Heimilispósturinn - 12.12.1960, Blaðsíða 26

Heimilispósturinn - 12.12.1960, Blaðsíða 26
í Gleðileg jól! JKr. HKnstjánsson Bifreiðaumboö Gleðileg jóll r (fárnvöruverzlun fjes Sotmzen Hafnarstræti 21 Gleðileg jólí r oTeppi h.f. Aðalstræti 9 Gleðileg jól! (JerzlanasamhandiÁ 26 þar sem hnífar hafa verið not- aðir. En það er vist eins gott fyrir okkur að síma lýsingu á Ross og Miller til Tagish, Þeir gætu hafa komizt þangað í dag. Tagish var síðasta lögreglu- stöðin áður en komið var að járnbrautarlínunni til suðurs. Hérna stanzaði George Graham lögreglumaður daginn eftir, hinn 6. janúar, fyrir framan hesthús hótelsins. Inni í hesthúsinu stóðu tveir rennblautir skjálfandi hest- ar, og gríðarstór gulur St. Bern- harðshundur. Inni á hótelinu sat hávaxinn maður fyrir framan eldstóna og þurrkaði sokka sína. — Eru þetta yðar hestar úti í hesthúsinu? spurði Graham. Maðurinn virtist alls ekkert taugaóstyrkur og spurningin kom honum ekkert á óvart. — Já, svaraði hann. — Eg heiti O’Brien, og ég er nýkom- inn frá Dawson. Það brotnaði undan mér isinn þegar ég fór yfir ána. — Hvers vegna fóruð þér yf- ir ísinn ? spurði Graham. — Það skyldi þó ekki hafa verið til að sneiða hjá lögreglustöðinni ? — Eg hef enga ástæðu til að óttast lögregluna, svaraði mað- urinn jafn rólega og áður. — Ég keypti hestana í Staff-gisti- húsinu. Hérna er kvittunin. 200 dollarar. — Teppið, sem þér eruð með á sleðanum tilheyrir rikinu, hélt Graham áfram. — Hvemig kom það í yðar eigu? Maðurinn útskýrði án minnsta óstyrks að hann hefði setið í fangelsi í Dawson og hefði ver- ið sleppt í september árið áður. Lögreglan hafði gefið honum sleðateppi. Graham tók O’Brien með sér og setti hann í varðhald þar til hann hefði rannsakað til fulln- ustu sannleiksgildi þess, sem hann sagði. Klukkutíma síðar staðfesti Dawson, að O’Brien segði satt. Graham bað hann afsökunar, og O’Brien kvaðst myndu halda áfram strax og hestamir væru nægilega hvíldir. Seint sama dag kom annað skeyti frá Dawson: — Lýsingin af O’Brien kemur heim við mann, sem kallar sig Miller. Takið hann fastan fyrir þjófn- að úr birgðageymslu hjá Sel- kirk. Grunur leikur á að O’Brien kimni að vera viðriðinn dular- fullt hvarf þriggja manna á jóladag. Yfirheyrið hann út af félaga hans, sem kallar sig Ross, öðm nafni Tommy Graves. Graham flýtti sér nú aftur yf- ir í hesthúsið, og hestamir vom þar ennþá. O’Brien, sem nú gæti hafa verið á leiðinni til Alaska, hafði hitt unga Indíánastúlku, og ákveðið að dveljast um nótt- ina. Hann var tekinn fastur og farið með hann á lögreglustöð- ina. Hann var ekki með nema um 100 dollara í vösunum. 1 snjó- skóm hans fundust tveir hundr- að dollara seðlar í viðbót, og í poka á sleðanum lágu tvær skammbyssur. Ennfremur var hann með tvo riffla i fórum sin- um. Loks fannst sjónauki í far- angri hans, sem var mjög ó- venjulegt meðal ferðamanna á þessum slóðum, en hann kvaðst Framh. á bls. 28. Gleðileg jól! TTÍálaraháSin Vesturgötu Gleðileg jóli r B~íalldór (Jónsson heildverzlun Hafnarstræti 18 Gleðileg jólí r föggert TKnstjánsson Sr Go., h.f Hafnarstræti 5 Gleðileg jóll r cKappdrœtU CÖ.JK.é). HEIMILISPDSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.