverð fyrir íslenskar kvik-
myndir hefði farið lækkandi frá því að kvikmyndagerð hófst
og dreifiaðilar kvikmyndanna tækju sífellt stærri og stærri
hluta af því verði fyrir sjálfa sig. Kannski er það eðlileg
þróun ef tekið er til greina að ný íslensk kvikmynd er ekki
jafn sjaldséður hlutur í dag og fyrir þrjátíu árum, en tæpast
er hægt að færa rök fyrir því að lækkað miðaverð skili sér í
aukinni miðasölu á íslenskar kvikmyndir.
Baltasar í master Class
Auk þess að taka á móti heiðursdrekanum tók Baltasar
þátt í Master Class, þar sem hann ræddi um feril sinn sem
leikstjóri. Þegar Djúpið barst í tal var hann fljótur til þess að
ræða það sem hann áleit vera helstu myndlíkingu myndar-
innar: „Á Íslandi tölum við oft um landið sjálft sem skip –
við köllum það Þjóðarskútuna – og segja má að sjóslysið sé
hrunið sjálft, Þjóðarskútan að sökkva. Mér fannst við hafa
tapað okkur sjálfum eftir hrunið, við vorum svolítið eins og
hauslausar hænur að hlaupa um. Það sem ég man best eftir
Vestmanneyjagosið var hversu stóískt fólkið var – og það var
það sem við þurftum á þessum tíma. Að geta horft stóískt á
vandamál okkar og reyna að leysa þau.“
Auðvelt er að halda áfram í myndlíkingaleik í verkum
Baltasars. Auk Djúpsins hafa síðustu bandarísku myndir
hans fjallað um menn í einhvers konar ómögulegri aðstöðu
sem þurfa að gera allt sem þeir geta til þess að bjarga sér
úr vandamálunum – hvort sem það er Dermot Mulroney
Smelltu til að horfa
á Master Class
Baltasars