Heimilispósturinn - 12.12.1960, Blaðsíða 16

Heimilispósturinn - 12.12.1960, Blaðsíða 16
VÉFRÉTTIN m | C'-% I wi | Hvað segja spilin um framtíð þína ar og svo í röð undir hin fjög- ur. Og þegar búið er að leggja undir alla röðina, er byrjað að nýju, unz hjarta- drottningin kemur. Ber að taka eftir því, undir h\Taða stokk hún kemur, því hér get- ur að lesa hið fyrsta svar vé- fréttarinnar. Fyrsta hjartaspilið, er ligg- ur næst fyrir ofan hjarta- drottninguna, táknar það, að mannsefnið heilsar stúlkunni, og verður maður að snúa því þannig (sjá I.). Þegar svo 1 2 3 Mörg ung og upprennandi stúlka þráir að fá að vita það er hér segir: Hver niuni verða maðnrinn hennar; hvernig liann muni biðja hennar; hvernig hann muni verða út- lítandi; hvort hann muni verða auðugnr eða snauður; góður eða vondur; livort hann muni elska hana mikið eða lítið; hvernig hrúðkanpið muni verða, og hvar hún muni búa. Sem betur fer, höfum vér fengið áreiðanlega véfrétt í þessum efnum. Hana höfum Hver verður maðurinn þinn? Þú skalt taka alla gosana fjóra úr spilunum, og laufás- inn. Spil þessi leggur þú svo upp í loft á borðið. Gosarnir tákna þá menn, er stúlka sú, sem spáð er fyrir, getur valið í milli. Einn þeirra, það er að segja sá, er stúlkan hefur mestar mætur á, þarf ekki að vera nafngreindur. En hina skal nefna sínum réttu heit- um. Ef stúlkan á einhverjar vinkonur, sem viðstaddar eru, ætti þeim ekki að verða skota- vér fengið sem arf frá for- feðrum yorum, eða formæðr- um öllu heldur, er höfðu sjálf- ar gengið úr skugga um, hve skýrt og skorinort hún tjáði slík tíðindi; — ef hún þá aftók ekki með öllu, að um nokkra giftingn væri að ræða. — Þessi ómissandi véfrétf er spilaspálistin. Vilji einhver stúlka vita alla þessa hluti, er nú voru nefndir, verður hún að leggja spilin sjö sinnum. skuld úr því að skíra gosana. En laufaásinn táknar pipar- mey. Þessu næst er stúlkan látin draga eitthvert spil úr stokkn- um. Skulum við þá gera ráð fyrir, að hún dragi hjartaþrist- inn. Þá er og „sort“ hennar hjartasortin og táknar hjarta- drottningin hana sjálfa. Spá- dómslistin byrjar nú með þvi, að tekið er hvert spilið á eft- ir öðru, og þeim rennt undir þessi spil, er liggja á borðinu; er byrjað að leggja undir það spil, er liggur til vinstri hand- þetta sama hjartaspil kemur næst þegar spilin eru lögð fyr- ir ofan hjartadrottninguna, þá merkir það, að mannsefnið tal- ar við hana, og er þá spilinu snúið þannig (sjá 2.). Og þeg- ar það kemur þriðja sinn, þá merkir það, að maðurinn hækist eftir henni. Og er því þá snúið þannig (sjá 3.). Og þegar það svo kemur í fjórða skipti, þá merkir það bónorð- ið. Þegar hjartadrottningin er komin í ljós, eru öll spilin tekin og stokkuð, að undan- skildum þessum fimm, sem lögð voru fyrst á borðið, þ. e. gosunum og laufaásnum. Og það getur vel atvikast svo, að allir þessir fjórir menn geri, bæði að heilsa stúlkunni, tala við hana, sækjast eftir henni og biðja hennar, því slíkt ber stundum við í lífinu. En þegar fyrsta bónorðið er kom- ið, verðum við að leggja það sérstaklega á minnið og at- huga hverju hún svarar. En svar hennar kemur í næsta þætti. Ef hjartadrottningin fellur undir laufaásstokkinn, þá merkir það, að stúlkan verð- ur ólofuð, þegar hún er orðin tvítug. Komi hún undir sama stokk annað sinn, merkir þaö, að hún verður ólofuð þegar hún er orðin tvítug. Komi hún undir sama stokk annað sinn, merkir það, að hún verð- ur ólofuð þegar hún hefur fimm um tvítugt. Og fari eins þriðja skiptið, þá merkir það, að ástarguðinn hefur ekki enn komið fram á sjónjrsviðið, þótt undarlegt megi heita. Og fari þannig hið fjórða sinn, — þvi svo örg geta forlögin orð- ið, — þá er auðsætt, að stúlk- an á fyrir sér að enda aldur sinn sem piparmey. Og þegar búið er að leggja spilin þann- ig fjórum sinnum, er ekki til neins að spá frekar fyrir vesalings stúlkunni. Þá er út- séð um, að hún muni ekki giftast. Eins og gefur að skilja, get- ur véfréttin alveg eins sagt fyrir um giftingu karlmanna. Og þær breytingar, ser» verð- ur að gera á spádómsaðferð- inni, getur hver meðalgreind- ur maður gert sjálfur. Það er og ef til vill rétt að geta þess hér, að margur ungur karl- maður hefur mikinn hug á því að vita, hver muni verða konan hans og hvcrmg .'ónorð- ið muni takast o. s. frv. Fær liann „já“ eða „noi“? Nú hefur maðurinn komið og beðið hennar. En þá er eft- ir að vita hvernig hún tekur honum. Spilin eru stokkuð vel og vandlega. Siðan er þeim flett upp hverju á eftir öðru, og segir maður þá við hvert spil „já“ eða ,,nei“ á víxl, þannig ,,já“ við fyrsta spil og „nei“ við annað og „já" við hið þriðja o. s. frv. Og þegar svo hjartadrottningin kemur, fer svarið, er biðillinn fær al- 1 Eins og gengur .... veg eftir því, hvort „já" eða ,,nei“ fellur á hana. Ef það er ,,já“, er þegar byrjað á þriðja þætti. En sé það „nei", þá er sá biðillinn, er hefur fengið hryggbrotið, tekinn burt af borðinu. Er þá byrjað aftur að nýju á fyrsta þætti, unz annar biðill er kominn, ef pip- armærin hefur þá ekki hrams- að stúlkuna. Hvernig mun hann verða útlítandi ? Til þess að fá að vita þetta, er ekki annar vandinn en að leggja spilin sem hér er sýnt. Verður að gæta þess, að hafa þau öll á grúfu. Til þess nú að vita, hvað þessi spádómur leiðir í ljós, snýr maður spilunum við. Byrjar á efsta spilinu. Ef það er svart, þá merkir það, að maðurinn sé svarthærður, en □ k*:: ■?■■■ □ |-----~j • ý<t á jólunum sem endranær! ef það er rautt, þá þýðir það, að hann sé ljóshærður. En ef ennis-spilið er svart, þá er nokkurn veginn víst, að mað- urinn er fremur skyni skropp- inn, en sé það rautt, er hann gáfaður. Ef bæði augna-spil- in eru svört, þá þýðir það, að hann er döggeygður, en ef þau eru bæði rauð, er hann blá- eygður. En sé annað þeirra svart en hitt rautt, þá er ekki því að leyna, að maðurinn er rangeygður. Ef munn-spilið er rautt, er hann maður fríður sýnum, en sé það svart, er hann ekki fríður og fremur leiðinlegur. Ef handleggja-spil- in eru bæði rauð, eru handlegg- ir hans fagrir, en Ijótir og luralegir, ef spilin eru bæði svört. En sé annað svart og hitt rautt, eru handleggir hans skakkir eða snúnir og hið sama er að segja um fætur hans. Ef hjarta-spilið er rautt, er hann valmenni, en sé það svart er hann líklegur til að verða harðstjóri. Ef peninga-spilið er rautt, er maðurinn auðug- ur, en sé það svart, er hann blásnauður. Allt þetta er að vísu gott aö vita, en þó vil ég minna ungfrúna á það, að hún hefur nú sagt „já“, og hér verður þvi vart um þokað.

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.