Heimilispósturinn - 12.12.1960, Blaðsíða 6

Heimilispósturinn - 12.12.1960, Blaðsíða 6
Gleðileg jól! sr, rU99in9 H Vesturgötu 10 aðfangadagskveldið til þess að ná í aptansönginn, eins og þá var siður til, og ætl- aði að koma heim aptur á jóladaginn eptir messu. Skipuðu hjónin nú Helgu að vera heima til þess að mjalta kýmar, og gæta peningsins, og til að sjóða hangikjötið til jólanna. Sögðu þau, að það væri þá enginn skaði, þó hún hrykki upp af, ef svo vildi að bera. Að því búnu fór kirkjufólkið, og var Helga alein heima. Gegndi hún þá fyrst pen- ingnum og mjólkaði kým- ar á aðfangadagsmorgun- inn. Því næst sópaði hún allan bæinn rækilega, og fór að því búnu að sjóða jóla- kjötið. Þegar hún var langt komin að sjóða, sér hún hvar stálpað barn kemur inn í eldhúsið með nóann sinn í hendinni. Bamið heilsar henni, og því tekur hún vel. S,ðan biður bamið Helgu að gefa sér ögn af kjöti og dálítið af floti í nó- ann sinn, og réttir henni um leið. Helga gerir það, og hafði þó móðir hennar strengilega bannað henni að eta eða gefa nokkra ögn af kjötinu eða flotinu, áður en hún fór burtu um daginn. Þegar Helga var búin að gefa baminu, kvaddi það hana og vappaði út aptur með nóann. Leið nú svo dag- urinn og lauk Helga af öll- um útiverkum um kveldið. Að þvi búnu kveikti hún sér ljós í baðstofunni, tók af sér skóna og settist upp í rúmið foreldra sinna og fór að lesa í bók. Þegar lítil stund var lið- in, heyrir hún hávaða mik- inn úti fyrir og mannamál, og verður þess brátt vör, að fjölgar í bænum. Kemur nú inn allramesti sægur af ókunnugu fólki; fyllist bað- stofan af gestum þessum og rúmin öll, svo Helga komst varla fyrir, fyrir þrengsl- um, og þess varð hún á- skynja, að eins var fullt frammi í bænum, og í öll- um bæjarhúsunum. Þegar fólk þetta var búið að koma sér fyrir, fór það allt að skemmta sér með allskonar leikaraskap og gleði. Ekki lagði það neitt til Helgu, heldur en það sæi hana ekki, eða hún væri engin til. Ekki skipti hún sér heldur neitt af gestunum, og var alltaf að lesa í bókinni sinni. Þeg- ar Helga hélt, að viðlíka vaka væri komin og vant var, vildi hún fara út að mjólka kýrnar, því þar var siður að mjólka eptir vöku, eins og víða er gert. En hún gat ekki snúið sér við fyrir þrengslum. Einn maður var í baðstofunni miklu stærri en allir aðrir; hann var roskinlegur og hafði mikið skegg. Þessi maður kallar nú upp, og biður ókunnuga fólkið að hliðra til, lofa Helgu að ná skónum sínum, og gefa henni rúm til að ganga um baðstofuna og bæinn. Fólkið gerir það. Fer þá Helga út í myrkrinu; því hún skildi ljósið eptir hjá fólkinu. Þegar hún er kom- in út í fjósið og farin að mjólka kýrnar, heyrir hún, að þar kemur einhver. Sá heilsar henni; hún tekur því vel. Sá sem inn kom, biður hana þá, að lofa sér að hvíla hjá henni uppi í moðbásnum. En Helga þver- neitar því. Itrekaði hann bæn sína nokkrum sinnum, en hún neitar því allt af. Fer hann burtu við svo búið, en Helga heldur áfram að mjólka. Skömmu eptir heyr- ir hún, að gengið er inn í f jósið að nýju. Er henni enn heilsað, og heyrir hún, að það er kvenmaður. Hún tek- ur kveðjunni vel. Hin að- komna þakkar þá Helgu al- úðlega fyrir bamið sitt, og fyrir það, að hún hafi ekki orðið við bón mannsins síns í fjósinu. Og um leið réttir hún að henni fataböggul, sem hún biður hana eiga fyrir hvomtveggja þennan greiða, sem hún hafi sýnt sér. „Ætla eg svo til“, segir aðkomna konan, ,,að í böggli þessum séu föt handa þér, sem þú verður sæmd af að bera á þínum heiðursdegi, og er þar í belti, sem ekki mun verða þér til minnk- unnar. En þú munt verða gæfukona", segir hún, ,,og eignast biskup fyrir mann. Skaltu aldrei farga fötum þessum, og ekki bera þau fyr en þú giptist“. Helga tekur við bögglinum, og þakkar fyrir gjöfina. Geng- ur nú konan út, og Helga fer inn, þegar hún er búin í fjósinu. Amaðist enginn við henni, heldur gaf fólkið henni gangrúm í bænum. Settist hún upp í rúmið apt- ur, og fór að lesa í bókinni sinni. Undir daginn fór fólk- ið að smáfara burtu, og með degi var það allt farið, og lét eins og það hvorki sæi Helgu né heyrði, og eins gerði hún við það. Þegar hún var ein orðin, fór hún að skoða í böggulinn, og sá hún, að álfkonan hafði gef- ið sér allramestu dýrindis- föt, en þó bar beltið langt af öllu öðm. Geymdi hún nú böggulinn vandlega. Helga lauk því næst af öllum morgungegningum á jóladaginn, og var búin að öllu, þegar fólkið kom frá kirkjunni. „Það lá alténd að, að hún mundi lifa, af því enginn söknuður var að henni, þó hún hefði farið“, sögðu foreldrarnir, þegar þau komu heim og sáu, að Helga var heil á hófi. Var nú Helga spurð spjömnum úr, hvað fyrir hana hefði borið um nóttina. En hún sagði undan og ofan af því. Þó sýndi hún foreldmm sínum og fólkinu öllu fötin, sem álfkonan hafði gefið henni. dáðust allir að fötun- um en einkum þó beltinu, og vildu nú bæði móðir hennar og systir taka þetta af henni, því þeim þótti henni ekkiekki hæfa slíkt skraut. En Helga lét ekki klæðin, heldur geymdi þau vandlega niður í kistu, sem hún átti. Nú leið og beið, og bar ekkert til tíðinda, þangað til næstu jól komu. Þá vildu þær vera heima, móðir Helgu og systir, til þess að verða fyrir gjöfum álfa- fólksins, ef það kynni að koma. Og það varð út úr á endanum, að húsmóðirin sjálf varð heima, en hitt fólkið fór allt til kirkjunn- ar. Er ekki sagt frá aðgerð- um húsfreyju, annað en það, að á meðan hún var að sjóða jólakjötið, kom dálít- ið stálpað bam til hennar inn í eldhúsið, og hélt á nó- anum sínum í hendinni. Bamið heilsaði konunni, og bað hana gefa sér dálítinn kjötbita og ögn af floti í nóann sinn. Konan brást illa við, og aftók með öllu að gefa því neitt; „því eg veit ekki, hvað miklu ríkari þeir kimna að vera en eg, sem að þér standa“, segir hún. Bamið ítrekaði bænina, en konan varð þá svo æf, að hún barði það frá sér, og sló á handlegg barnsins, sem það rétti nóann fram með, svo handleggurinn brotnaði, en nóinn hraut of- an á gólfið. Bamið fór þá að gráta, tók nóann sinn upp með hinni hendinni, og gekk burtu skælandi. Segir ekki meira af konukindinni, eða aðfömm hennar. En þegar fólkið kom heim á jóladaginn, lá konan á gólfinu, beinbrotin, barin og blóðug, og aðeins með svo miklu lífi, að hún gat sagt frá komu barnsins og viðtökum sínum við því, og dó síðan. En öllu var um- tumað innanbæjar, brotið allt og bramlað; maturinn lá til og frá, og allur ónýt- ur. En svo brá þó við, að aldrei varð neinn neins var á bænum um nokkur jól ept- ir þetta. En það er frá Helgu að segja, að hún var enn nokk- ur ár hjá föður sínum, og fór síðan frá honum í Skál- holt. Þar giptist hún síðan biskupinum, þó hér sé ekki sagt frá, hver þá var bisk- up í Skálholti. Á sínum heiðursdegi var hún í klæð- unum, sem álfkonan gaf henni forðum, og dáðust allir að þeim, en þó um fram allt beltinu, því slíka ger- semi þóttist enginn fyrri séð hafa. Varð Helga hin mesta lánskona, og lifði bæði lengi og vel. Og kann ég nú ekki þessa sögu lengri. Jón granni 6

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.