Nýtt S.O.S. - 01.01.1961, Síða 8
að hann rakst á björgnnarbát herflutninga-
skipsins General A. W. Greely og skemmdist
þá skrúfan á þeim bát. Varð sá bátur ónothæf-
ur um sinn.
Klukkan 05,05 er lokið við að bjarga öllum
farþegum og skipverjum af Flying Enterprise
utan skipstjóranum. Tíu mínútum seinna var
áhöfn hins bilaða báts frá General Greely kom-
in heilu og liöldnu um borð í Southland.
Brezka skipið Sherborne, General A. W. Gree-
ly og Southland hafa lokið björgunarstarfi sínu.
Klukkan 05,30 heldur Southland áfram ferð
sinni til Rotterdam. Um borð í skipinu eru 7
farþegarnir á Flying Enterprise, þeirra á meðal
5 konur, drengur og 8 skipverjar, samtals 15
manns. Norska olíuskipið H. Westtfal Larsen
bjargaði 56 ára gömlum kyndara, Filipino Balt-
hazar Gavilan frá New York.
Smyrjari, George Miterko að nafni, hraktist
tvær klukkustundir í öldurótinu. Hann liafði
meiðzt á handlegg, gat ekki haldið sér í björg-
unartækin þegar liann kom upp á yfirborðið og
rak á brott. Það varð honum til lífs, að liann
rak í áttina að Arion. Einn hásetanna, Kurt
Hensel, fór niður með skipshliðinni og náði
taki á manninum, en varð að sleppa vegna
þess, að skipið tók mikla veltu. Skömmu seinna
heppnaðist honurn þó að ná manninum.
„Eg hef nú verið 26 ár til sjós, en svona djöf-
ulgang hef ég ekki upplifað fyrr,“ sagði hann.
Nú var lokið við að bjarga öllum af Flying
Enterprise nema skipstjóranum.
JÁRNKALDUR SKIPSTJÓRI.
Áður en skipin halda á brott fer bátur frá
Southland og Ieggur að Flying Enterprise.
En Carlsen skipstjóri neitar ákveðinn að yf-
irgefa skip sitt.
„Þér verðið að koma, skipstjóri. Við getum
ekki beðið lengur. Skipinu getur hvolft á
hverri stundu!"
„Eg þekki skipið mitt. Því mun ekki hvolfa.
Eg hef skipun útgerðarinnar um það, að yfir-
gefa ekki skipið fyrr en björgun sé algerlega
útilokuð. Eg verð kyrr um borð þangað til
dráttarskip kemur til hjálpar!“
NÝTT SOS
„Golden Eagle“ var kyrr á staðnum unz
tundurspillir frá Bandaríkjunum kom og tók
sér varðstöðu hjá skipinu.
*
Carlsen skipstjóri var nú aleinn um borð.
Það var varla hægt að lireyfa sig öðruvísi en
skríða, renna sér eða hanga í böndum. Ekkert
ljós, engin upphitun, ekki heitur matarbiti.
Kuldinn um nóttina var illþolandi. Ljósin á
Golden Eagle sveifluðust til og frá skannnt
frá flakinu.
Carlsen skríður um í leit að rafgeymi til þess
að setja hann við tækin í loftskeytaklefanum.
Þá fær skipstjórinn vitneskju um, að útgerð-
arfélagið hefur kvatt tvö dráttarskip á vettvang
til þess að draga skipið til hafnar. Annar drátt-
arbáturinn er hollenzkur, „Ocean“, hinn er
stærsti og aflmesti dráttarbátur brezka flotans,
„Turmoil". Hann reiknar út, að samkvæmt
stöðu þeirra nú, ættu þeir að geta verið komn-
ir á staðinn eftir tvo daga.
*
Að morgni 30. desember, sem ber upp á
sunnudag, fær Carlsen þá frétt, að hollenzki
dráttarbáturinn Ocean, sem var á leið til hans,
liafi fengið skipun um að fara öðru skipi til
aðstoðar, sem var í sjávarháska í Biskyaflóa.
Aðrir dráttarbátar eru ekki í nánd. En Carl-
sen veit, að aðrir dráttarbátar hafa verið til
kvaddir og auk joeirra er tundurspillirinn
„John W. Weeks“ á leið til hans.
Það hefur valdið Carlsen miklum erfiðleik-
um að finna sér matföng. Loks finnur liann
risastóra köku, hann stingurhendinni í hana
miðja og dregur hana upp til sín. Á þessari
köku nærist hann næstum heila viku.
*
Á gamlársdag talaði Carlsen við skipherrann
á Golden Eagle, en sá síðarnefndi hefur fengið
skipun um að vera í nánd við flakið þangað
til John W. Weeks kemur á vettvang.
Carlsen segir skipherranum í stuttu máli,
hvað skeð hefur og liann dáðist að kjarki og
rólyndi allra, sem urðu að yfirgefa skipið.
„Þetta er fjári erfitt viðureignar,“ sagði Carl-
sen, „ég verð að skríða, ef ég hreyfi mig. Það er
ekki hægt að bregða upp ljósi, hvað sem við
Framhald á bls. 19.
8