Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Síða 5
FRA ENGLANDI.
Fjármálaóreiða.
Viðburðir þeir, sem gerzt hafa
í Englandi síðustu vikurnar, fall
pundsins og stjórnarbreytingarn-
ar hafa gersamlega yfirgnæft
allt annað, sem gerst hefir í
heiminum á þessum tíma. í raun
og veru eru þessi tvö mál mjög
fléttuð saman, því að það eru
beinlínis fjármálaörðugleikarnir,
sem hafa valdið hinu öllu.
Vei-kamannastjórnin, sem setið
hefir að völdum síðan 1929 var
kosin sem ,,framfarastjórn“, og
hún reyndi að láta þetta ásann-
ast. Framk'Tæmdir voru miklar
og kostnaður jókst í sífellu. Á
hinn bóginn gerði kreppan í
heiminum og verðfallið mikla
það að verkum, að tekjur ríkis-
ins fóru þverrandi. Fór þá svo,
að halli fór að verða bæði á
ríkisbúskapnum, (á fjárlögum)
°g<á þjóðarbúskapnum í greiðslu
jöfnuði við önnur lönd.
Mac Millian nefndin.
Þetta gat ekki dulist jafn
skarpskyggnum manni og Philip
Snowden, fjármálaráðh. verka-
mannastjórnarinnar. Skipaði hann
því nefnd eina mikla, er rann-
saka skyldi allt ástandið og leggja
á ráðin um bætur. í nefnd þess-
ari voru margir mestu fjármála-
menn og hagfræðingar Englend-
inga, svo sem Mc. Kenna og Key-
nes. Fromaður var Mc. Millian
lávarður.
Nefnd þessi skilaði mjög löngu
og vönduðu áliti, og urðu næst-
um því allir sammála. Var aðal
inntak þessa álits það, að á ár-
inu 1932 myndi með sama áfram-
haldi verða 120 miljón punda
halli á ríkisbúskapnum (um
2.500.000.000 krónur!). Þetta
taldi nefndin alveg ógerning að
taka með auknum sköttum, því
að allur þorri þeirra væri kom-
inn „í hámark“. Mestum hlutan-
um yrði því að ná með niður-
færslu á útgjöldum. Lang stærsti
liðurinn var 10% lækkun á at-
vinnuleysisstyrkjunum (nam um
33*