Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.02.1942, Blaðsíða 22
20
Þ J Ö Ð I N
hefur verið ort á íslenzka tungu), en öll eru þau þrungin af
ást á landinu okkar og fegurð þess og eftirtakanlega hreinni
og einlægri frelsisþrá. Og þetta tvennt er betra að sé vel
lifandi nú. Hér var maður, sem vissi hvað hann söng.
Þetta er nú gott dæmi um það, hvað gera má, og ár-
angur tilraunarinnar sýnir, að margt fólk er til á þessu
landi, sem vill sýna helgum dómum þjóðarinnar rækt.
Ætli ckki séu margir, sem hlusta vilja á fyrirlestraflokk-
inn um heiðinn dóm á Islandi? Betur að sem mest væri af
slíkum fyrirlestrum, þar sem túlkunin hæfir hinu mikla
viðfangsefni, sem um er fjallað, og er því ekki til skamm-
ar.1) Og svo er Gullna hliöið, sem ég get ekki stillt mig um
að tiefna. Undanfarið var verið að sýna okkur amerísk leik-
rit, sem var nógu gaman að sjá, en aðalkostur þeirra var
þó frægðin; en svo tók Davíð Stefánsson sig til og samdi
leikrit um sálina hans Jóns míns, og síðan var ekki leikið
annað þann veturinn.
Ég er nú kominn þar, að eínin liggja tvenn og þrenn
á tungu mér, og verður þó ekki hjá því komizt að fara
að Ijúka þessu máli. En í stuttu máli sagt þarf markvisst
starf fyrir íslenzkt þjóðerni á öllum sviðum þjóðlífsins, og
það þarf ekki síður að gefa gætur að smáu en stóru. Barna-
tímar útvarpsins eiga vel skilið sérstaka athygli, engu síð-
ur en það sem meira ber á. Við þurfum að kappkosta að
gefa hinu íslenzka búning, sem ekki geri það ófært í bar-
áttunni við annað, og við þurfum að gera kröfur, halda
vakandi rýni, keppast við að bæta um. En samfara rýn-
inni skulum við hafa það í heiðri, sem Islendingar hafa
gert vel eða gera vel. — Er nauðsynlegt, að ríkið sé að
kosta stórútgáfu erlendra þýðinga, á þessum tfmum? Væri
ekki nær að eyða því sama fé til eflingar íslenzkum bók-
menntum. Til verndar tungunni hefur verið stungið upp
á að stofna félag — en væri ekki tímabært að koma á fót
stofnun, sem ynni ýmis bráð-aðkallandi störf í þágu mál-
1) Þegar þetta erindi var flutt, haföi próf. Sigurður Nordal
nýlega túlkað Sonatorrek Egils Skallagrímssonar.